Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Blaðsíða 13
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 í3 í gær var rithöfundalaunum deilt út eftir vali nefndar á vegum menntamálaráöuneytis. Stóru tíðindin eru að Qórir af fremstu höfundum þjóðarinnar falla niður um flokk. Þetta eru menn sem sumir hverjir hafa fengið heilsárslaun í áratug en fá nú ekki nema hálft ár. Skandall skekur bókmenntaelítuna. Einar Kárason Hefur verid að koma mjög sterkur irm að nýju undanfar- in ár en fékk bara hálft ár. Guðjón Friðriksson Fékk bók- menntaverðlaun islands en samt fær hann ekki að vera í fyrsta flokki. m Þau stórtíðindi áttu sér stað við úthlutun rithöfundalauria í gær að nefndin, skipuð af menntamálaráð- herra, hafnaði nokkrum af vinsæl- ustu höfundum þjóðarinnar. Það eru þeir Hallgrímur Helgason, Pétur Gunnarsson, Guðjón Friðriksson (fékk íslensku bókmenntaverðlaun- in á dögunum) og Einar Kárason. Allir fá þeir aðeins hálfs árs laun en hafa um langt skeið verið taldir til fyrsta flokks og verið á launum allt árið. Mikill hiti er meðal rithöfunda vegna þessa og margir þeirra eru hreinlega æfir en úthlutunin er sannkölluð uppskeruhátíð rithöf- unda á Islandi. Þá fá fáeinir af fremstu höfundunum skilaboð um að næstu þrjú ár verði þeir á fullum launum hjá ríkinu en aðrir verða á launum í ár og loks koma þeir sem fá bara hálfs árs laun. Einar og Hallgrímur skandall „Við emm bara frekar fúlir yfir þessu," segir Kristján B. Jónasson hjá Eddu útgáfu en svo virðist sem þeirra höfundar hafi farið einna verst út úr úthlutuninni. „Þegar maður setur þetta í víðara samengi þá finnst manni margt á þessum lista orka tvímælis. Það verður líka að viðurkennast að það er í raun fáránlegt að Hallgrímur Helgason og Einar Kárason fái ekki árslaun. Að öðmm ólöstuðum þá em þetta þungavigtarhöfundar sem hafa verið að skila stómm verkum undan- farin ár og þetta em höfundar sem þjóðin er að kaupa bækur eftir. Manni finnst þetta einkennast af því að þeir höfundar sem selji sé refsað." Önnur útgáfufélög mega vel við una, sér í lagi Bjartur, en Snæbjörn Arngrímsson útgefandi er að vonum ánægður: „Ég er hamingjusamur fyrir hönd minna höfunda og myndi ekki vilja skipta þeim út," segir Snæbjörn en viðurkennir að honum finnist ali svakalegt að Einar Kárason og Hall- grímur Helgason séu orðnir rithöf- undar í hálfu starfi. „Einar kom sterkur inn fyrir síðustu jól og Hallgrímur er fmmlegur og góður höfundur. Þetta er mjög leiðinlegt," segir Snæbjörn. Utgefandinn er því ekki fullkom- lega sáttur við úthlutunina þótt hans höfundar, margir hverjir, komi vel út þetta árið. Má þar nefna Sjón, Guð- rúnu Evu, Jón Kalman og Sigfús Bjart- marsson. Af sínum eigin höfundum kveðst Snæbjörn hafa viljað sjá Berg- svein Birgisson inni með hálft ár, en hann fékk tilfefningu til Bókmennta- verðlauna fyrir Landslag er aldrei asnalegt, auk þess sem Snæbjörn salcnar Sigurjóns Magnússonar á list- anum. Bækur fyrir blækur „Ég vil ekkert segja um þetta," seg- ir Einar Kárason rithöfundur en hann fékk þær fréttir í gær að í fyrsta sinn í yfir 10 ár fái hann bara hálfs árs rithöf- undalaun. „Það er bara þannig," ítrek- ar Einar en rithöfundar em oft feimnir við að tjá sig sjálfir við fjölmiðla um hugsanleg sárindi vegna úthlutana. Frægt er þegar Gyrðir Elíasson fékk ekki árs laun um árið og fjölmargir skrifuðu greinar í blöðin, en ekki hann. Heimildir DV herma engu að síður að Einari sé brugðið og að hann verði líkiega að fara að finna sér vinnu Þau útdeildu laununum Ármann Jakobs- son Formaður nefndarinnar sem úthlutar rithöf- undalaunum. Astráður Eysteins- son Bæði Hallgrim- ur og Einar hafa djöflast ihonum i gegnum tiðina. Kristín Ástgeirs- dóttir Segir að tek- ið sé tillit til fræði- manna, þýðenda, Ijóðskálda og kvenna við valið. fljódega. „Ég er auðvitað frekar hissa," segir Hallgrímur Helgason og skilur hvorki upp né niður í nefndinni. „Nema að það skýri margt að ég skrifaði grein gegn Astráði [einn nefndarmanna) þegar hann var með bókmenntagagn- rýni í Dagsljósi. Mig minnir að yfir- skriftin hafi verið Bækur fyrir blækur. Af því að það vom bara blækur eins og hann sem dæmdu bækur það árið. Það getur verið að ég sé að súpa seyð- ið af þeirri grein núna." Skandinavískt og útspekúlerað „Þetta er skandinavíska stefn- an og allt útspekúlerað," segir Guðbergur Bergsson rithöfundur um úthlutun rithöfundalauna. „Stefnan núna er einhvers konar jafnréttisblanda þar sem þess er gætt að fræðimenn fái sitt og konur líka. Samkvæmt þessari stefnu myndi Guðrún frá Lundi fá rithöfundalaun í 10 ár væri hún lifandi. Sjálfur fæ ég ekkert því ég er orðinn of gamall. Fæ bara heið- urslaunin en þau eru miklu lægri en þessi," segir Guðbergur sem telur þó að úthlutunar- nefndin hljóti að taka mið af öðrum tekjum höfunda þegar útdeilt er: „Allavega voru þeir alltaf að spyrja mig hvað ég hefði í laun þegar ég var að sækja um,“ segir hann. Guðbergur Bergsson nefnir einnig þann mögu- leika að úthlutunarnefndin starfi ef til vill á kristilegum nótum þar sem segir að þeir fyrstu verði síðastir og þeir síðustu fyrstir: „Kannski er þetta ekki flóknara en svo,“ segir hann. „Nema að það skýrí margt að ég skrífað grein gegn Ástráði þegar hann var með bókmenntagagnrýni í Dagsljósi." Á þessa grein bentu einmitt margir sem DV hafði samband við vegna út- hlutunarinnar og minntust líka á rit- deilu sem Einar Kárason átti í við Ást- ráð í Tímariti Máls og menningar fyrir nokkmm ámm. Þá vekur einnig óneitanlega athygli - þótt ögn vandræðalegt sé fyrir DV að fjalla um það - að Mikael Torfason rit- stjóri blaðsins fékk ekkert úr launa- sjóðnum en umsóknum var skilað inn áður en hann var ráðinn í fast starf sem ritstjóri. Hann kvaðst raunar gráta það þurmm tárum og hefði ekki þegið launin, þótt hann hefði fengið, en skilyrði fyrir þeim er að rithöfundur gegni ekki föstu starfi þann tíma sem hann er á launum. í reynd er þó auð- vitað ekki nefndarinnar að ákveða hvort Mikael hefði tekið rithöfunda- karríer sinn fram yfir ritstjórastarfið. Hann hefur verið einn þeirra ungu höfunda sem hvað mesta athygli hafa hlotið á undanförnum ámm en einnig átt í ritdeilum við alla mögulega. Tillit tekið til kvenna Ármann Jakobsson er formaður nefndarinnar en í nefndinni, auk hans, em þau Ástráður Eysteinsson og Kristín Ástgeirsdóttir. DV náði tali af Kristínu og sagði hún engan ágreining hafa verið í nefndinni um að segja mörgum af sterkustu höfundum þjóð- arinnar upp og koma þeim í hálft starf: „Við höfðum takmarkað fjármagn og urðum að skipta því á milli sem flestra," segir Kristín. Varðandi skipt- ingu fjárins milli ólíkra bókmennta- greina bendir hún á að þótt skáld- sagnahöfundar séu vissulega áberandi í hópnum sé einnig og ekki síður litið til fræðimanna, þýðenda, ljóðskálda og kvenna við valið. Ármann Jakobsson tók mjög í sama streng en vildi annars fátt láta eftir sér hafa. RITHÖFUNDALAUN 2004: 3 ár Guðmundur Páll Ólafsson Ingibjörg Haraldsdóttir Kristín Ómarsdóttir Sigurjón B. Slgurðsson (Sjón) 1 ár Andri Snær Magnason ÁrniIbsen Einar Már Guðmundsson Guðrún Eva Mínervudóttir Jón Kalman Stefánsson Kristín Steinsdóttir Ólafur Gunnarsson Sigfús Bjartmarsson Sigurður Pálsson Þórunn Valdimarsdóttir 6 mánuðir Aðalsteinn.Ásberg Sigurðsson Atli Magnússon Auður Jónsdóttir Ágústína Jónsdóttir Bjarni Bjarnason Bjarni Jónsson Einar Kárason Elísabet K. Jökulsdóttir Erlingur E. Halldórsson Eysteinn Björnsson Eyvindur P. Elríksson Geirlaugur Magnússon Guðjón Friðriksson Guðmundur Andri Thorsson Guðmundur Ólafsson Guðrún Hannesdóttir Hallgrímur Helgason Hjörtur Pálsson Hlín Agnarsdóttir fsak Harðarson Kristín Helga Gunnarsdóttir Kristín Marja Baldursdóttir Linda Vilhjálmsdóttir Margrét Lóa Jónsdóttir Ólafur Haukur Slmonarson Óskar Árni Óskarsson Pétur Gunnarsson Ragnheiður Gestsdóttir RúnarHelgiVignisson Sigrún Eldjárn Sigtryggur Magnason Sigurbjörg Þrastardóttir Sigurður Gylfi Magnússon Sindri Freysson Stefán Máni Sigþórsson Steinar Bragi Guðmundsson Viðar Hreinsson Viktor Arnar Ingólfsson Vilborg Davíðsdóttir Þorvaldur Þorsteinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.