Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 15 DV Fréttir Gæludýra- tryggingar Um síðustu helgi voru haldnir Fjölskyldu - og dýradag- arVÍSÍ Reið- höllinni Víðidal. Mikill fjöldi gesta sdtti há- tíðina þar sem kynntar voru fjöldi hunda - og kattategunda og börnin fengu að bregða sér á hestbak. Ljóst er að áhugi fslendinga á gæludýrum eykst með hverju ári en hátfðin var haidin af því tilefni að tryggingafélög bjóða nii upp á gæludýratrygg- ingar. Sjö vikna á ráfi Sjö vikna hvolpur fannst neðst í Öskjuhlið um síðustu helgi. Hvolpur- inn var einn og yfirgef- inn á ráfi og óvíst hvað- an hann kemur, hvort hann hefur verið skilinn eftir eða týnst. Auglýst var eftir eiganda en eng- inn hafði gefið sig fram. Hvolpur- inn er að öllum líkindum af labradorkyni en ómögu- legt er að segja hvort hann er hreinræktaður. Hann fékk gott fóstur hjá eldri hundi og hefur þegar verið ráðstafað á gott heimili til fram- búðar. Páfagaukur hittir ekki drottningu Páfagaukurinn Rude Sunny fær ekki að vera um borð á skipi sínu, herskipinu Lancaster, þegar Elísa- bet Breta- drottning heimsækir skipið á morgun, föstudag, held- ur verður sendur í land. Ástæðan er að páfa- gaukurinn er svo orð- ijótur og á það til að hrópa að konum að sýna á sér brjóstin og vandar samstarfsmönn- um sínum á herskipinu ekki kveðjurnar. Sjólið- arnir um borð vilja sýna drottningunni og manni hennar sfnar bestu hlið- ar þannig að gaukurinn verður að fara í land. Berljót Davíðsdóttir varð vitni að fæðingu 17hvolpa í Grafarvogi Karen Tómasdóttir hundakona á fjögur börn og fjórar tíkur en þrjár þeirra gutu sautján hvolpum í sömu vikunni. Síðustu sex vikur hefur sólahringurinn hjá henni verið mjög languren hún vaknar klukkan hálfsex á hverjum morgni til að gefa hvolpunum. Sautján hvolpar í raöhúsi á Grafarholti „Það er sannarlega handagangur í öskjunni hér á heimilinu og það má segja við séum öll komin í hundana," segir Karen Tómasdóttir sem býr í raðhúsi í Grafarholtinu með íjöl- skyldu sinni, sex hundum og 17 hvolpum af Cocker Spaniel tegund. Fyrir nokkrum vikum síðan þá gutu þrjár tíkur Karenar samtals 17 hvolpum á einni viku. Hún segir þá viku hafa verið erfiða en óskaplega skemmtilega. „Margir gera sér alls ekki grein fyrir hve mikil vinna þetta er en halda að tíkurnar sjái bara alveg um þetta allt sjálfar. Þannig er það bara alls ekki. Þetta er 24 tíma vinna fyrstu tíu dagana en þá vaki ég meira eða minna yfir hvolpunum. Það má svo lítið út af bregða, en til að mynda þarf að fylgjast með hvort tfkurnar mjólki nóg, hvort hvolparn- ir drekki eðlilega og grípa þarf skjótt inn f ef eitthvað er að,“ segir Karen og bætir við að hún sjái ekki eftir einni mínútu sem fari í hundana. „Þeir gefa það allt til baka og það margfalt," segir hún. Karen bjó alitaf hluta úr ári á Spáni þar sem móðir hennar býr enn. Þar kynntist hún eðlilegri hundamenningu „Ég var strax mikil hundakona og eignaðist rninn fyrsta hund þegar ég var 5-6 ára. Síðan hef ég alltaf átt hund. Cockerinn leit ég fyrst augum fyrir sex árum og það var ekki aftur snúið. Ég varð mjög hrifin af tegundinni. Þeir eru blíðir, barngóðir og skemmtilegir," segir hún en sjálf á hún fjögur börn á aldr- inum þriggja til fimmtán ára. Á heimilinu hjálpast allir að með hundana og þegar got eru í gangi þá þarf fjölskyldan að þrengja dálítið að sér. Undanfarnar vikur hafa tíkurnar verið með hvolpana á baðinu, í svefnherberginu og einu barnaher- berginu. Nú eru þeir hins vegar komnir út í bflskúr þar sem þeir geta djöflast eins og þeir vilja. „Bflskúr- inn höfum við lagað þannig að þar er gott að vera með hvolpana. Ég er með baðaðstöðu og þar get ég snyrt hundana. Ég er meira eða minna allan daginn í bflskúrnum að sinna „Margir gera sér alls ekki grein fyrir hve mikii vinna þettá er en halda að tíkurnar sjái bara alveg um þetta allt sjálfar." hundunum. Ástæðan fyrir því að ég hef hvolpana þar er sú að tíkurnar verða að fá að hvflast því hvolparnir eru að ganga frá þeim. Þeir eru sex vikna og það fer að styttast í að þær bíti þá af sér," segir Karen en hún gefur hvolpunum 4-6 sinnum á dag og alltaf þarf að vera nóg af fersku vatni hjá þeim. Þeir umgangast heimilsfólkið þó þeir séu í bflskúrn- um því hann er innbyggður og eins og eitt af herbergjunum í húsinu. Auk þess er alltaf einhver í bílskúrn- um að stússast. 1) Hundar Karenar eru í 3 litum. Svartir og hvítir, alsvartir og svo hvítir og brúnir. Hún segirþá þrílitu vera vinsælasta en þeir eru sjaldgæfir hér á landi. 2) ígegnum tíðina hefur Karen látið marga hvolpa frá sér en hún velur kaup- endur gaumgæfilega, eins og góðum hundaeigendum sæmir, og selur ekki hverjum sem er. 3) Karen ryksugará hverjum degi út af hárunum en það er hverrar mínútu virði. Hún hefur þegar ráð- stafað 11 af 17 hvolp- um sínum og býst við að allir verðiþeir farnir í vikunni. Karen Tómasdóttir var með þrjú got í gangi í einu Tlkurnar skiptu sér niður á herbergin í húsinu en ein var á baðinu, önnuri svefnherberginu og sú þriðja á baðherberginu Japanskir Chin smáhundar eiga ættirsinar að rekja til Kína en heimalandþeirra er engu að síður Japan. Hér sést Ingibjörg £ Halldórsdóttir halda á Ottó og Pílar. Þeir eru tveggja ára og um 2-3 kiló að þyngd. Japanskur Chin er greindur, kátur og bliður, auk þess sem hann er barngóður og á skap saman með öðrum gæludýrum. Sýning HRFÍ um helgina Fjögur hundruð hundar sýndir Árleg haustsýning Hundaræktar- félags Islands verður haldin um helgina í reiðhöll Gusts í Kópavogi. AUs verða sýndir á fimmta hundrað hundar. Sýningin hefst á föstudag kl. 16:30 og verða sýndir hvolpar af fjöl- mörgum tegundum fram eftir kvöldi. Hundaræktarfélag íslands leggur mikinn metnað í að fá tU landsins virta dómara og að þessu sinni koma Elke Peper frá Þýskalandi og Ove Germundsson frá Svíþjóð. Auk þess munu tveir íslenskir dómarar, þau Guðrún R. Guðjohnsen og Sigríður Pétursdóttir dæma á sýningunni. Á laugardag og sunnudag hefst sýningin kl. 9 en þá verða fjölmargir vinnu- og veiðihundar sýndir auk íslenskra fjárhunda. Á sunnudag verða ýmsir smáhundar áberandi og jafnframt verða sýndir fuglahundar auk smala- og fjárhunda. Úrslit verða síðan kynnt um klukkan 15:30 á sunnudag og verður þá valinn besti ræktunarhópur og besti öldungur auk þess sem besti hundur sýningar- innar verður valinn. bergtjot@dv.is Ungir sem gamlir taka þátt í hunda- sýningum HRFÍ Hún er stolt og ánægð þessi unga dama með hundinn sinn á sýningu Hundaræktarfélagsins Dýralæknir DV . í framtíðinni verður tekið upp að nýju spurningar til dýralæknissins. Birtast svörin á fimmtudögum en lesendur geta sent inn spurn- ingar á net- fangið dyralaekn- ir@dv.is. Það er Helga Finnsdóttir dýralæknir sem svarar spurningum lesenda en hún er með sérmenntun í lækningum hunda og katta frá Konunglega dýralækna og landbúnaðar- háskaólanum í Kaupmannahöfn. Helga hefur verið við störf í 24 ára og hefur langa reynslu af að meðhöndla allar tegundir gæludýra og sinnir hún þeim á stofu sinni hér í Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.