Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 Sport DV i Ökumennirnir * slakari í F1 en í go-kart Fernando Alonso, hjá Renault, er einn af ökumönnum nýju kynslóð- arinnar ásamt Raikkonen og fleirum. Hann er ekki nógu ánægður með gæði þeirra ökumanna sem hafa verið að koma inn í Formúluna undanfarið og segir að það séu betri strákar að keyra go-kart bíla heldur en Formúlubíla. „Besti ökumaður nýju kynslóðarinnar er ekki að keppa í Formúlu 1. Þegar ég var að keppa í go-kart sá ég 15-20 betri ökumenn þar en eru í Formúlunni í dag,“ sagði Alonso sem er fyrr- verandi meistari á go-kart bílum. % Coulthard óhræddur Skotinn David Coult- hard segist ekkert vera að fara úr jafnvægi þótt Juan Pablo Montoya sé á leið til McLaren en Coulthard þarf á öllu sínu að halda ef hann ætlar að fá áfram samning hjá McLaren. „Ég hef trú á hraða mínum og hæfl- leikum og vonandi koma sigrar. Ég er bjartsýn á árið og ég ætla mér að vera áfram að keppa fyrir McLaren á næsta ári. Ég ætla mér heimsmeistara- titilinn," sagði Coulthard. * Schumi hungraður Michael Schumacher er klár í nýja tímabilið og segist jafn hungraður í sigur og hann hefur alltaf verið. „Eg skil ekki hvað er erfitt að skilja að ég hef enn hungrið til þess að sigra," sagði Schumacher. „Ef ég er ekki á toppnum mun ég berjast til þess að komast þangað á ný. Ég elska það sem ég geri og hef aldrei viljað gera neitt annað. Ég fæ líka greitt fyrir þannig að það er ekki erfitt að vera mótiveraður." Michael Schumacher vann sinn sjötta heimsmeistaratitil í fyrra. Hann er enn hungraður og vill þann sjöunda en það verður ekki auðvelt verk. ScM á verk lypir höndum DV Sport kynnti f gær þau fimm lið í Formúlunni sem eru lfldeg til þess að reka lestina en í dag skoðum við þau fimm lið sem talin eru munu berjast á toppnum. Michael Schumacher er mættur aftur til leiks. Einhverjir yrðu eflaust saddir af sex heimsmeistaratitlum en ekki Michael Schumacher. Hann segist enn vera hungraður og sú staðreynd að samkeppnin sé að aukast á toppnum virðist efla hann til frekari afreka. Kimi Raikkonen kom þægilega á óvart í fyrra og því verður pressa á honum að fylgja því eftir í ár. Það verður einnig fróðlegt að fylgjast með Montoya sem er ljúka samningi við Williams en hann hefur ákveðið að söðla um og ganga í raðir McLaren eftir þetta tímabil og því er líka spurning hvað David Coulthard gerir á árinu. henry@dv.is Juan Pablo Montoya, 28 ára Kólumbíumafiur Keppnir: 50, sigrar: 3, á ráspól: 11, hraðasti hringur: 9 Árangur á síðasta ári: 3. sæti Hans síðasta tímabil hjá Williams því á næsta ári gengur hann í raðir McLaren. Hæfileikarnir eru ótvíræðir en stöðugleikann hefur vantað hjá Kólumbíumanninum. Ralf Schumacher, 28 ára Þjóövetji Keppnir: 115, sigrar: 6, á ráspól: 4, hraðasti hringur: 7 Árangur á síðasta ári: 5. sæti Ekki enn þá sprungið almennilega út en þetta gæti verið hans ár. Gagnrýnendur telja samt að hann þurfi að sleppa prímadonnu- töktunum. Ef hann gerir það er leiðin greið. Williams-menn mæta til leiks með auglýsingu frá Baugsmönnum sem gæti hresst upp á það sem gagnrýnendur kalla ljótasta bflinn í Formúlunni. Hafa bankað hressilega á dyrnar síðustu tvö ár og aðstandendur liðsins eru orðnir mjög óþolinmóðir eftir árangri. Jamo Trulli, 29 ára ítali Keppnir: 112, sigrar: 0, á ráspól: 0, hraðasti hringur: 0 Árangur á síðasta ári: 8. sæti Mjög reyndur og hæfileikaríkur kappi sem einhverra hluta vegna nær ekki að sýna það f keppnum. En það kemur að því. Femando Alonso, 23 ára Spánveiji Keppnir: 32, sigrar: 1, á ráspól: 2, hraðasti hringur: 1 Árangur á sfðasta ári: 6. sæti Ótrúlega hæfileikaríkur ökumaður sem hefur þegar náð einum sigri. Mun halda áfram að bæta sig og bíta frá sér. Það voru margir hissa þegar Renault-menn skiptu algjörlega um vél en þeir hafa sannað að það var rétt ákvörðun. Bfllinn er kraftmikill og afar áreiðanlegur. Þeir eru enn á uppleið og munu minna hressilega á sig að þessu sinni og hala inn fleiri stig en í fyrra. Jenson Button, 24 ára Breti Keppnir: 65, sigrar: 0, á ráspól: 0, hraðasti hringur: 0 Árangur á síðasta ári: 9. sæti Eitt mesta efnið í Formúlunni í dag. Bíllinn hefur svikið hann hingað til en það horfir til betri vegar. Ætlar sér stóra hluti. Takuma Sato, 27 ára Japani Keppnir: 18, sigrar: 0, á ráspól: 0, hraðasti hringur: 0 Árangur á síðasta ári: 18. sæti Hugrakkur og áræðinn ökumaður sem hræðist ekkert. Veldur iðulega usla á brautinni í öllum skilningi þess orðs. Æfingarnar hafa gengið ótrúlega vel hjá BAR og þeir virðast vera klárir með mjög öflugan bfl sem á eftir að koma vemlega á óvart. Hafa tvo unga, efnilega og djarfa ökumenn sem munu ekkert láta hindra sig í því að ná árangri. Kimi Raikkonen, 24 ára Finni Keppnir: 50, sigrar: 1, á ráspól: 2, hraðasti hringur: 5 Árangur á sfðasta ári: 2. sæti Flestir veðja á að hann verði yngsti heimsmeistari sögunnar. Hefur klárlega getuna til þess að fara alla leið en bfllinn er spurningamerki. David Coulthard, 33 ára Skoti Keppnir: 157, sigrar: 13, á ráspól: 12, hraöasti hringur: 18 Árangur á síðasta ári: 7. sæti Coulthard er kominn á sfðasta söludag. Afar slakur í fyrra en kann enn listina að keyra og gæti vel bitið frá sér á þessu tímabili. Bfllinn hjá McLaren virkaði mjög illa á síðasta tímabili og þótt prófanir hafi gengið betur núna þá er enn nokkuð f land að því er Raikkonen segif. Bflnum hefur verið talsvert breytt og ef hann heldur út tímabilið gætu McLaren-ökumennirnir hæglega blandað sér í toppbaráttuna. Það er mjög áhugavert ár fram undan hjá McLaren sem síðan fá Montoya á næsta ári. Michael Schumacher, 35 ára Þjóöveiji Keppnir: 194, sigrar: 70, á ráspól: 55, hraðasti hringur: 55 Árangur á síðasta ári: Heimsmeistari Schumacher er eins og gott rauðvín - verður betri með aldrinum. Hann er enn hungraður, beittur og gerir aftur atlögu að titlinum. Rubens Baxrichello, 32 ára Brasilíumaður Keppnir: 178, sigrar: 7, á ráspól: 9, hraðasti hringur: 10 Árangur á síðasta ári: 4. sæti Fékk viðurkenningu og nýjan tveggja ára samning hjá Ferrari. Mætir til leiks fullur sjálftrausts og ef að líkum lætur á hann eftir að gera enn betri hluti á þessu tímabili en í fyrra. Ferrari-menn hafa verið í felum með nýja bflinn og nánast bara æft á honum í Ítalíu bak við luktar dyr. Því telja menn að þeir eigi einhverja ása upp í erminni. Það er klárt að bfliinn er hraður en sérfræðingar hafa sett spurningamerki við Bridgestone-dekkin sem gætu reynst þeim erfið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.