Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Blaðsíða 25
DV Fókus FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 25 Hinsegin bíódagar eru haldnir í Regnboganum í annað sinn, og boðið er upp á bíómyndir um samkyn- hneigð frá hinum ýmsu löndum. Hollywood hefur verið mun frjálslyndari í garð samkynhneigðra und- anfarið, en eru þeir enn litnir hornauga þar? DV-FÓKUS rifjar upp nokkrar kvikmyndir þar sem sam- kynhneigð kemur við sögu. Hommar og lesmir í bíómyndum Ekki lengur skúrker, en ssmt ógmfufólk? í einni fyrstu myndræmu sem til er, nokk- urra mínútna mynd sem var tekin upp í stúdíó Edison árið 1895, dansa tveir karlmenn saman og nefnist myndin The Gay Brothers. Það var þó ekki fyrr en á síðasta þriðjung síðustu aldar sem að myndir urðu gerðar frá sjónarhól sam- kynhneigðra. Fáum við nú að sjá sumar af helstu myndum sem fjalla um samkynhneigð á Hinsegin dögum sem hefjast í Regnbogan- um í dag. Fyrsta íslenska heimildarmyndin Meðal mynda sem eru sýndar er fyrsta ís- lenska heimildamyndin um samkynhneigða, Hrein og bein, eftir Hrafnhildi Gunnarsdóttir og Þorvald Kristinsson. Aðrar helstu myndir eru: Einstein hvatalífsins frá Þýskalandi, sem fjallar um Dr. Hirschfeld sem var baráttumað- ur fyrir réttindum homma, en dó í útlegð eftir valdatöku nasista, Sæl eru þau sem þyrstir frá Noregi, sem fjallar um lesbísku leynilögreglu- konuna Hanne Wilhelmsen, og hina hollensku Já Systir Nei Systir, sem fjallar um gistiheimili þar sem ólíkt fólk kemur saman, en aðalleik- konan Loes Luca er meðal gesta kvikmynda- hátíðar. Hátíðin hefst í Regnboganum í kvöld klukkan 20 með frumsýningu Já Systir Nei Systir, og mun Luca verða viðstödd. Hátíðinni lýkur á sunnudaginn, þann 14. mars, og er síð- asta myndin hin franska Þú kemst yfir þetta. Nánari upplýsingar um sýningartíma má fá í bíóauglýsingunum annars staðar í blaðinu. Dulinn boðskapur? Þó að kvikmyndir í dag geti víðast hvar óheft tekið á málum samkynhneigðra hefur það ekki alltaf verið svo. Lengst framanaf fengu samkynhneigðir frekar vonda dóma í bíómyndum og voru yfirleitt í skúrkshlutverk- inu. Þeir hafa orðið mun meira áberandi und- anfarin ár, og eru þessa dagana sjaldnast skúrkar. Þó fer sjaldnast vel fyrir þeim á hvíta tjaldinu, svo að maður getur velt því fyrir sér hvort það sé einhver dulin boðskapur þar á ferð? Lítum aðeins á nokkrar myndir þar sem samkynhneigðir koma við sögu: ROCKY H0RR0R PICTURE SHOW (1975) Klæðskiptingurinn Frank-N-Furter reynir að búa til hinn fullkomna karlmann, en þegar á hólminn er komið vill sköpunarverk hans ekki þýðast hann. Hin ofurvenjulegu Brad og Janet neyðast þó til að endurskoða kynhneigð sína í mynd sem nær að grípa þá ánægju sem fólst í frjálsunt ástum af ýmsu tagi áður en eyðni kom til sögunnar. CRUISING (1980) Raðmorðingi veiðir samkynhneigða karl- menn og drepur þá. A1 Pacino er lögga sem þarf að fara inn í undirheim homma- baranna og þykjast vera einn af þeim til að finna morðingj- ann. Heimur sam- kynhneigðra er hér skítug, leður-, sadó- masóveröld. THREESOME (1994) Josh Charles býr með Stephen Baldwin, og Lara Flynn Boyle flytur inn á þá. Hún er skot- inn í Josh, en Josh hefur tilfmningar gagnvart Stephen. Josh sefur hjá Löru en ákveður að hann sé meira fyrir karlmenn gefinn, og endar með því að finna ástina í örmum annars manns í einni af fáum myndum þar sem fer vel fyrir hinum samkynhneigða. THE ADVENTURES 0F PRICILLA, QUEEN 0F THE DESERT (1994) Mynd sem getur fengið jafnvel rammgagnkyn- hneigðasta karlmann til að vilja yfirgefa allt og halda út á þjóðveginn á sendiferðabíl í dragi. Hefur verið lýst sem bestu áströlsku drag- mynd allra tíma, og eru það orð að sönnu. MY OWN PRIVATEIDAHO (1991) Byggð á leikriti Shakespeare, Hinriki IV. River Phoenix leikur hinn samkynhneigða Mike sem stundar vændi og er ástfanginn af starfsbróðir sínum Scott. Scott, leikinn af Keanu Reeves, er hins vegar af ríkum ættum og snýr á endanum aftur til ríkisbubbalífernis og kvenmannsásta, en River deyr. BASICINSTINCT (1992) Michael Douglas er skotinn í hinni tvíkyn- hneigðu og morðóðu (eða er hún það?) Sharon Stone. Kærasta hennar verður afbrýð- issöm út í hann og reynir að drepa hann. Samkynhneigðir reiddust myndinni mjög fyrir að sýna þá í slæmu ljósi. PHILADELPHIA (1993) Fyrsta Hollywood stór- myndin sem fjallar um eyðni. Tom Hanks er samkynhneigður maður sem þarf að kljást ekki bara við sjúkdóminn heldur einnig ranglátt kerfi og fordóma eigin lögfræðings. Virðingar- vert framtak, þó voru ekki allir á einu máli um hvemig úl tókst. SPARTACUS(1960) Laurence Olivier kaupir þrælinn Tony Curtis og lætur hann baða sig. Á meðan heldur hann ræðu um að sumir séu hrifnir af sniglum, aðr- ir af ostrum og sumir af hvorutveggja. Róm- verjar voru frjálslyndir á kynlífssviðinu, en það þarf vart að taka fram að Olivier er hér í hlut- verki illmennis. Spartacus nafnið hefur samt sem áður verið notað sem nafn á tímarit sam- kynhneigðra. DIAMONDS ARE FOREVER (1971) Mr. Wint og Mr. Kidd em tveir bestu leigu- morðingjar erkióvin- ar Bonds, Mr. Blofeld. Þeir virðast einnig vera bullandi samkynhneigðir, og haldast yfirleitt í hendur. Hinn rammgagnkyn- hneigði Bond kemur þeim fyrir kattarnef og gerir heiminn á ný ömggan fyrir gagnkyn- hneigt fólk til að athafna sig í. BRAVEHEART(1994) Edward II. Englandskonungur var að öllum líkindum samkynhneigður. Hér er honum þó lýst sem illmenni og aumingja. Pabbi hans hendir kærastanum út um glugga, og Mel tek- ur sjálfur að sér það karlmannsverk að barna konuna. Melurinn fékk Óskarinn fyrir, og er þessa dagana að ráðast á gyðinga. BOUND (1996) Gina Gershon er nýkomin úr fangelsi og tælir Jennifer Tilly til að svíkja kærasta sinn og hafa af honum peninga. Mynd um lesbíur sem er líklega fyrst og fremst ætluð gagnkynhneigð- um karlmönnum. AS G00D ASIT GETS (1997) Greg Kinnear er samkynhneigður listamaður sem er laminn, svo að hinn fordómafulli Jack Nicholson þarf að hugsa um hundinn hans. Jack lærir þó að á endanum að meta nágranna sinn. Cuba Gooding leik- ur kærasta Greg, en við fáum aldrei að sjá ast. MULHOLLAND DRIVE (2001) Coco er eigandi fjölbýlishúss sem tekur hina óþekktu leikkonu Betfy (Naomi Watts) með sér heim. Þar finnur hún Ritu, sem hefur lifað af bflslys, og ástir takast með þeim. Hvað nokkuð af þessu táknar er, eins og yfirleitt í David Lynch myndum, ómögulegt að segja til urn. Charlize Theron leikur vændiskonu sem er fyrir löngu búin að fá ógeð á líf- inu. Hún finnur í skamma stund ham- ingjuna þegar hún fellur fyrir hinni samkynhneigðu Christinu Ricci, en allt fer á versta veg og margir liggja í valnurn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.