Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004
Sport DV
Guðmundur
til reynslu hjá
Keflavík
Framherjinn Guðmund-
ur Steinarsson hefur gengið
frá félagsskiptum úr Fram í
Keflavík. Rúnar Arnarson,
formaður knattspyrnu-
deildar Keflavíkur, staðfesti
í samtali við DV Sport í gær
að Guðmundur væri geng-
inn í raðir Keflvíkinga en
hefði ekki skrifað undir
samning við félagið. „Hann
verður til reynslu hjá okkur
til að byrja með því hann
hefur ekki verið að sýna
neitt upp á síðkastið.
Guðmundur var sáttur við
þetta og síðan verður bara
að koma í ljós hvernig hann
stendur sig," sagði Rúnar.
Hoddle tekur
ekki við Sout-
hampton
Glenn Hoddle hafði sótt
um knattspyrnustjóra-
stöðuna hjá Southampton
en flest hafði bent til þess
að hann myndi taka við
liðinu eftir að Gordan
Strachan ákvað að hætta.
Hoddle sagði að það væri
hans mat að hann hefði
ekki fullan stuðning
stjórnar Sotuhampton og
því hefði hann ákveðið að
draga sig í hlé. „Þetta var
erfið ákvörðun en ég veit að
liðinu mun ganga vel í
framtíðinni," sagði Hoddle.
Eriksson velur
hóp í maí
Sven Göran Eriksson,
þjálfari enska landsliðsins í
knattspyrnu, hefur gefið út
þá yflrlýsingu að hann
ætlar að velja 23 manna
hóp fyrir Evrópukeppnina í
Portúgal 17. maí næstkom-
andi. Þetta þýðir að
leikmenn enska liðsins hafa
aðeins einn vináttuleik,
gegn Svíum í Gautaborg 31.
mars næstkomandi, til að
sýna sig fyrir Eriksson.
Hann hefur sagt að
stærstur hluti hópsins sé
þegar orðinn klár en aðrir
berjast um lausar stöður.
Það horfir til breyttra tíma á Stamford Bridge því stjórnarformaður Chelsea síðustu 22
hættur störfum hjá félaginu eftir viðburðaríka stjórnartíð.
Hinn 72 ára gamli Ken Bates
hefur ákveðið að hætta sem
stjórnarformaður enska úrvals-
deildarliðsins Chelsea eftir 22 ára
starf. Þessa ákvörðun tók Bates á
þriðjudaginn en umsvif hans og
völd hafa stórlega minnkað síðan
Peter Kenyon tók við sem
yflrmaður knattspyrnumála hjá
félaginu í byrjun sfðasta mánaðar.
Tuttugu og tvö ár eru liðin síðan
Ken Bates keypti félagið iyrir 128
krónur íslenskar, auk sem það dró á
eftir sér langan skuldahala. Hann
hefur eytt undanförnum tveimur
áratugum í að byggja upp Chelsea-
liðið og umgjörðina í kringum
félagið og tekist nokkuð vel til.
Stamford Bridge, heimavöllur
Chelsea, er stórglæilegur völlur og
Chelsea-þorpið, sem samanstendur
af hótelum og verslunum, er
hugarsmíð Bates frá upphafi til
enda. Hann fékk Glenn Hoddle til að
taka við liðinu og náði að lokka bæði
Ruud Gullit og Gianluca Vialli til
félagsins. Chelsea vann enska
bikarinn tvívegis í stjórnartíð Bates,
árið 1997 og 2000 auk þess sem árið
1998 skilaði félagið í hús bæði enska
deildarbikarnum og sigri í
Evrópukeppni bikarhafa. Það var þó
svo um mitt ár í fyrra að Bates var
kominn að fótum fram. Skuldir
Chelsea voru orðnar gífurlegar og
allt virtist stefna í gjaldþrot.
Riddari á hvítum hesti
Þá kom til sögunnar Rússinn
Roman Abramovich, eins og riddari
á hvíta hestinum. Abramovich keyp-
ti félagið og borgaði Bates 17 mill-
jónir punda auk þess sem hann
yfirtók allar skuldir þess. Bates fékk
að vera stjórnarformaður áfram en
völd hans minnkuðu eftir því sem á
leið og urðu nánast engin þegar
Peter Kenyon kom til starfa í byrjun
febrúar.
Ágreiningur um stefnu
Þegar Bates tilkynnti ákvörðun
sína um að hætta sagði hann að
hann vildi hætta á réttum tíma, á
meðan allt léki í lyndi. Samkvæmt
samningi við Abramovich þá var
honum heimilt að vera stjórnar-
formaður út næsta tímabil og gerast
síðan lífstíðarforseti félagsins. Hann
afþakkaði það hins vegar og ákvað
að pakka saman.
„Sumt að því sem var samið um í
júlí stóðst ekki þegar á reyndi. Það er
best fyrir félagið að Peter Kenyon fái
að reka það eins og hann viO án þess
að hafa mig á öxlinni á sér allan
tímann. Það hafa orðið árekstrar á
milli tveggja menningarheima
annars vegar og austrænna og
vestrænna gilda hins vegar," sagði
Bates.
Það er kaldhæðnislegt að metn-
aður Abramovich um að gera
Chelsea að besta liðið í Evrópu með
öllum tiltækum ráðum hafi á
endanum hrakið Bates í burtu því að
það var einnig það sem Bates stefndi
að aUan tímann.
Það er þó samdóma álit manna í
Englandi að Bates hafi ekki sagt sitt
síðasta orð. Hann hefur á
undanförnum árum sagt skoðanir
sínar á mönnum og málefnum
umbúðalaust og mun væntanlega
halda áfram að gera það þótt ekki
stýri hann Chelsea lengur. oskar@dv.is
„Sumt að þvísem var samið um íjúlístóðst
ekki þegar á reyndi. Það er best fyrir félagið að
Peter Kenyon fái að reka það eins og hann vill
án þess að hafa mig á öxlinni á sér tímann."
Tíu mánaða fjarvera Chris Webber
er enn kóngurinn í Sacramento
Chris Webber lék í fyrrinótt sinn fyrsta leik með Sacramento Kings í
NBA-deildinni í körfubolta eftir að hafa verið frá í tíu mánuði vegna
alvarlegra hnémeiðsla og átta leikja leikbanns að auki. Það var þó ekki að
sjá á tilburðum Webbers í fyrsta leiknum gegn LA Clippers að hann hafði
ekki spilað sfðan í annarri umferð úrslitakeppninnar fýrir tæpu ári síðan.
Webber skoraði 26 stig, tók 12 fráköst og gaf 4 stoðsendingar á þeim 30
mínútum sem hann spilaði og Sacramento vann 113-106 sigur á Los
Angeles Clippers - sinn tólfta heimaleik í röð.
„Það fylgir því mjög góð
tilfinning að geta loksins hjálpað
liðinu sínu í stað þess að vera aðeins
maðurinn sem truflar einbeitingu
þess í fjölmiðlum," sagði Webber
eftir leikinn en hann skoraði 9 stig
og tók 6 fráköst strax í fyrsta
leikhluta og var að skora allskonar
körfur í leiknum.
Webber spilaði þó ekkert síðustu
4 mínúturnar þegar mennirnir sem
hafa skilað liðinu í efsta sæti
deildarinnar sáu um að landa 44.
sigrinum í 59. leik tímabilsins. Þessi
fyrsti leikur Webber var ekki eftir
bókinni því hann gerði mun meira
en menn bjuggust við og þegar á
reyndi í lokin settist hann á bekkinn.
„Ég ætla að passa upp á hann og að
hann spili ekki of mikið til að byrja
með,“ sagði Rick Adelman þjáfari
Kings sem kallaði Webber á bekkinn
á lokamínútunum.
„Webber var víst enn ryðgaður.
Ég kvíði fyrir að mæta honum þegar
hann er kominn á fullt á ný,“ sagði
Mike Dunleavy, þjálfari Clippers í
léttum tón.
Webber kom inn í byrjunarliðið í
stað Bard Miller sem lét það ekki á
sig fá heldur kom með 23 stig og 9
stig af bekknum. Vlade Divac lék líká
minna fyrir vikið en var samt með 12
stig, 10 fráköst og 8 stoðsendingar
og það er ljóst að Sacramento verða
ekki auðsigraðir í úrslitakeppninni.
„Ég býst ekki við of miklu og það
verður örugglega langur aðlögunar-
tími fyrir mig. Eg er búinn að horfa á
liðið spila frábærlega undanfarna
mánuði og ég ætla að passa að
breyta ekki of miklu í spilamennsku
þess,“ sagði Webber sem ætlar að
passa sig að láta ekki ákafan
stuðning valda því að hann fari að
reyna óskynsama hluti.
„Aðalatriðið er að við höldum
áfram að vinna og að ég geti lagt
mitt af mörkum til þess að við getum
unnið titilinn."
ooj@dv.is