Akranes - 10.09.1943, Side 12
80
AKRANES
Blaðið
hefur ekki gert mikiS að því að auglýsa sig og
útbreiða. Nokkrir menn, blöð og tímarit hafa
hinsvegar getið þess mjög loísamlega. Sérstak-
lega próf. Guðbr. Jónsson í Morgunblaðinu og
mag. Sigurður Skúlason með leiðara í „Sam-
tíðinni. Blaðið er mjög þakklátt fyrir þessar
hlýju kveðjur, sem því er vitanlega mikill
styrkur að í bráð og lengd. Slíkt er blaðinu
hin mesta hvatning til að gera betur, og mun
það reynt eftir mætti.
Nýlega var allmörgum mönnum úti um land
sent það sem komið var út af þessum árgangi,
með vinsamlegri bón um að þeir gerðust kaup-
endur, ef þeir sæu sér það fært. Annars að
senda blaðið aftur eða gera orð um, hvort þeir
væru kaupendur eða ekki. Ef marka má það,
sem komið er, má segja að „innrásin“ hafi
gengið eftir áætlun, því það eru ekki fleiri en
búist var við, sem hafa „skirpt“ á blaðið og
sent það til baka. Einn af þeim, sem blaðið var
sent, var ritstjóri eins af elztu timaritum lands-
ins. Hef ég keypt það tímarit um fjölda ára,
geri enn og á það frá upphaíi. Hann endur-
sendi blaðið um hæl, og lifir sýnilega ekki í
þessu efni eftir kenningunni: „ÞaO, sem þér
viljiO að mennirnir geri yOur, skuluO þér og
þeim gera“. Hann hefur sjálfsagt nógu marga
kaupendur fyrir sitt tímarit til þess að hann
geti liíað, og þar með er hans hugsjón orðin
að veruleika.
í fyrra var blaðið nokkrum sinnum sent út-
varpinu. Var án sérstakrar beiðni gert ráð fyr-
ir að a. m. k. útkomu þess yrði getið, og ef til
vill innihalds, eins og þar er oft og tíðum gert
a. m. k. um sum blöð og tímarit. En það virð-
ist sem þetta blað sé ekki fætt undir „útvarps-
stjömu", því Ktt eða ekki hefur þess þar verið
getið.
Blaðið vonar því, að þeir kaupendur þess,
sem líkar það sæmilega, geri sitt til að afla
því fleiri kaupenda, því þess er vitanlega mikil
þörí. Það hvétur þá, sem að þvi standa að gera
betur, og flýtir vitanlega fyrir stækkun þess
og aukinni fjölbreytni. Er með öðrum orðum
hin mesta trygging fyrir að það verði betra
blað. Ó. B. B.
Alltaf í fararbroddi.
Yfir 50 ár hefur Góðtemplarareglan á íslandi
verið í fararbroddi um ýms framfara-, menn-
ingar- og mannúðarmál. Aðeins eitt dæmi þess
má finna í hinu mikla og markvissa starfi stúk-
unnar Framtíðin á Siglufirði, með stofnun og
starírækslu sjómanna- og gestaheimilis þar um
nokkur undanfarin ár. Stofnun þess og starf-
ræksla hefur verið með þeim myndarbrag, að
stúkan hefur hlotið fyrir einróma loí og virð-
ingu. Þökk allra þeirra sjómanna er notið hafa,
sem og allra þeirra er skilja þörí sliks heimilis,
og meta vilja, mannrækt og menningu í stað
óhófs og ómenningar í hverri mynd sem er.
Gjafir sjómanna og útgerðarmanna til heim-
ilisins voru árið 1942 kr. 16151.60. Má af því
nokkuð marka hug þeirra og álit á þvi. Verða
þessar gjafir þó vonandi mun meiri á yfir-
standandi ári.
Sjómenn! Skoðið þetta og starfrækið sem
heimili yðar í sönnustu merkingu þess orðs. Þá
á það langt lif og veigamikið fyrir höndum.
Það á að verða og getur orðið griðastaður og
gróðrarreitur vaxandi þroska og menningar ís-
lenzkra sjómanna, og þá fyrst er takmarkinu
fyllilega náð. Ó. B. B.
Vonandi vakna menn!
Svo sem menn muna birtist hér i blaðinu fyr-
ir nokkru löng grein um ástand og öngþveiti í
vélkaupamálum voruin vogna fiskiflotans. Grein
þessi virðist hafa vakið nokkra umhugsun og
eftirtekt manna. Vísir, Tíminn og Morgunblað-
ið hafa nýlega skrifað greinar um málið; þar
sem á minnst grein er að meira eða minna
leyti lögð til grundvallar þeim skriíum.
Það er hin mesta nauðsyn, að mönnum skilj-
ist, að hér sé um að ræða hið mesta öryggis-
og fjárhagsmál fyrir þjóðarheildina. Þess held-
ur, sem þarfimar hljóta að fara stórum vaxr
andi hjá þjóð, sem i þessum efnum sem öðrum
er að byrja að fylgjast með tímanum.
Vegna langvarandi viðleitni Fiskifélagsins og
síðar Vélstjóraskólans, hefur þekkingu manna
á stærri vélum og meðferð þeirra aukist veru-
lega. Hinsvegar hefur nú á síðustu árum auk-
ist verulega notkun smávéla í svo nefndum
trillubátum. í mjög mörgum tilfellum gæta
þeirra menn, sem litla eða enga fagþekkingu
hafa til brunns að bera í þeim efnum. Það væri
þess vegna hin mesta nauðsyn að fyrir þá menn
verði líka haldin námsskeið. Þyrfti ef til vill
ekki að gera eins miklar kröfur til manna í
þeim efnum sem þeirra er meðhöndla stærri
vélar. Mætti sjálfsagt finna einn mann heima
í hverri veiðistöð, sem gæti geíið nægjanlegar
leiðbeiningar í þessum efnum. Það þarf aðeins
að hvetja menn til þessa eða gangast fyrir
framkvæmd í þessa átt. Væri þarft og gott, ef
Fiskifélagið vildi beita sér fyrir slíku. Þá væri
það ef til vill vel þegið og til varanlegs gagns
ef Fiskifélagið gæfi út gagnorðan leiðarvísir
um meðferð þessara litlu véla. Auk þess, sem
margir hafa litla þekkingu í þessum eínum,
eins og áður er sagt, veldur vanhirða og trassa-
skapur miklum skemmdum og tjóni á vélum
þessuni. Allt þetta þarf að brýna fyrir mönn-
um, og það rækilega. Væri gott að Fiskifélagið
tæki sér fram um þetta sem margt annað gott
frá byrjun sinnar tilveru.
Ó. B. B.
Vatnssalerni.
í síðasta tölublaði Akraness skrifaði Árni
Ámason héraðslæknir athyglisverða grein um
nauðsyn þess að sem flestir leggi niður kamra
og útvegi sér vatnssalemi. Til þessa hefur það
verið erfiðleikum bundið að fá vatnssalemi
keypt, og þótt þau hafi fengist, hefur oft reynst
tafsamt að fá menn til þess að setja þau niður.
Gísli Sigurðsson Hjarðarbóli, hefur eftir tilmæl-
um bæjarstjóra tekið að sér að útvega vatns-
salemi og setur hann þau einnig niður fyrir
fólk, og er hér um mikinn hægðarauka að
ræða. Nauðsyn ber til þess, að þeir sem ætla
að notfæra sér tækifæri þetta, láti Gísla vita
sem fyrst, því það er ekki auðvelt að útvega
tæki þessi. Gísli mun jafnframt leiðbeina. fólki
með það á hvem hátt helzt sé hægt að koma
salemum fyrir í húsum, þar sem ekki er gert
sérstaklega ráð fyrir þeim.
Eins og Árni bendir a í grein sinni, er kostn-
aður við salernahreinsun mjög mikill, sér í lagi
þegar þess er gætt, að vinna verður að hreins-
uninni að nóttu til. Vafalitið verður salema-
hreinsunargjald nokkuð hátt, og ætti að vera
hærra á þeim húsum, sem eiga aðgang að hol-
ræsum en öðrum. Þótt vatnssalemi séu dýr nú
á tímum, geta menn sparað sér árlegan skatt
með því að setja vatnssalerni í hús sín í stað
kamranna.
Trjáreiturinn innan við bæinn.
Fyrir tíu árum eða svo var sáð birkifræi í
þennanr reit, sem er mýrlendi. Framan af fór
þessu mjög lítið fram, en undanfarin fjögur ár
hefur þetta breytzt til mikilla rauna. Nú eru
hæstu hríslumar svo háar sem myndin sýnir.
Síldveiðarnar.
Svo sem venjulega fóru nokkrir bátar héðan
norður til síldveiða í sumar. Þessir bátar eru
komnir heim og hafa aflað sem hér segir:
Lv. Ólafur Bjarnason 20293 mál. Hann varð
þo vegna vélbilunar að fara hingað suður í
sumar til viðgerða.
Mb. Sigurfari 13800 máL
Mb. Fylkir 11523 mál og tunnur. Hann tafðist
líka nokkuð í sumar vegna vélbilunar.
Mb. Sjöfn 7146 mál og tunnur.
Mb. Aldan ca. 6000 mál og tunnur.
Nokkrir bátar eru enn við veiðar fyrir norð-
an og verður aíla þeirra getið í næsta blaði.
Nokkrir bátar héðan hafa og stundað rek-
netaveiðar hér í ílóanum í sumar. Hefur afli
þeirra verið góður, og er nú sem hér segir:
Mb. Ægir frá 2. 8. til 8. 9. 2215 tunnur.
Mb. Höfmngur frá 1. 8. til 8. 9. 1664 tunnur.
Mb. Haraldur frá 5. 8. til 8. 9. 1628 tunnur.
Mb. Ver frá 3. 8. til 8. 9. 1591 tunna.
Mb. Víkingur frá 2. 8. til 8. 9. 1482 tunnur.
Mb. Ármann frá 6. 8. til 8. 9. 1271 tunna.
Mb. Egill Skallgr. frá 12. 8. til 8. 9. 1039 tn.
Aðkomubátar 187 tunnur.
Samtals 11077 tunnur.
Af þessu var saltað til útflutnings 4494 tunn-
ur, en hitt hefur venð fryst til beitu.
Sigurður Guðmundsson lögregluþjónn
hefur nýlega sagt upp starfi sínu. Mim hann
framvegis vinna að húsgagnsmíði. Sigurður hef-
ur undanfarið gegnt lögregluþjónsstarfi með
mestu prýði og aflað sér mikilla vinsælda.
Skurðgrafan að verki.
Eins og getið var um í síðasta blaði var fyrir
nokkru gerð tilraun með að nota skurðgröfu
við vegagerð. Mynd þessi sýnir tæki þetta í
notkun við vegavinnu niðri í bænum.