Akranes - 01.10.1947, Page 17
Íam6/>ús3uniy(
/rró/a /on
. ©
í-í:
, , ■'» -
m
óAarfa.k'oK
@
Á'S'oss v/A.
Hér kemur enn kort af Skaganum. Eru bœir og býli sem byggst. hafa á tímab i þessa kafla, merkt inn á kortið í þeirri röð sem þau hafa byggst, og greint er
í þessari grein. Mei*king þessi ber og með sér hvar þau hafa sta&ið. Fyrsta kort þessa þáttar er í 4. tbl. 19461 má þar sjá hvar fyrstu jarftirnar stóðu. . . .
35- Hjallasandur.
Þessi bær er byggður 1840, af Ólafi
nokkrum Ólafssyni, sem í manntalinu
þetta ár, er talinn 40 ára. Bústýra hans
er þá Herdís Guðmundsdóttir, 45. ára. —
Árið 1844 er þarna húsbóndi Þorvaldur
Gíslason, 35 ára, og hin sama Herdís, sem
þá er talin kona hans. Hjá þeim er Sig-
ríður dóttir hans, 7 ára. Ennfremur Katrín
Ásmundsdóttir, móðir hans.
Ekki veit ég nákvæmlega hvar Hjalla-
sandur stóð. Liklega nokkru vestar en
Grund er nú, og ofar en Böðvarshús. Árið
1843 er þarna Hákon Gíslasbn húsm., með
son sinn Árna, þá 7 ára gamlan. Þar er þá
og Jón Jónsson lausamaður, 37 ára. 1845
er þerna sama fólk, úr þvi er þetta býli
ekki til. Árið 1848 eru Þorvaldur og Her-
dis í ívarshúsum.
I fyrsta kafla þessa þáttar, var gerð
grein fyrir fyrstu jörðum Skagans, og ör-
lítið minnst á verbúðir sem þeim fylgdu.
í þessum kafla hefur nú verið getið þeirra
bæja eða býla, sem um lengri eða skemmri
tíma hafa verið í byggð frá 1706—1840.
Þessir bæir eða býli eru:
!3- Hannesarhús. (Skamman tíma byggt)
M- Sæmundarbúð(Skamman tíma byggt)
t5- Norðurbúð. (Skamman tíma byggt).
16. Þilbúð. (Skamman tíma byggt).
Árnabúð. (I>ar er búið svo vitað sé
frá 1785—1903).
A K R A N E S
18. Hestbúð. (Þar er ekki lengi búið).
19. Leirárbúð. (Þar er ekki lengi búið).
20. Nýjibær. (Þar er búið svo vitað sé
frá 1785—1941)-
21. Skarðsbúð. (Þar enn búið).
22. Búðin. (Þar var ekki lengi búið).
23. Krosshús. (Byggt fyrir 1700 og þar
búið til 1914).
24. Óssbúð. (Þar var ekki lengi búið).
25. Melshús. (Byggt fyrir 1700 og er
uppistandandi enn).
26. Nýlenda. (Byggt fyrir 1800, og þar
búið enn).
27. Bakki. (Byggt um 1800, og þar búið
enn).
28. Brekkubær. (Byggt um 1800, og þar
búið enn).
29. Göluhús. (Byggt eftir 1800, og þar
búið enn).
30. Geirmundarbær. (Byggður 1813, og
þar búið enn).
31. Gata. (Fyrst getið 1826, og ekki lengi
í byggð).
32. Litlibær. (Fyrst getið 1826. J>ar búið
til 1911).
33. Bjarnabúð. (Fyrst getið 1829. Þar búið
fram undir 1870).
34. Grund. (Byggð 1835, og þar búið
enn).
35. Hjallasandur. (Þar er skamma stund
búið).
öll þessi býli eru merkt inn á meðfylgj-
andi kort af Skaganum, og má af því gera
sér ljósa grein fyrir hvar þau hafa staðið
Af öllum þessum bæjum og býlum eru
aðeins þessi enn við lýði:
Skarðsbúð.
Melshús.
Nýlenda.
Bakki.
Brekkubær.
Götuhús.
Geirmundarbær.
Grund.
Auk þess má segja að enn séu i byggð
þessi býli af hinum upphaflegu jörðum
Skagans, samkvæmt 1. kafla þessa þáttar,
sjá 4. tbl. 1946:
fvarshús.
Teigakot (Akur).
Neðri-Sýrupartur.
Bræðrapartur.
Lambhús.
Háteigur.
Miðteigur.
Línan þvert yfir Skagann er merkja-
lína. Þar liggur nú gatan Akurgerði.
Hér lýkur þá 2. kafla þessa þáttar. 3.
kafli: „ByggSin eykst og færist ofar,“ nær
yfir tímabilið frá 1840—1870, og mun
hefjast i næstu blöðum.
125