Akranes - 01.11.1949, Síða 5

Akranes - 01.11.1949, Síða 5
var hann frá 1931 til 1946. 1 kirkjuráði frá 1932. Formaður prestafélags Hall- grímsdeildar frá stofnun þess og meðan heilsa hans leyfði. Auk alls Jiessa hafði hann á hendi ý mis opinber störf í sóknum sinum. Hans fjölþætta alhliða þekking á ýms- um málum gat eigi dulizt samtíð hans, svo og það, að hann var sannur vökumaður sinna samborgara á öllum eða flestum sviðum þjóðlífs vors, því enda þótt hann væri ákaflega hlédrægur maður, þá gat hann illa dulið hve vakandi hann var um öll vandamál, er úr þurfti að leysa, og ráða fram úr á hverjum tima. Hann var svo ákaflega trúr sonur ætt- jarðar sinnar að hann taldi sig ekki hafa leyfi til að vera hlutlaus í neinu því máli, er varðaði heill og hamingju lands og þjóðar. Þekking hans á flestum málum varð- andi atvinnulíf þjóðarinnar var undraverð, því enda þótt að hann hefði eigi sjálfur séð eða þekkt hlutina af eigin raun, þá var minnið svo trútt að geyma allt, er hann las eða heyrði af frásögn annara, að slíks þekktust fá dæmi. Hitt duldist varla, að af tím- anlegum eða verklegum mál- um varðandi atvinnulif lands- manna var honum einna ljúf- ast að ræða um ræklun jarðar og störf landbóndans, þar hafði hann líka mesta eigin reynslu. Honum var í blóð borin ást og virðing á starfi sáðmannsins, er erjar jörðina, virðing fyrir starfi þess manns, er vinnur án afláts i samvinnu við sól og regn. og felur sig forsjón þess, er skapað hefur alla hluti. Hitt er víst, að Þorsteinn Briem kunni jafnvel að meta hvert vel og trúlega unnið starf, en ég held að hóndinn hafi verið honum lnigstæðastur, hann skildi hann bezt, og e. t. v. mat hann mest. Ég hefi nú dvalið við minningu manns- ins Þorsteins Briem, og vissulega her hann þar hátt í hugum allra þeirra er kynntust honum, en hæst mun hann þó gnæfa, og lengst lifa í minnum okkar Akurnes- inga sem prestur og kennimaður. Minning mín um hann sem kirkjuhöfðingja og höfuðklerk er mér dýrmæt, hún er eitt af því sem verður mér ógleymanlegt. Ég veit að þar tala ég fyrir munn fjölda annarra. Þess ber eigi að dylja, að hæfileika mikla hafði guð gefið honum, en hæfi- leikar og snilligáfa mega sín lítils ef eigi er að verki sterkur vilji og sjálfsagi. En ásamt þessum fögru dyggðum bar hann í brjósti heita guðstrú og traust, ásamt fagurri lífsskoðun hins göfuglynda, gagn- menntaða manns, er horfði og hugsaði langt ofanvið allt það hversdagslega og neikvæða í lífinu. Samfara þvi var skapfesla og kraftur, er knúði til dáðrikra átaka í ræðu og riti, mál hans var afburða fagurt í daglegu tali og þróttmikið ög meitiað, er hann rit- aði eða flutti tungu feðranna, enda unni hann móðurmáli sinu heitt og innilega, eins og öllu því, sem þjóðlegt var. Við, sem nutum andlegrar leiðsögu hans í fjórðung aldar, höfum margs að minnast, þegar okkar ástsæli sálusorgari er kvaddur liinstu kveðju. Minningarnar streyma fram hver annari hugþekkari. Til dæmis, meðan presturinn tók manntal og húsvitjaði.Það var unaðslegt að fá hann sem gest, ef hann hafði tíma til að dvelja stutta stund og ræða við heimilismenn. Manni fannst, þegar hann var farinn, að eitthvað alveg óvenju hugnæmt hefði hlotnast húsi sínu. Þá var það alkunnugt meðal vor, hve mikil blessun var að fá heimsókn af hon- um á sorgarstundum. Það tjáði mér öldruð ekkja, er hann heimsótti í hennar sárustu sorg, svo sárri sorg, að hún sagðist hafa verið búin að gefa frá sér alla von, lífsþrótt og þrek. Full hugarvíls og kvíða lá hún í hvilu sinni og reisti tæpast höfuðið frá koddanum. Þá kom hann inn til hennar og skynjaði strax hvað henni leið. Hann tók sér sæti á stól við rekkju hennar, fól andlit í höndum sér í heitri bæn til drottins. Hún sagðist fljótlega hafa fundið kraft streyma frá honum, og þegar hann kvaddi þetta sorg- arhús, var þar öllu breytt í himneska ró og frið, svo djúpan og innilegan, að engu var að kvíða, allt var nýtt, heiðríkt og bjart framundan. Þá mun það hafa borið til, er hann lagði hlessandi hendur yfir veik ungbörn, að þau öðluðust aftur heilsu, við kraft fyrir- bænar hans. Þegar við, sóknarbörn hans, lítum yfir liðin ár, kemur okkur í hug frásagan hjá Lúkasi um Emmausgöngu lærisveinanna, því nokkrir af oss hafa vissulega átt sina Emmausgöngu í lifinu, er ástvinamissir og andstreymi hefur sótt oss heim, þá var oss hollt að hafa samfylgd Þorsteins Briem. Sjálfur hafði hann kynnst sorgum og mót- læti og gat því svo vel sett sig í spor sorgar- barnsins og miðlað því af sinni reynslu með spaklegum, hjartnæmum orðum, er hann með nærfærnum samræðum og með- fæddri hjartahlýju dreyfði dapurleik og áhyggjum, en kveikti eilifðarvissu bak við torskilda atburði og dulda rás hins jarðneska lífs. Sannarlega getum við tekið undir með lærisveinunum, þegar hann var horfinn sjónum vorum. „Brann ekki hjartað í okkur meðan hann talaði við okkur á veginum og lauk upp fyrir okkur ritn- ingunum.“ Um messuflutning séra Þorsteins get ég raunverulega verið stuttorður. Það var al- kunna og álit allra, sem til þekktu, að i kirkju hafi 1 hann verið afburðamaður. Öll persóna hans naut sin þar svo, að unun var að vera kirkjugestur hjá lionum. Altarisþjónustan var ákaf- lega vel af hendi leyst, söng- rödd hafði hann fagra, og beitti henni mjög vel, svo að flutningur tónbæna varð á- kaflega lífrænn og fagur, hreyfingar hans allar fagrar og virðulegar. Fáa kirkjunn- ar þjóna hef ég séð hera bet- ur messuskrúða en hann. — Ræður sínar vandaði liann ákaflega mikið og lagði mikla vinnu i að b}rggja þær sem bezt upp. Lét hann allt annað víkja fyrir þvi stai'fi, enda varð líka árangurinn mikill sem að líkum lætur, því maðurinn var djúpvitur, mjög vel lærður og jók stöðugt við þekk- ingu sína. Samfara þvi var hann lífs- reyndur maður og hafði öðlast mikla og óbifandi trúarvissu og vítt sjónarsvið í andlegum málum, enda var hann ávallt umhurðarlyndur gagnvart skoðunum ann- ara, einkum þeirra yngri. Eitt sinn heyði ég hann halda snjalla varnarrn'ðu fyrir ungan stéttarbróður sinn, er borinn var þeim þungu sökum að flytja ranga og hættulega kenningu. Um ræðuflutning séra Þorsteins er það að segja, að hann var með miklum ágæt- um, rödd hafði hann viðfelldna, raddblær- inn var mjúkur, áherzlur ræðunnar hnit- miðaður. Hann lagði allan sinn mikla persónuleika og andlega þrótt í flutning orðsins, og engum gat dulist hin djúpa alvara er lá að baki hinnar meitluðu og magni þrungnu ræðu hans, enda eins og A K R A N E S 125

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.