Akranes - 01.11.1949, Page 8
Hugðarefni tónskáldanna eru alrnenn-
ingi, ef til vill, auðsæjust og skiljanlegust
í sambandi við ljóðin, (textana), er tón-
skáldin velja til þess að semja lög sín við.
Á þetta ekki sízt við um Islendinga, sem
eiga þroskaðan skilning og smekk á skáld-
skap, umfram flestar aðrar listir. —- Að-
dáun alþjóðar á einu tónskáldi, er þvi m.
a. háð því, hvernig tónskáldinu hefur tek-
izt að fella saman ljóð og lag, að láta tón-
ana, samhljómana, tala máli ljóðsins, er
fær því fyllra líf, sem tónskáldinu tekst
betur, að blása í orðin nýju lifi, með tón-
um, er eiga svo vel við, að þeir dýpka
skilning fólksins á ljóðinu, gefa því þá
vængi, er hvert ljóð fær, sem eignast tóna,
er hæfa því og túlka efni þess af skilningi
og samúð. —
Það er m. a. þetta, sem séra Bjarna
Þorsteinssyni, prófessor, hefur tekizt svo
meistaralega sem tónskáldi, og er þetta
þeim mun merkilegra, sem hugðarefni
tónskáldsins hafa verið svo mörg og svo
ólik. — Hann elskar land og þjóð, og lög
hans, er tjá þær tilfinningar hans, eru
sungin af lífi og sál við öll tækifæri, þar
sem á annað borð nokkurt lag er sungið.
Hann kvetur til dáða, hann elskar kjark
og karlmennsku og storminn, „sem geisar
um grund,“ og tónarnir hrífa og drykkja
oss þrótti, er vér syngjum þessi lög hans,
svo að vér viljum „einhuga fram.“ Tónar
hans laða út „í íslenzkt vornæturyndi,“
og vér syngjum heilhuga, að „það ætti að
vera á annarri’ eins stund, að elskunnar
minnar ég kæmist á fund, ef hana’ ég i
heiminum fyndi.“ —
Glöð í lund leyfum vér tónskáldinu að
leiða oss inn á „draumalandið," þar sem
„angar blómabreiða, við blíðan 'fuglasöng.“
— Vér hlustum hugfangin á tónana, er
óma „Vor og haust“, „úr fögrum lundi,“
— vér látum þá „taka sorg“ vora og minn-
umst þess, „að drengurinn litli, sem dó,
leikur sér um himininn.“ Vér hlustum
alvarleg og hljóðlát á hörpu tónskáldsins,
er hann leikur á hana viðvörun (til vor)
um að trufla ekki aftansöng álfanna í
Kirkjuhvoli. —
Vér sjáum tónskáldið slá hörpu sína,
er „vagga sér bárur í vestan blæ, (og) að
viði er sólin gengin.“ Vér heyrum hann
seyða úr strengjunum unaðsóm, „svo hug-
ljúfan vaggandi, harmana þaggandi, hann
talar við hjörtun sem blær við blóm.“ —
„Þey, þey“ —! „1 fjrska er hringt!“ — og
vér fylgjum tónskáldinu í kirkju, til þess
að hlýða á hina yndisfögru tóna, er tón-
skáldið vill láta lyfta „hjörtum vorum til
himins“ til þess að syngja „drottni nýjan
söng, þvi dásamlega hluti hefur hann
gjört.“ —
Með þessum fáu orðum hef ég viljað
Þingeyjingar urðu fyrstir til að gefa út
safn héraðsljóða. Það var fyrir níu árum.
Fyrir tveim árum fylgdu Borgfirðingar og
Mýramenn í fótspor þeirra. Síðan hefur
Akranes þráfaldlega hvatt önnur héruð til
að gera hið sama. Og nú eru komin aust-
firzk ljóð — mest, og í heild sinni liklega
bezt, þessara ljóðasafna. Allt virðist fram-
takið vera þarna einum manni að þakka,
Helga Valtýssyni. Er enginn efi, að fyrir
það munu fleiri en Austfirðingar hugsa
hlýtt og þakklátlega til hans. Enga bók
hefi ég aðra lesið, er svo hlýjaði hug
minn til Austuriands sem þessi,og víst er
íslenzkum bókmenntum fengur í henni.
Þarna eru tugir manna, karla og kvenna,
sem alveg óumdeilanlega eru skáld i
ströngum skilningi orðsins, enda þótt nöfn
þeirra hafi til þessa verið almenningi
ókunn. 1 sumum tilfellum er bersýnilega
um skáldaættir að ræða. Þarna er t. d. átt-
ræð kona sem kemur með gullsjóðinn sinn,
þar á meðal rimu, sem Ölína hefði verið
fullsæmd af, en í spor gömlu konunnar
fylgja bæði dóttir hennar, sonur og dóttur-
sonur, öll með miklum sóma. Þá er og
ekki skömm að framlagi systkinanna frá
Múlahúsum, og augljóslega er gáfan þar
ættarfylgja, því að móðurbróðir þeirra er
með i leiðangrinum. Sennilega er svona
víðar, þó að ókunnugir greini ekki. Meðal
þeirra, sem þarna eru á ferð, er ung kona,
sem ekki lifði að sjá bókina. Hún er af
mesta skáldakyni landsins, enda yrkir hún
minna á örfá hugðarefni tónskáldsins, ör-
fáar perlur úr tónafesti séra Bjarna. —
Er þó enn ótalið hið mikla verk hans „Is-
lenzk ])jóðlög,“ er hann safnaði og gaf út.
Ég get því ekki hugsað til tónskálds-
ins Bjarna Þorsteinssonar, án þess að votta
honum alúðarþakkir fyrir alla unaðsóm-
ana, er hann hefur gefið þjóðinni — og
öðrum þjóðum — þvi að tónarnir eru al-
heimsmál; — þakka honum allt, sem hann
vann í þágu islenzkrar sönglistar með
þeim ágætum, sem æ munu rómuð. Hann
hefur sungið inn í þjóðina, að „þar sem
söngur dvín, er dauðans ríki,“ — en að
„Söngurinn göfgar, hann lyftir i ljóma
lýðanna kvíðandi þraut. Söngurinn verm-
ir og vorhug og blóma vekur á köldustu
braut. Söngurinn yngir, við ódáins hljóma
aldir hann bindur og stund, hisminu breyt-
ir í heilaga dóma, hrjóstrinu í skínandi
lund.“ —
Mætti hinn undurfagri og áhrifaríki
Hátiðasöngur tónskáldsins séra Bjarna
Þorsteinssonar orka að breyta „hisminu
í heilaga dóma“ í hugum sem allra flestra
íslendinga.
FriSrik Hjartar.
sjálf af snilld, en það er sérstakt við hennar
kvæði, að hún yrkir fyrir okkur þessa
lakari, sem teljast verðum til vondra
manna. Hvað það er hressandi að finna
slíkt innan um eilífan helgidóminn.
Þvílík hersing af ljóðasmiðum, sem
þarna eru á ferðinni, sjötíu, eða þar yfir.
Hér er það, guði sé lof, ótvírætt sannað,
að
Yzt á nesjum, inn með vog,
út á þorpsins mölum,
syngur fólkið ennþá, og
innst í fjalla dölum.
Þetta hefði Einari Benediktssyni líkað
að sjá, því þarna er einmitt að ganga i
uppfyllingu spádómur hans í hinum ó-
dauðlega formála fyrir Hrönnum.
Fyrir eitt verður ekki hjá þvi komizt,
að víta Helga Valtýsson, en það er sá til-
gerðarlegi, óheppilegi og ekkert-segjandi
titill, er hann hefur valið bókinni. Hvern-
ig gat maðurinn álpast á þetta? En „vitið
kom aftur að morgni til mín“ og í formál-
anum eru þetta blátt áfram „austfirzk
ljóð.“
Nú má Akranes halda áfram brýning-
unni til þeirra héraða, sem enn hafa ekki
gert skil. Héðanaf er það engu héraði
skammlaust að sitja hjá. Þau sem það
gera, sanna ömurlegt forustuleysi, þvi
alls staðar er skáldin að finna. Ef þessi
héruð eru svo vesöl, að þau eigi ekki for-
Framhald á bls. 134.
Áfram með héraðaljóðin
Hugsað til tónskáldsins sr. Bjarna Þorsteins-
sonar, prófessors
Sr. Bjarni Þorsteinsson tónskáld.
128
AKRANES