Akranes - 01.11.1949, Page 9

Akranes - 01.11.1949, Page 9
SÖREN SÖRENSON: Ævintýrið m kvikmyndirnar i. Maðurinn hefur frá upphafi vega átt sér marga drauma og stóra. Þegar myrkrið og kuldinn ógnuðu lífi hans, dreymdi hann að geta kveikt eld og ljós eftir vild. Og sjá, hann uppgötvaði eldinn í harðri tinn- unni. Þetta var fyrsti stórsigur mannsins yfir náttúruöflunum. Maðurinn hafði það fram yfir önnur dýr, að vera gæddur allt að því yfirnáttúrlegri athyglisgáfu. Þessi sérstæði eiginleiki gerði manninum kleift að ráða fram úr erfiðleikum lífsbarátt- unnar — og láta drauma sína rætast. Þegar frummaðurinn stóð fyrir utan hell- isskúta sinn, hokinn í herðum, og horfði brúnaþungur á dýr merkurinnar eigra þrotlaust um grundir og skóga, veitti hann hreyfingu þeirra athygli. Fyrir honum var hreyfing líf. Og lif var hreyfing. Hann rejmdi að búa til myndir af því, sem hann sá. Hann teiknaði þá á hellisveggina. En hann gerði sér ljóst, að myndirnar, sem hann teiknaði, voru „dauðar“. Það vant- aði í þær hreyfinguna. Hann þráði að búa til mynd, sem sýndi hina kviku hreyf- ingu. Og hann hófst handa. Hann teiknaði mynd af hlaupandi villisvini á hellisvegg einn i Altamira á Spáni. Og svo liðu tuttugu og fimm þúsund ár. II. Draumur mannsins um ,-,lifandi mynd- ir“ dó ekki út með frummanninum. — Draumur þessi geymdist i vitund manns- ins kynslóð eftir kynslóð, árþúsundir eftir árþúsundir. Hversu langt á undan timan- um hefur þessi hugmynd um „lifandi myndir“ verið! En svo var það í Paris árið 1895 að draumurinn rættist. Bræðm’ tveir, Louis og Auguste Lumiére höfðu fengið gildaskálann, Grand Café, á Baule- vard de Capusines, á leigu eitt kvöld fyrir okurleigu. Þeir ætluðu að sýna þar nýja uppgötvun, er þeir höfðu gert. Þeir liöfðu skýrt þessa uppgötvun sina kinamatograf. Parísarbúar urðu ekkert uppnæmir við þessa nýju uppgötvun. Það var slíkur urm- ull af alls konar uppfundingsmönnum í Parísarborg, að það gerði engan mismun þótt tveir bættust við. Forráðamanni gilda- skálans hafði tekist að narra nokkra tugi manns inn i myrkvaðan salinn. Ljósin voru slökkt og á hvítan léreftsdúk, sem strengdur hafði verið á annan enda sals- ins, komu lifandi myndir. Myndir þess- ar voru í sjálfu sér ekkert stórbrotnar. — Þetta voru svipmyndir af verkamönnum, sem voru að flýta sér í mat, af gangandi fólki á Rue de la Republique í Lyon, og járnbrautarlest, sem kom brunandi inn á brautarstöð. Og þegar lestin kom brun- andi, eins og hún ætlaði beint í fangið á áhorfendum, gat kvenfólkið ekki varisl því, að reka upp óp, af hræðslu og hrifn- ingu. Þessi nýstárlega sjón hafði ekki síð- ur áhrif á karlmennina, þótt þeir létu síður á því bera. Það var einkum einn maður á meðal áhorfendanna, sem ósk- aði eftir því, að sýningu lokinni, að fá að kynnast uppfundingamanninum. Hann kynnti sig: Georges Melliés, forstjóri Théatre Robert-Houdin. Hann bauðst þá þegar til að kaupa uppfinndinguna af Lumiére. Meliés var sjálfur sjónhverfinga- maður og honum duldist ekki þeir mögu- leikar, sem fólust i þessari nýju uppgötv- un — kvikmyndunum. Meliés bauð tíu þúsund franka. Lumiére vildi ekki selja. Meliés hækkað tilboð sitt upp i tuttugu þúsund franka, fimmtíu þúsund franka. Luimére vildi ekki selja. Luimére þótti mikið til um áhuga Meliés, er vildi leggja allt í sölurnar til að eignazt þetta undra- verða tæki. Lumiére stóð hér andspænis manni, sem tók uppgötvun hans alvarleg- ar en nokkur annar maður, máske alvar- legar en hann sjálfur. — Monsieur Meliés, mælti hann, ég er yður mjög þakklátur fyrir áhuga jiann, er þér hafið á þessari uppgötvun minni, en mér þykir fyrir að segja, að hún er ekki til sölu. Það má vel vera, að það megi hagnast á uppgvötun þessari fyrst framan af, en ég held, að hún geti ekki orðið stór gróðrafyrirtæki, og ég kæri mig ekki um að eiga sök á þvi, að þér yrðuð gjaldþrota. Meliés kvaddi og fór. Honum fannst sem hann hefði verið vottur að undursam- legri opinberun. Leikhússtarfið veitti hon- um ekki lengur sömu ánægju og áður. Hann var þekktur um gervalla Parísar- borg fyrir „galdraverk“ sín á leiksviðinu í Théatre Robert-Houdin. En Meliés taldi sig vera búinn að þurausa kunnáttu sina á töfrabrögðum, en í kvikmyndum sá hann hylla undir nýjan og undraverðan sagna- heim, er biði aðeins eftir manninum með „töfrasprotann," er gæti blásið lífi í draumsjónirnar og gert sér mat úr þeim. Meliés var enginn draumóramaður. — Hann hafði fengist við margt um dagana, þótt hann væri ekki nema 34 ára að aldri. Hann var hagur og verklæginn með af- brigðum. Það leið því ekki á löngu, unz honum hafði tekist að búa sér til kvik- myndatökuvél. Lumiére bræðurnir voni vissulega ekki þeir einu, sem gerðu til- raun með „lifandi myndir“. Meliés fékk nauðsynlegar leiðbeiningar frá London og það efni, er hann þurfti með. Og svo tók hann að taka lifandi myndir af því nær öllu, sem fyrir augu hans bar. Hann var óþreytandi. Hann vildi skapa eitthvað nýtt. Og svo kom tilviljunin honum til hjálpar. Dag nokkurn var hann á „mynda- veiðum“. Hann var að taka lifandi mynd- ir af götuumferð, en þá bilaði vélin allt í einu. Filman stóð föst í lienni. Það tók hann talsverðan tíma að koma vélinni í gang aftur. En þegar hann renndi film- unni i gegn um sýningarvél nokkru sið- ar, tók hann eftir atriði i myndinni, sem hreif imyndunarafl hans meira en nokk- ur töfrabrögð, er liann hafði áður séð. — Strætisvagn, sem hann hafði kvikmyndað á götunni, breyttist allt í einu í líkvagn. Þegar Meliés var að baksa við að koma kvikmyndatökuvélinni í gang, hafði hann eklci veitt þvi athygli, að í stað sti’ætis- vagnsins var komið annað farartæki, og Það vildi svo einkennilega til, að líkvagn- inn „myndaðist" ofan í strætisvagninn á filmunni. Melies var ekki seinn að sjá Kvikmynd Meliés, „Svaðilförin“ var ein hin djarfasta mynd, sem hann gerði. AKRANES 129

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.