Akranes - 01.11.1949, Side 13

Akranes - 01.11.1949, Side 13
Þarf ekki lengur að gæta hófs? ÖNNUR 1 9.—12. tbl. f. á. var lítillega drepið á hin margvíslegu og gerbreyttu viðhorf með þjóð vorri, svo að segja á öllum svið- um. Ýmislegar framfarir, en einnig þær veilur í hugsanarhætti þjóðarinnar og ýmsum framkvæmdum, sem hin bætta afkoma virðist hafa blásið að hin siðustu ár. Undir ofanritaðri fyrirsögn verður hér í blaðinu við og við rætt um þessar veilur og vandamál, og nú sérstaklega minnst á hina vaxandi hættu, sem ungmennum Reykjavíkur og enda alls landsins er búin af hinni gengdarlausu vínnautn, sem rikið veitir nú yfir þjóðina, eins og að i þeirri elfi væri fyrst og fremst fólginn vegur hennar og vísdómur, heiður hennar og helgar venjur. Ekki við góðu að búast. Hin þjóðfélagslegu mein eru náttúru- ]ega margvisleg og ná rætur þeirra vítt. En það er sorlegast og vitaverðast, þegar ríkið sjálft ræktar og rekur af hinni mestu atorku og „alúð“, þá gróðrastöðina, sem bráðustum skaða og varanlegustu skömm- inni veldur. Menn geta að sjálfsögðu deilt um það, hvort það sé hægt að friða landið fyrir þessari smán, með því að hafa bann eða ekki. En þeir, sem með mögulegum og ómögulegum ráðum hafa komið í veg 'fyrir hina einu réttu lausn á þessum vanda, — sem er bann, — ættu þá með ráðum og dáð að gera eitthvað til að koma í veg fyrir alla þá óhamingju, sem þessi erkifjandi sannrar menningar og mann- dóms er að færa þjóðina í. Forráðamönn- um þjóðarinnar, sem raunverulega standa fyrir upptökum þessarar flóðöldu vínsins yfir þjóðina, ætti sannarlega að verða fengið eitthvert gagnlegra verk að vinna, en að bera ábyrgð á þessari liöfuðsynd og skömm. Sú bölvun, sem áfengið veld- ur þjóðinni er vitanlega marþætt, m. a.: 1) Vínið rænir heiðri og sakleysi æsk- unnar. Það héftir framför hennar og heilbrigðan þroska andlega og líkam- lega. Það dregur úr viðnámsþrótti hennar, vinnulöngun og athafnaþrá. 2) Það er einnig grimmasti bölvaldur manndómsáranna, þegar maðurinn er í blóma lifsins. Þegar þjóðfélaginu rið- ur mest á, að áform hans og athafnir leggi grundvöll að framtíðarheill þess. Það leggur tíðum i rúst heimilisfrið, hollar- og heilsusamlegar venjur þess, sem er undirstaða sannrar þjóðfélags- legrar farsældar, bókstaflega á öllum sviðum. 3) Þáð leiðir til ófarnaðar einstaklinga GREIN. í svo ríkum mæli, að heiðri þjóðarinn- ar, hæfileikum hennar, manndómi og menningu, er að verða af því verulega hœtta búin. Það er ekki við góðu að búast, meðan ríkið telur sig þurfa að reka þessa verzlun. sem einn aðalatvinnuveg þjóðarinnar og „lifsnauðsyn“. Þar, sem að virðist gengið, eins og með þeim rekstri, sé fyrst og fremst séð fyrir megin þörf þjóðarinnar i framleiðslu, mat og drykk og menningar- legum viðhorfum. Hvað er gert til hófs og viðnáms? Ríkið selur sem mest það má af þessari eitur-ólyfjan, á verði, sem það reisir rammar skorður við að Þjóðfélagsþegnar geti komið við að setja á hina nausyn- legustu hluti, — og það fyrirbýður að sé flutt til landsins. —■ Það gengur sjálft á undan í svívirðilegu okri á ótal sviðum, og verður ef til vill síðar getið nokkurra tölulegra dæma. Það leiðir þá veiklund- uðu í freistni, og hegnir þeim fyrir þá óhamingju, sem það sjálft var raunveru- lega upphafsmaður að. Ríkið ræktar með þessu volæði og vesaldóm. Hefur takmark- að hegningarhús fyrir þá, sem það hegnir, en ekkert „betrunarhús" fyrir þá, sem það hefur freistað. — Þ. e. til að taka við þeim, þegar þeim er sleppt út. — Óharn- aðir unglingar, sem orðið hefur á smá- yfirsjón í fyrsla sinn, — vegna fyrsta staupsins, — eru settir á bekk með marg- dæmdum — jafnvel „rútineruðum“ glæpamönnum. — Á þennan hátt veitir ríkið viðnám, og vakir yfir fegurð og frelsi æskunnar í landinu! ! ! ! Andbanningar orðnir bannmenn. Fjöldi manna, sem eitt sinn voru drykkjumenn, hófsmenn eða andbanning- ar, hafa nii skift um skoðun á þessum málum. Af hverju? Vegna þess, að þeir hafa séð í sínu eigin lifi þann sorglega sannleika rætast, — stundum í sinni voða- legustu mynd, — að syndir feðranna koma niður á börnunum. Þeir sáu það of seint, að synir þeirra eða dætur hafa verið um of tíðir gestir í höll Bakkusar. Ýmsir ágætir menn telja sig nú fúsari til að greiða atkvæði með aðflutningsbanni á áfengi, en þeir áður greiddu atkvæði á móti því. Ekki er sennilegt, að þessu fjandafári linni í bráð. Fyrst og fremst vegna þess, að þeir sem vilja hafa frjáls- ræði til að drekka — í hófi eins og þeir segja sjálfir, — láta sig engu varða voða þann, sem það veldur tfjölda einstaklinga og þjóðarheild. Þeir skilja ef til vill síð- ar en þá um seinan, — að taumleysi þeirra og sjálfselska í ímynduðu frjálsræði var beint og óbeint blekking ein. Hvað er þá til ráðs? Að kjósa ekki nema bindindismenn í trúnaðarstöður. Að líða ekki drykkjumenn í embættum úti í héruðunum. Að krefj- ast þess, að kirkja og kennarastétt taki upp skelegga baráttu fyrir bindindi, sér- staklega meðal æskunnar. Að líða ekki vínútsölur úti í héruðunum og vinna öt- ullega að því, að fyrirbyggja óleyfilega vínsölu. Að koma í veg fyrir að vínveit- ingar séu viðhafðar í opinberum veizlum, hvort sem er á vegum ríkis, bæja eða hér- aða. Að góðtemplarareglan leggi alúð við að finna form fyrir auknu samstarfi — og til frambúðar — við allt bindindissinnað fólk í landinu. Svo segja megi að í þessari mikilvægu baráttu í þágu alþjóðar séu allir sameinaðir. Alveg eins þótt allir telji sig ekki geta í einu og öllu aðhyllst form reglunnar í innra starfi sínu. Ef reglan gerir ekki sitt til að þetta megi verða, og ef þeir sem annars vilja ljá lienni lið — um aðal-atriðið — geta ekki mætzt á miðri leið, búa hvorugir yfir þeim innra eldi, sem til þess þarf, og get- ur gefið vonir um verulegan eðan varan- legan árangur. Þeir, sem skeleggastir hafa verið í þess- ari baráttu hefur orðið mikið ágengt í ýmsum þorpum og bæjum úti á landi, og aðrir hafa með henni hamlað verulega á móti. Þetta drykkjufargan getur orðið þjóðinni dýrt spaug, ef ekki er þegar og alvarlega stungið fótum við. Þarfir ríkissjóðs. Ein algengasta afsökunin fyrir áfram- haldandi víninnflutningi telja menn nú þarfir ríkissjóðs. Þetta er í rauninni hin argasta blekking, og skal hér aðeins rakin í örfáum dráttum: 1. Hvernig fór ríkissjóður að, meðan hann hafði engar tekjur af áfengis- sölu? 2. Eru það nettótekjur fyrir ríkissjóð, sem talið er að komi inn árlega fyrir selt áfengi? 3. Hvað ætli ríkissjóður láti margar krónur af hendi, til að bera í stærstu brestina sem af áfenginu leiða. Fyrir ut- an óbeina tjónið í minni vinnu, lélegrí afköstum og beinu lieilsuleysi og beinlín- is í minni framleiðslu á sjó og landi. 1 óþörfum embættum, sem aðeins eru til vegna ofdrykkjunnar? Þannig fullyrði ég t. d., að hér á Akra- nesi þyrfti alls enga lögreglu — eða a.m.k. ekki nema einn mann — ef ekki væri víninu til að dreifa. Þó er víst viða miklu meira drukkið en hér. Líka sögu munu fleiri geta sagt. Eins og áður er að vikið, er því haldið AKRANES 133

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.