Akranes - 01.07.1954, Page 28
ANNÁLL AKRANESS
--------------------------------------i
AUGLÝSING
Frá
Innflutningsskrifstofunni
Samkvæmt heimild i 22. gr.
reglugerðar frá 28. desember 1953
um skipan innflutnings- og gjald-
eyrismála o.fl. hefir verið ákveðið
að úthluta skuli nýjum skömmt-
unarseðlum, er gildi frá 1. októ-
ber til og með 31. desember 1954.
Nefnist hann „FJÓRÐI SKÖMMT
UNARSEÐILL 1954“, prentaður
á hvítan pappír með svörtum og
rauðum lit. Gildir hann sam-
kvæmt því sem hér segir:
REITIRNIR: Smjörlíki 16—20
(báðir meðtaldir)
gildi fyrir 500 gr.
af smjörlíki, hver
reitur.
REITIRNIR: SMJÖR gildi hvor
fyrir sig fyrir 500
grömmum af smjöri
(einnig böggla-
smjöri).
Verð á bögglasmjöri er greitt
niður jafnt og mjólkur- og rjóma-
bússmjör, eins og verið hefir.
„FJÓRÐI SKÖMMTUNAR-
SEÐILL 1954“ afhendist aðeins
gegn því, að úthlutunarstjóra sé
samtímis skilað stofni af ,,ÞRIÐJI
SKÖMMTUNARSEÐILL 1954“
með árituðu nafni og heimilis-
fangi svo og fæðingardegi og ári,
eins og form hans segir til um.
Reykjavík, 30. september 1954,
Innflutningsskrifstofan
______________________________✓
Gjafir og greiðslur til blaðsins,
sem það þakkar innilega:
0. F., Akranesi 100 kr., Jón Guðmundsson fram
kvst., Belgjagerðinni Rvík. goo kr., Frú Emelía
Briem 100 kr., Matthias Þórðarson ,rithöf. Kbh.
200 kr., Jón Maron, framkvstj., Bildudal f. 1954
og ’55 100 kr., Vinur blaðsins á Akureyri goo kr.,
Sveinbjörn Jónsson, framkvstj. Rvik. 200 kr., Ágúst
Jósefsson, fyrrv. heilbr.fulltrúi Rvik. 100 kr.
Hjúskapur:
17. júni. Ungfrú Nanna Jóhannesdóttir Akur-
gerði 22 og Gestur Friðjónsson, iðnnemi frá Hofs-
stöðum í Alftaneshreppi.
26. júni. Ungfrú Margrét Loftsdóttir, Vestur-
götu 137, og Leifur Ölafsson, málari, Tómásarhaga
46 Reykjavik.
26. júni. Ungfrú Guðrún Ragnarsdóttir, Heiðar-
braut 17, og Gústaf Adóif Jakobsson, sjómaður,
Heiðarbraut 17.
3. júli. Ungfrú Benny Sigurgeirsdóttir, Skarði 2,
og Bjarni Stefánsson, verkam., s. st.
14. ágúst. Ungfrú Svanfriður Valdimarsdóttir,
Hjarðarhóli og Þorvaldur Ixjftsson, sjóm., frá Vik
í Steingrimsfirði, að Skólabraut 22.
Sira Jón M. Guðjónsson gaf saman.
Dánardægur:
8. ágúst. Einar Þorvaldsson, Brekkukoti, f. 28.
júni 1887, að Hofstöðum á Mýrum.
)8. ágúst. Guðmundur Bjami Jónsson, Suður-
völlum, f. 9. desember 1869 að ILokinhömrum i
Arnarfirði.
30. ágúst. Ragnheiður Jónsdóttir, f. 11. nóv.
1882, að Sauðanesi í Torfalækjarhreppi i Austur-
Húnavatnssýslu.
6. september. Valgerður Helgadóttir, Uppkoti,
f. g. mai 1896, að Kirkjubóli i Innri-Akraneshreppi.
2g. september. Pálina Jónsdóttir, Kirkjuhvoli,
f. 11. okt. 1872 að Minni-Vatnsleysu. Hún fór
ekki varhluta af reynslu lifsins, J)ví að báða menn
sina og einkason, missti hún í sjóinn. Hún var hér
siðast hjá dóttur sinni Lilju Pálsdóttur og tengda
syni, síra Jöni M. Guðjónssyni.
28. september. Petrea G. Sveinsdóttir, kennari
og kaupkona frá Mörk. Hún andaðist af hjarta-
slagi. Hún var fædd 23. júlí 1885. Hennar hefur
nokkuð verið getið hér i blaðinu áður, og verður
siðar getið i sambandi við skóla, sjúkrahús og fé-
lagsmál.
1. október. Kristín Eyjólfsdóttir í Akurprýði,
ekkja Þorsteins Ólafssonar á Krossi og viðar. Hún
var fædd 22. desember 1877 í Brekkubæ. Hennar
mun siðar verða getið i þáttum AKRANESS i
sambandi við fyrmefnd býli, svo og i sambandi við
Esjuberg og Akurprýði.
Nýr barnaskólastjóri.
Eins og kunnugt er sagði Friðrik Hjartar lausu
starfi sínu s. 1. vor. Hann tók við þvi starfi er frk.
Svafa Þórleifsdóttir lét af þvi starfi 1944. Friðrik
er eins og kunnugt er einn af beztu skólamönnum
landsins, enda starfið farið honum mjög vel úr
hendi hér.
1 hans stað hefur verið settur skólastjóri Njáll
Guðmundsson kennari úr Reykjavík.
Skemmtileg heimsókn.
Sunnudaginn )(. júli s. 1. heimsótti Akranes
hópur safnaðarfólks úr Frikirkjunni í Reýkjavik,
ásamt hinum ágæta presti þeirra Þorsteini Bjöms-
syni. Á hverju sumri fer nokkur hluti safnaðarins
slikar ferðir, til einhverra þeirra staða, sem þeir
geta fengið lánaða kirkju, því ekki fara þeir þess-
ar ferðir til þess að geta fellt niður messu.
Sira Þorsteinn prédikaði hér þvi þennan um-
rædda sunnudag og annaðist einnig altarisþjónust-
una, en hann er bezti tónisti í prestastéttinni nú.
Safnaðarfólk Fríkirkjunnar var um 90 manns, en
auk þess sótti kirkju allmargt Akumesinga.
Að aflokinni guðsþjónustu bauð sóknarnefndin
hér, Kvenfélagið og Slysavarnadeild kvenna, gest-
unum til kaffidrykkju i Hótel Akranes. Þar báru
menn fram gagkvæmar kveðjur og þakkir og
sungu við raust.
Vestur-íslendingar á ferð.
Til Akraness komu hingað i sumar góðir gestir
vestan um haf. Þau Páll S. Pálsson skáld frá
Gimli og kona hans Ólína Egilsdóttir, frá Bakka
í Borgarfirði eystra. Ennfremur ICristin Þorsteins-
dóttir frá Húsafelli. Páll og Kristin eru þvi bæði
Borgfirðingar, þvi að hann var alinn upp á Norður-
Reykjum í Hálsasveit.
Mikið þótti þeim vænt um að vera komin heim,
og mikið létu þau yfir framförunum og batnandi
hag landsmanna, svo og viðtökunum í þeirra garð,
er þau þóttust ekki geta lofað nógsamlega. Þótt
það væri nú tekið sæmilega á móti þessum bless-
uðum „farfuglum" þá sjaldan sem þeir fá tækifæri
til að koma heim. „AKRANES" þakkar þeim fyrir
komuna og biður þeim blessunar i bráð og lengd.
Hér heima voru þau einnig á ferð í sumar dr.
Richard Beck og Berta kona hans. Fóru þau viða
um landið, en ekki gátu þau þó komið því við að
heimsækja Akranes. Fleiri landar munu og hafa
komið heim í sumar. Er vonandi að sem fleztir
þeirra fái tækifæri — og það sem oftast — að
vitja gamla landsins, og einnig „heimalningamir"
að lita til þeirra vestur. Slíkar gagnkvæmar heim-
sóknir eru áreiðanlega báðum hinn mesti feng-
ur, i baráttu þeirra fyrir manndómi kynstofnsins
islenzka og þvi bezta sem með honum býr.
Tópaz.
Fyrir skömmu var leikflokkur Þjóðleikhússins á
ferð hér með Tópaz, og hafði 3 sýningar i Bióhöll-
inni við gé)ða aðsókn og undirtektir. Það er mikill
fengur að þessum sýningum Þjóðleikhússins utan
Reykjavikur. Mikill fjöldi fólks úti á landi á þess
auðvitað ekki kost að sækja sýningar í Reykjavik.
Hér er oftast um góð leikrit að ræða, með afbragðs
leikurum, en þetta hefur vafalaust góð áhrif á
leiklistarlíf i viðkomandi bæjum og byggðum.
Þökk sé þeim fyrir komuna.
Bygging sementsverksmiðjunnar
hafin.
Nú loks er hafin hin eiginlega bygging verk-
smiðjunnar, og er það ekki vonum fyrr. Einhver
vandkvæði eða seinagangur hefur verið á útvegun
fjármagns til verksins, og mun enn ekki fengið
nema að litlu leyti. Er þó augljóst mál, að þetta
ÍOO
AKRANES