Akranes - 01.07.1954, Qupperneq 29
mikla nauðsynjafyrirtæki hefði átt að ganga á und-
an ýmsu sem fengið hefur verið fé til síðustu árin.
Vonandi verður nú haldið áfram slindrulaust.
Nú í haust er gert ráð fyrir að byggja traustlegar
undirstöður að miklu húsi, sem á að vera efna-
geymsla verksmiðjunnar og mun vera að stærð um
3800 fermetrar. Samið hefur verið við h/f. Fell
hér, um þessar byrjunarframkvæmdir, en fyrir
þvi standa Þorgeir Jósefsson og Einar Helgason.
Nýr skattstjóri.
Frá 1. september s. 1. hefur Kristján Jónsson
bóndi í Dalsmynni í Eyjahreppi i Snæfellsnessýslu
verið skipaður skattstjóri á Akranesi.
Báfreiðaeign Akurnesinga.
Á Akranesi eru skrásettar 180 bifreiðar af 25
mismunandi tegundum. Þar af eru 89 fólksbifreið-
ir, 72 vörubifreiðir og 19 jeppabifreiðir.
Flestir bilar eru af eftirfarandi tegundum:
Ford .................... 39 bílar
Chevrolet................ 26 bílar
Dodge ................... 16 bílar
Jeep Willys.............. 15 bilar
Hlín.
Mér var að berast i hendur „Hlín“. Árviss og
°dýr með fangið fullt af þýðu, þjóðlegu efni, ylj-
uð af árvekni og hjartahlýju Halldóru Bjama-
dóttur, ást og umhyggju fyrir öllu því sem treysta
má hagsæld hinnar islenzku þjóðar. Þar eru
ekki langar visindalegar ritgerðir um eitt eða
annað; en þar er venjulega æðimikið af gullkom-
um reynslunnar um það sem betur hefur mátt fara
í þjóðlifinu. Um störf hinna vökulu kvenna, sent
af ást og umhyggju hafa vakað yfir heimilum
sinum og ástvinum, en auk þess, með ótrúlegu,
virku félagsstarfi, unnið þrekvirki í mannúðar-
og menningarmálum til sameiginlegra þjóðar-
heilla.
Hver tekur upp merkið hennar Halldóru? Það
má ekki niður falla.
Aflabrögð.
Bœjartogararnir:
31/8 Bjarni Ólafsson (karfi) .... 260.790 kg.
9/9 sami — . 240.000 —
20/9 sami — .... 263.030 —
30/9 Akurey (karfi) ............. 195.690 —
Aðkomutogarar:
3/9 Geir (karfi) ............... 256.000 kg.
13/9 Fylkir (karfi) ............. 305.070 —
27/9 Jón Þorláksson (karfi) .... 254.030 —
1/10 Júní var með ca. 330 tonn,
en hér var landað ........... 200.000 —
Síldaraflinn i heild til 1. október hefur verið
3539.510 kg.
Uallgrímskirkfa
í Saurbœ
orð lifir öld af öld, friðar og fræðir hvern þann,
sem hlusta vill með hjartanu, og hefur á unga
aldri verið beint að sítærri lind þessara ljóða.
Nú er tekið til við að byggja Hallgrímskirkju
i Saurbæ eftir langa bið. Eins og kunnugt er, var
kyrjað á byggingunni eftir teikningu Guðjóns
heitins Samúelssonar. Striðið tafði frekari fram-
kvæmdir, og var margoft neitað um fjárfestingar-
leyfi til byggingarinnar. Siðan hefur krónan ver-
ið margfelld í verði margvíslega, beint og óbeint,
svo að ógerningur reyndist að halda áfram bygg-
mgunni eftir hinni fyrri teikningu.
Var þvi ekki annað ráð fyrir hendi, en að byggja
nokkru minna og ódýrara hús en ætlað var. Verð-
ur nú byggt á sama grunni eftir teikningu þeirra
arkitektanna Sigurðar Guðmundssonar og Eiriks
Einarssonar. Að forfallalausu kemst kirkjan undir
þak i haust, en þá verður þó handbært fé meira
en búið. Vonar kirkjubyggingarnefndin þó, að þessu
sameiginlega minnismerki þjóðarinnar um hið
niikla sálmaskáld verði ekki févant til þess að geta
lokið þessu verki fagurlega og fullkomlega á næstu
tveim árum, svo að vígsla kirkjunnar gæti farið
fram sumarið eða haustið 1956.
Nefndin hefur allataf haldið, að kirkjunni myndi
áskotnast nægilegt fé jafnóðum og verkinu miðaði
áfram. Hún hefur þegar séð þess nokkur merki.
Þá hafa og nokkrir menn og fyrirtæki þegar boð-
ist til að gefa ákveðna nauðsynlega gripi til kirkj-
unnar.
Kirkjan verður hið snotrasta liús og ágætasti
helgidómur, ef hægt verður að gera hana svo úr
garði að innan sem hugur stendur til og ætlað er.
Hallgríms dýru ljóð eiga enn marga aðdáendur
með þjóðinni — vestan hafs og austan. — Þeir
munu auðvitað sjá um að kirkja risi nálægt gröf
Hallgrims og minjum þeim og minningum, sem
tengja nafn hans við Saurbæ, verði haldið við og
sýndur verðugur sómi. Ekki vegna Hallgríms, held-
ur hinnar litlu islenzku þjóðar, sem ól slíkan
meistara mannvits, óðs og snilli, þar sem hvert
VASKIR MENN Á FRAMA
BRAUT.
Framháld af síðu 79.
að vísu ekki góð, 7:3, en gefa þó engan
veginn rétta hugmynd um gang leiksins.
Berlín.
Til Berlínar var flogið og komið hinn
6. september og dvalið á glæsilegu heimili
Iþróttasambands Vestur-Berlínar. Þar var
þeim sýnt margt merkilegt, svo sem minn-
ismerkið um loftbrúna frægu úr stríðinu,
„Járntjaldið" og hið stórkostlega mann
virki Olympíuleikvanginn.
I Berlín hefur eyðileggingin verið ógur-
leg, og má víða sjá þess hin ömurlegustu
merki enn, þar sem lítið hefur verið endur-
reist miðað við ýmsar aðrar horgir. Þar
sáu þeir rústir Ríkisóperunnar frægu og
Ríkisþinghússins.
I Berlín var fjórði og síðasti kappleikur
inn, og leikið við úrvalslið Vestur-Berlínar.
I byrjun leiks var gott veður, en í siðari
hálfleik þrumur og eldingar og stórrign-
ing. Akurnesingar hófu leikinn af miklu
fjöri og virtist sem þeir hefðu leikinn í
sínum höndum framanaf, enda gerðu þeir
tvö mörk á -fyrstu 20 minútum leiksins.
Þá tók aftur að halla undan fyrir þeim
*
¥
*
*
*
*
*
*
*
*
ölgcrðin
Egill
Skallagrímsson
Reykjavík
Sími: 1390
Símnefni: Mjööur
AKRANES
101