Akranes - 01.10.1954, Page 18

Akranes - 01.10.1954, Page 18
svo neinu nexni. Hólminn er nú mjög lít- ill og á honum lítil grastorfa. Það má enn sjá merki þess að þar ha'fi eitthvað verið gert fyrir varpið, og þar má enn sjá hleðslu til varnar landbroti. Bæði þarna og í Við- ey, gerði Ólafur allt, er hann mátti til að styðja að auknu æðarvarpi og varð vel ágengt, enda skaraði hann og Skúli fógeti framúr öllum öðrum á 18. öldinni í þess- um efnum. 1 4. bindi Lærdómslistarrit- anna farast Ólafi svo orð um æðarfugla- dráp landa sinna: „Sá vondi vani, að drepa æðarfugl í netum og snörum og með skotum, fer nú óðum í vöxt. Ég veit ei meiri fásinnu en að vilja gera allt það, sem upphugsað verður til eyðileggingar þeim saklausa æðarfugli, og hvað segi ég þeim saklausa, af öllum fuglum þeim allra gagnsamasta, sem Guð hefur gefið oss“. Um æðarvarpið segir hann ennfrem- ur í þessari tilvitnuðu ritgerð: „Æðarvarp- ið hefur margan hér á landi auðgað á hin- um fyrri tímum, og sama mætti enn vera, væri hirðusemi brúkuð við rækt þess og útgræðslu, í stað hins að varpið gengur nú víðast mjög svo til þurrðar, hvað til að eru ýmsar orsakir“. Það er auðsætt mál, að Ólafur hefur lagt mikla rækt við æðarvarpið í þess- um litla hólma, því að árið 1805 fær hann þar hvorki meira né minna en 20 pund af æðardún, sem er áreiðanlega mjög mikið, miðað við stærð hans og möguleika til að auka það verulega. Þetta ár er dúntekj- an sem hér segir í hinum miklu varplönd- um sem við þekkjum af afspurn: f Vigur 18 pund, Vatnsfirði g pund og í Æðey aðeins 2 pund. Siðan á dögum Ólafs stiptamtmanns hef- ur æðarvarp í hólmanum líklega aldrei af- lagst með öllu, þótt það hafi lengst af verið svipirr hjá sjón við það sem þá var. Það var víst mjög lítið í tíð Áma Þor- valdssonar. Að sögn manna var það t. d. ekki nema 20—30 hreiður í tið Páls Guð- mundssonar. Nú mun það ekki vera orðið neitt, eingöngu af völdum minks, sem kvað hafa stóreyðilagt allt fuglalíf í Hvalfirði hin síðari ár. Líklega hefur kría lengi orpið nokkuð í hólmanum og svo er enn að sögn núverandi bónda Innra-Hólms, Guðmundar Jónssonar. Eftir Skaftáreldana 1783 var ekki bú- sældarlegt hér á landi, heldur eymd og ör- deyða til lands og sjávar. Eftir þudfíti sannarlega að hvetja menn til að auka og efla atvinnuvegina og fullnýta allt, sem hægt væri að bæta með hag þjóðarinnar. Eitt af því, sem vera átti spor i þessa átt, var það, að gefinn var út konungsúrskurð- ur 1784 um veitingu verðlauna fyrir efl- ingu æðarvarps. Er ekki að efa að Ólafur stiptamtmaður hafi átt beinan eða óbein- an þátt í þessum verðlaunum. Verðlaun- in voru: 2 ríkisdalir fyrir 50 hreiðra aukn- ingu, 4 fyrir 100 hreiður og 6 fyrir 150 126 Magnús Stephensen. hreiður. Á árunum frá 1785—1794 urðu 8 menn aðnjótandi þessara verðlauna. Eins og kunnugt er kærðu „kotungar" á Akranesi Ólaf fyrir þáverandi stiptamt- manni, vegna búsifja, sem þeir töldu sig verða fýrir af hans hendi vegna manns- lána, og fyrir að verða — sem leiguliðar — að róa á hans útvegi. Hér hefur þá vafalaust verið mikil fátækt og oft hart í ári. Kæran er dagsett á Heynesi 22. októ- ber 1785. Mun ég ef til vill seinna skrifa nánar um þessa kæru og þau nöfn, sem undir eru. Það er dálitið einkennilegt, að einmitt þetta sama ár — sjálfsagt fyrr á árinu, — gefur Ólafur Skagamönnum kost á að byggja sér bæi og rækta tún og garða á því landi Skagans, sem áður var ekki byggt eða ræktað, „fyrir utan fvarshús og ofan Teigakot, til að byggja þar bæi og yrkja tún og garða, og var Nýlenda hið fyrsta býli, sem þar var reist“ eftir þessu boði Ólafs eins og Hallgrímur orðar það. Það bendir til að Ólalfur hafi ekki viljað að menn byggðu hér í algeru „tómthúsi“. Hann bendir einmitt á það, að þeir skuli rækta sér tún og garða, og með það fyrir augum lætur hann stór lönd af hendi við þá sem vilja. Börn Ólafs stiptamtmanns, sem upp komust voru þessi: Magnús dómstjóri Step- hensen, sem hér mun brátt verða getið. Stefán amtmaður Stephensen, á Hvítár- völlum, Bjöm dómsmálaritari Stephen- sen, sem bjó á Hvítárvöllum, Esjubergi og víðar. Þórunn, fyrri kona Harmesar bisk- ups Finnssonar, Ragnheiður, átti Jónas sýslumann Scheving. Frá Ólafi stiptamt- manni er kominn mikill ættbálkur, sem minna ber á fyrir það að mikill fjöldi af hans afkomendum hefur látið niður falla Stepliensensnafnið, þótt nokkrir séu sem halda því. Margt af þessu fólki er hér á Akranesi, Reykjavík og nágrenni, svo og víða um land, í Danmörku og í Vestur- heimi. Margar sagnir hefi ég heyrt um fyrir- myndar heimilisbrag á heimili Ólafs og sumra niðja hans, .svo sem Magnúsar kon- ferensráðs, Hannesar prófasts Stephen- sens o. fl. Ættrækni þeirra var einstök, svo og tryggð og hjálpsemi við þá, sem þeir tóku að sér, og voru skjólstæðingar þeirra. Magnús Stephensen, konferensráð. Magnús var sonur fyrrnefnds Ólafs Ste- fánssonar stiptamtmanns og konu hans, Sigríðar Magnúsdóttur, amtmanns Gísla- sonar. Hann var f. 27. desember 1762 0g skírður daginn eftir í Leirárkirkju. Um uppvöxt og ævi Magnúsar Stephensens mun ég taka hér ýmislegt öðrum þræði úr fyrrnefndu handriti Jóns Aðils úr há- skólafyrirlestrum hans Lbs. 2025. „Magnús var mjög bráðgjör að næmi og skilningi, var altalandi ársgamall og tók þá undir jólasönginn í kirkjunni, en svo snemma læs, að íimm vetra gamall og úr því, las hann daglega húslestra á heimil- inu. Magnús hafði frá æsku góða söngrödd, og æfði faðir hans hann stöðugt í söng, því að hann var sjálfur góður söngmaður og hljóðfæramaður, og þótti framúrskarandi á sinni tíð í langspilsleik, en á yngri ár- um blés hann vel í hljóðpípu. Sungu þeir feðgar jafnaðarlega tvísöng í rökkrinu og oftar, og lét amtmaður þau böm sín öll, sem komust yfir æskuskeið, læra lang- spilsleik og söng oft með þeim“. Dvölin í Skálholti hafði mikil áhrif á Magnús, en þar var hann í skjóli Hann- esar biskups, sem var hámenntaður mað- ur. Þá hafði og dvöl hans við Kaupmanna- hafnarháskóla og vera utanlands fyrr og seinna, mikil og varanleg áhrif á líf hans og starf. Magnús var bráðgáfaður maður og varð mikillar menntunar aðnjótandi. Hann vakti þegar á háskólaárum sinum svo mikla eftirtekt og traust hjá stjórn- inni, að hún sendi hann sem sendimann sinn heim til íslands 1784, til þess að rannsaka Skaftáreldana og það hörmungar- ástand, sem hér skapaðist þá. Skip það, er Magnús var á, fékk ofsa- veður í hafi og lenti við illan leik í Hafn- arfirði. Magnús var eini kunnugi maður- inn á skipinu, og varð að vera ieiðsögu- maður inn fjörðinn. Fyrst fór Magnús til Bessastaða og var þar um hríð hjá Tho- dal sta, en fór þaðan til Reykjavíkur. Þangað sendi faðir hans áttæring eftir honum. Þeir lentu í norðangarði og urðu að lenda í Brautarholti á Kjalarnesi og vera þar í þrjár nætur. Þann 27. apríl AKRANES

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.