Akranes - 01.10.1954, Qupperneq 33
* Dhammapada.
Bókin um dyggðina.
lslenzkúS úr Pali aj Sören Sörenssyni. —
Bókaútgáfa MenningarsjóSs gaf út.
Hér hefur lítið verið þýtt úr lornritum
Austurlanda. Liggja sjálfsagt til þess marg-
ar orsakir, svo sem fjarlægð og þekkingar-
skortur, bæði á tungum þeirra og fornri
mermingu. Það eru ekki margir Islending-
ar, sem sökkt hafa sér niður í þessi fræði,
og þá sízt á sjálfum frummálunum. Sören
Sörensson ei' víst einn þeirra örfáu landa,
sem kunna til hlítar Sanskrít og Pali. Foi -
máli hans fyrir þessari bók ber þess glögg
merki, amiars vegar, hve vandasamt er að
þýða vel og virðulega á íslen/.ku úr þess-
um fornu málrnn, og hms vegar, hve
vandvirkur cg samvizkusaniur Sören er
um allt, sem hann gerir. Það undrar held-
ur ekki kunnuga, því alveg er sama hvað
hann leggur hönd að, allt ber það merki
fegurðarsmekks, þroska og samvizkusemi
i óvenjulega ríkum mæli.
Það er því fyllilega í samræmi við hug-
arfar og lifshyggju Sörens að auðga islenzk-
ar bókmenntir um eitt hið fegursta í aust-
urlenzkum bókmenntum löngu fyrir Krists
burð, dyggðina, en þetto er hluti úr hinum
merku ritum Búdda. Ge'fur þetta rit góða
hugmynd um kjarna kenningar þessa höf-
undar hinna fornu fræða. Er þar margt
fallega sagt og spaklega framsett og gefur
góða hugmynd um dulúð og spekimál þess-
ara fornu menningarþjóða og skilniug
þeirra á lífinu hér og annars heims.
Bók þessa, sem er 60 síður í stóru broti,
tileinkar Sören konu sinni, frú Elinborgu
Sjgurðardóttur.
Ó. B. B.
ENN FJÖLGAR VINNINGUM í
VöruhA)»p4rffitti J5.Í.B.J5.
Með árinu 1955 bætast við 1000 nýir vinningar að fjárhæð kr. 200.000,00.
Alls eru vinningar ársin 1955 2 milljónir og 800 þúsund krónur.
Hæstu vinningar i hverjum flokki eru: 50—150 þúsund krónur.
Happdrættið lætur viðskiptavini sína njóta góðs af vaxandi
viðskiptaveltu, og fjölgar vinningum ár frá ári. — Viðskiptavin-
irnir fá smekklegan og nytsaman hlut í kaupbæti.
Verð miðans í 1. fl. er 10 kr. endurnýjun 10 kr.. — Ársmiði
120.00. — Ágóðinn rennur til nýbygginga á Reykjalundi.
AKRANES
141