Akranes - 01.04.1955, Page 12

Akranes - 01.04.1955, Page 12
mjög merkilegt skip að ræða, því það verður vist vart dregið í efa, að einmitt þessi litli mótorbátur, sem hét „Ágúst“, var fyrsta íslenzka varðskipið. Keyptur af Garðbúum til þess að halda honum úti til landhelgis- og veiðarfæragæzlu. Vona ég að geta áður langt líður frætt eitthvað nánar um J)að efni og þetta „fræga“ varð- skip. Hinum gamla manni ofbýður alveg hin skefjalausa vínnautn margra sjómanna nú. Þar sem sjóferðir falla jafnvel niður af þeim sökum, eða burtfarartíma fiski- skipa seinkar. Fyrir utan þann skaða og skömm, er J)etta bakar þeim sjálfum og fjölskyldum þeirra. Lendingarbætur í Leirunni. 1 verstöðvunum var auðvitað misjöfn aðstaða til útróðra. Vondar varir, útfyri mikið, eða sker og boðar fyrir landi, þar sem fljótt hefur orðið ófært, er nokkuð brimaði, og þá hvert sund næsta hættu- legt. I brimasömum verstöðvum þurfti auð- vitað að ryðja varirnar og hreinsa eftir stórbrim. Hefur þá verið betra að haf’-i nógan og góðan mannskap til að vinna þessi erfiðu verk æ ofan i æ, verkíæra- laust. Vmsir útvegsbændur unnu þrekvirki i lendingabótum, má t. d. enn sjá þess glögg merki í Leirunni. 1 fyrra fóru fjórir menn suður í Leiru til þess að líta á þessi miklu mannvirki, sem á þeirra tíðar mælikvarða verður að telja stórvirki, en menn þessir voru auk mín: Tryggvi Ófeigsson útgerð armaður (sem átti frumkvæðið að þessu), sírá Jón Thorarensen og Sigurður Ólafs- son verkfræðingur, sem mældi mannvirkin og tók þær myndir, sem grein Jæssari fyigja- Kunnugir kannast við svonefndan Niku lásarós í Leiru. Nafn sitt dregur hann af manni þeim, er gróf þennan ós i gegn- um stórt rif, sem liggur frá landi og er upp- úr um fjöiji. Ósinn, sem þarna hefur ver- ið grafinn í gegnum rifið, er enn meira en 50 metrar á lengd, þótt 70—80 ár séu síðan þetta var gert. Rennan er 7 metrar á breidd og 1J4 m á hæð. Mælingar þessar og útreikningar benda til, að nú myndi þetta verk, sem þama var unnið, kosta um 300 þúsund krónur. Þetta þrekvirki var unnið af })eim víkingsmanni Nikulási Bjömssyni, Nikulássyni, sem lengi bjó í Nýlendu í Leiru, en hann var einn af hin um kunnu Varabræðrum, sem vom orð lögð hraustmenni. Það er haft fyrir satt, að ósinn hafi hann grafið sjálfur með dætr- um sínum, með lélegum handverkfærum, sem þá voru aðeins til. Nikulásarós var m. a. um marga ára- tugi notaður af merkismanninum Ólaf' Bjarnasyni á Steinum, sem þekktastur var sem framúrskarandi skinnklæðasaumari. 1 Leirunni er annað mannvirki í lend ingabótum, sem hiklaust má telja stórvirki miðað við þá tíma, sem })að var unnið á. Þetta er Litla-Hólmsvör í Leiru, byggð af Páli bcnda Jónassyni sem })ar bjó. Vörin er 50 m löng, 10 m breið og vegghæð 1 — 2m. Af þessu mikla mannvirki eru 20 m byggðir í sjó. Þetta er í raun réttri meistarastykki svo vel sem J)að er hlaðið. Munu margir steinar í hleðslunni þó ekki vega minna en 2J4 tonn, en fleztir munu steinarnir í hleðslunni vega yfir 1 tonn. Vörin er þrekvirki og listaverk i senn og bera þessa vitni enn í dag. Er alveg óskilj- anlegt hvernig verkfæralaus bóndi hefur getað unnið stlíkt stórvirki með heima- mönnum sinum og „tórnum" höndunum. Stórgrýtið í þessari miklu hleðslu leiðir þá hugann að því, hvernig verið hafi um- horfs í þessari vör áður en hún var rudd, })ví að ekki er grjótið langt að sótt. Það er auðvitað grjótið, sem fyrir fótum þeirra og fari var, er sjó skyldi sækja og lenda. Vörin mun eitthvað hafa verið endurbætt af Sigurði Þóroddssyni frá Hallgeirsey i Landeyjum, er bjó þarna næst á eftir Páli. Páll á Litla-Hólmi var sonur Jónasar frá Arnarholti í Stafholtstungum Jónsson- ar og Þorbjargar Stefánsdóttur, bónda á Heiði í Gönguskörðum, föðursystur síra Sigurðar Stefánssonar í Vigur og þeirra systkina. Faðir Jónasar i Arnarholti var sira Jón á Bergsstöðum (d. 1839) Jónsson- ar prests á Gilsbakka í Hvítársíðu, (d. 1796), er átti Ragnheiði, dóttur síra Jóns i Hvammi í Norðurárdal Sigurðssonar sýslumanns frá Hvítárvöllum Jónssonar, sýslumanns i Einarsnesi. Systur fóns prests á Bergsstöðum voru: a. Kristín Jónsdóttir, er átti Jón Fr. Thor- arensen, stúdent i Viðidalstungu. b. Halla Kristín Jónsdóttir, átti frænda sinn Jón stúdent Árnason á Leirá, er voru að öðrum og þriðja, en frá })eim eru miklar ættir komnar. Systkini Páls Jónassonar á Litla-Hólmi voru: a. Þorbjörn Jónasson, kaupmaður á Akra- nesi og í Reykjavík, sem segja mætti að kæmi nokkuð við stofnun verzlunar- innar Edinborg. b. Stefán Jónasson, var einnig eitthvað á Akranesi, fór til Noregs. c. Helgi Jónasson, átti Halldóru Guð- mundsdóttur. d. Jón Jónasson, drukknaði við Akranes á leið úr Reykjavík með Halldóri snikk- ara, 23. nóv. 1880. Telur Hallgrímur hreppstjóri mjög sennilegt, að Jón hafr einmitt verið formaður á skipinu. e. Ástríður Jónasdóttir, dó ógift og barn- laus. Heyrt hefi ég að þessir bræður hafi verið afarmenni að burðum. T. d. minnist Tryggvi Ófeigsson að hafa svo heyrt af hreysti Jóns^ sem talinn var þeirra sterk- astur. Það var einhverju sinni er Jón var við róðra, að hann var nærstaddur í fjör- unni, þar sem skip var að taka út og brim var á eða mikill dráttur. Er þá sagt cið Jón hafi með herkjum átt að ná i stýrislykkjuna, en það var til marks um hreysti hans, að á stýrislykkjunni hélt hann skipinu, þar til fleiri komu að og björguðu því. Sjálfsagt hefur þetta fólk um margt verið vel gefið. Árið 1945 gaf Ófeigur Ófeigsson læknir út all mikla bók í stóru broti, „Raula ég við rokkinn minn“ þulur og þjóðkvæði. Þar segir Ófeigur læknir frá gamalli konu, sem verið hafi hjá foreldrum hans í æsku Ófeigs. 1 kjöltu hennar hafi hann setið hugfangimi þar sem hún sagði endalaust sögur, raulaði vísur og fór með þulur. Það er auðheyrt, að þarna hefur verið af miklu að taka, lík- lega verið sagt vel frá og vel tekið við. Má því líklegast telja að þar liggi ræturnar að þessari bók Ófeigs læknis. En konan, sem hér um ræðir, var engin önnur en Ástríður Jónasdóttir fyrrnefnd, systri Páls á Litla-Hólmi og þeirra systkina. Árið 1900 var Páll Jónsson, útvegsbóndi i Vörum í Garði, þá talinn 48 ára gam- all. Bústýra hans var Sigríður Magnús- dóttir frá Miðhúsum í Garði, líklega elzt af 14 systkinum. Bróðir hennar er Gísli Magnússon, skósmiður og rakari í Borg- arnesi, sem mun hafa verið yngstur þeirra systkina. Þá er Sigríður talin 34 ára. Þar eru og þá talin þessi börn þeirra Páls og Sigríðar: Björg Sigríður, 11 ára, Magnea Guðrún, 6 ára, Jónas, 3 ára, Helga Mál- fríður á 1. ári. Páll .Tónasson deyr líklega 1902. I heiðinni vestan Langholts, er mér tjáð að sjá megi merkileg verksummerki manna. Það er fjárborg, eins og þær gerð- ust yfirleitt. Hringmynduð, og dregst að sér að ofan, með þröngum dyrum. Borg þessi er talin vera hlaðin af Ásgrími í Stóra-Hólmi og mönnum hans, og ber þess glöggt merki hve góðir hleðslumenn hafa þar verið að verki, því að grjót þar syðra er hnöttótt, og því illa lagað til hleðslu. Búið var að taka mynd af þessu mikla mannvirki í Litla-Hólmsvör, en þvi miður glataðist filman. Vona ég þó að geta birt mynd af þessu í næsta hefti. Sjósókn úr hinum erfiðu áhættusömu Tendingum, bæði á Suðumesjum og víðar á landinu þar sem skilyrði voru lík, var mikilsverður og gagnlegur skóli. Á þess- um litlu fleytum við hafnlausa strönd þurfti auðvitað að vera valinn maður í hverju rúmi að þreki, dugnaði, þrautseigju Framhald á síSu 68 48 AKRANES

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.