Akranes - 01.04.1955, Qupperneq 20

Akranes - 01.04.1955, Qupperneq 20
‘Jridrik ‘Biarnason: Iffiinningar Hreppamenn og Tungna, kynntust Norðlingum í fjall- göngum á haustin, en Norðlingar hafa löngum lagt rækt við alþýðukveðskap og kunna þvi mikið af rimna stemmum og vísnalögum og mun þetta að nokkru hafa glætt áhuga Sunn- lendinga fyrir hinum þjóðlegu iþróttum, vísnagerðinni og vísnasöngnum. Þegar getið er um gamla sönginn, dettur manni ósjálfrátt í hug hinn svonefndi „íslenzki tónn“, en þegar á hann er minnzt, mætti spyrja: Hver er hann? Hvar er hans að leita? Eða er hann nokkur til? Sinnir fræðimenn haida því fram, að gamli kirkjusöngur- inn, þ. c. sálmalögin o. fl. þvílíkt, sé islenzkur að uppruna, en sannanlegt er, að flest af þvi tagi er af erlendri rót runnið, en sumt hefur brenglast hér í meðferðinni. Menn hafa breytt lögunum á stöku stað, svo að þau samlöguðust betur háttum og hljóðfalli. En mestan þátt í þessum breytingum eiga þó hljóð- færin, stilling þeirra og meðhöndlun, sem oft hefur verið ábóta- vant, vegna ónógrar kunnáttu. Islenzk tónskáld hafa fram á síðari ár orðið að sækja menntun sína til erlendra þjóða og því orðið fyrir áhrifum þaðan. Alþýðan hefur smitast nokkuð af þessu. Líklegast er, að sum kvæða- og rímnalög, er áður voru hér sungin og kveðin, séu það helzta, er kunni að vera tilorðið hér á landi, en þó eftir erlendum fyrirmyndum upphaflega. Spurnmgunum þremur hér að framan er örðugt að svara með fullgildri vissu, en líklegt er, að hinn islenzki þjóðarsónn blundi í lögum þeim, er alþýðan hefur raulað á löngum vetrar- kvöldum og þaðan verði hann vakinn til lífsins, sem uppistaða í voldugum hljómkviðum, er vonandi verða samin hér í fram- tiðinni. Sum íslenzk tónverk, er gerð hafa verið á siðustu timum, gefa nokkra von um að svo megi verða. V. Leikfélag stofnað. Rétt áður en ég var fermdur, flutti móðir min með okkur bræður að Eystra-Iragerði í húsmennsku, til Þorgerðar Gisla- dóttur, sem þá var orðin ekkja; hún var móðursystir föður mins. Hún og maður hennar, Páll Eyjólfsson, höfðu alið upp móður mína frá tólf ára aldri og var hún hjá þeim sæmdar- hjónum, þar til hún giftist föður mínum, og við fráfall hans tóku þau hjón til uppfósturs yngsta hróður minn, er úr æsku komst. Litlu siðar tók móðir min saman við Jón Þórðarson, er var vinnumaður Þorgerðar og reistu þau bú i íragerði, en fluttu svo að Traðarholti og bjuggu þar lengi og síðar böm þeirra. Einn veturinn, er ég var í íragerði, stofnuðu nokkrir menn leikfélag, og var ég einn þeirra, þá átján ára að aldri. Lékum við tvo sjónleiki, er báðir voru íslenzkir. Annað leikfélag starf- aði þar einnig þennan vetur. Mikið atvinnuleysi var þá á Stokkseyri, eins og víðar í sjávarþorpum landsins og höfðu menn oft lítið að sýsla, einkum á vetrum. Oft var það á kvöldin, að við drengir milli fermingar og tvítugs aldurs, vorum í áflogum frammi á sandi eða niður við sjó, og barst þá leikurinn stundum inn í sölubúðirnar og vorum við þar með ærsl og hávaða, og svipað mátti segja um fullorðna menn, er þá höfðu litið að starfa. Slíkar tiltektir voru bein afleiðing af iðjuleysinu. Kvöld eitt, er ég var á heimleið úr slíkum leiðangri, rifinn og tættur, eftir ryskingar, fór ég að hugleiða, hvort ekki væri rétt af mér að fara að heiman, vinna fyrir kaupi að sumrinu, ef þess væri kostur, og læra eitthvað nytsamt að vetrinum, þvi að þá hafði þó vaknað hjá mér ofurlítil námslöngun. Þegar heim kom þetta kvöld, fékk ég harðar ávítur fyrir útiveruna, svo sem maklegt var. Lét ég þá i ljósi hugmynd mina um að fara að heiman, og var þvi allvel tekið. VI. Til náms og dvalar að heiman. Næsta vor fór ég til Reykjavikur, fékk þar vinnu við jarð- rækt, suður á Grímsstaðaholti, yfir vorið og sumarið, en var þá eigi fullráðinn i þvi, hvað gera skyldi að vetrinum. Seint i september var ég eitt sinn á gangi að kvöldi til, ásamt fermingarbróður mínum og æskuvini, Sigurði Adólfssyni frá Stokkseyri. Við gengum suður Skildinganesmela að loknu dags- verki, ræddum um hvað gera skyldi næsta vetur. Hann hafði helzt í hyggju að fá sér tímakennslu i Reykjavik. Er við höfð- um rætt þetta fram og aftur, verður okkur litið á reykjarmökk, er gaus upp í suðurátt, og kom okkur saman um, að hann væri úr gufuskipi, er mundi vera á leið til Hafnarfjarðar. Minntumst við þess þá, að í Hafnarfirði væri Flensborgarskólinn. Þar hafði k-ennari okkar fengið menntun sína og einnig Guðmundur Vernharðsson verzlunarmaður, en þeir voru þá helztu leiðtogar ungra manna á Stokkseyri, einkum í því, er til l'ræðslumálanna tók. Bar ég nú undir Sigurð, hvort ekki væri rétt af okkur að fara þangað næsta vetur til náms. Sigurður féllst brátt á það, og var nú ákveðið að fara þangað daginn eftir til viðtals við skóla- stjóra. Var nú áætlun fylgt og lagt af stað, sem leið liggur, til Hafnarfjarðar, í fögru veðri síðari hluta dags. Þetta var á laugar- degi. Löng þótti okkur leiðin, en landslag tilbreytilegt. Þar skiptust á hálsar og dældir, unz komið var suður í hraunið, úfið og óslétt. Loks fórum við yfir hæð eina, sem nú er nefnd Sjónarhóll, og fannst okkur, sem við þá værum að detta niður ! Fjörðinn. Þar sá á mæni húsþaka, upp úr hraungjótunum og var landslag hér allt öðruvisi, en við áttum að venjast úr lág- sveitum Árnessýslu. Við mættum þarna tveimur ungum Hafn- firðingum, kátum og fjörlegum; þeir sögðust vera nýkomnir af sjó og ætluðu að fara á ball, er halda átti þá um kvöldið og buðu okkur að vera með, sem við afþökkuðum og héldum því áfram ferðinni, sem leið liggur suður í Flensborg, því að þangað var förinni heitið, og þar hittum við Jón skólastjóra að máli, er tók okkur hið bezta. Við létum innrita okkur, sem nem- endur í skólann til næsta skólaárs. I Fjörðinn fluttum við eftir nokkra daga. Þetta var haustið i8gg. I Hafnarfirði voru þá tvær verzlanir og að sögn 5—6 hundruð marrns. Næsta sumar veiktist ég og var frá verki um tíma, og þar með lauk allri tilhugsun um frekara nám. Tveimur vetrum síðar var ég aðstoðarkennari við barnaskólann á Stokkseyri. Eftir þetta fór að batna hagur minn, heilsan skánaði og efnahagurinn, svo ,ég komst aftur i Flensborgarskóla og lauk þá kennaraprófi, vorið 1904. Aldrei tók ég þátt í söng, er ég var í skólanum. Skömmú fyr- ir aldamótin varð þessi vísa til meðal skólapilta, að afstöðnum söngtima: „Sifellt heyrðist suða’ og mas, söngfræðina enginn las. Allir stóðu sig upp á núll, nema exceedingly heutiful. 56 AKRANES

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.