Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1964, Side 11

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1964, Side 11
TlMAR.IT VFl 1964 35 ingum síðustu áratugina. Breytingarnar eru fyrst og fremst fólgnar í því, að vísindaleg þekking er hagnýtt í þágu atvinnulífs og framleiðslu í æ ríkara mæli. Á þetta einnig við í atvinnugreinum, sem stundaðar hafa verið frá fornu fari, svo sem landbúnaði og fiskveiðum. Hitt er þó ekki síður athyglisvert, að vísindin hafa beinlínis skapað fjölmargar nýjar atvinnugreinar, sem ekki voru til áður. Til dæmis er talið, að um helmingur Bandaríkjamanna starfi nú í atvinnu- greinum, sem ekki voru til fyrir fjörutíu árum. Þessi þróun hefur gerbreytt þjóðfélagslegu gildi vísinda, einkum þó raunvísinda. Fyrir nokkr- um áratugum höfðu vísindi fyrst og fremst menningarlegt gildi; þau voru þáttur í menningu hverrar þjóðar og að því leyti hliðstæð og sam- bærileg við bókmenntir, myndlist og aðrar listir. Hagnýtt gildi vísinda var næsta lítið, „bókvitið verður ekki látið í askana“, og vísindin voru í litlum tengslum við atvinnulífið. Þar gilti „prakt- isk“ þekking, ekki bókvit. Við vinnu var að mestu beitt sömu aðferðum og síðustu kynslóðir höfðu gert. í atvinnugreinum, þar sem nokkur bókleg þekking var nauðsynleg undirstaða starfskunn- áttu, var oftast um að ræða þekkingaratriði, sem læra mátti í eitt skipti fyrir öll. Þegar því námi lauk, voru menn „útlærðir“ í viðkomandi grein. Nú er allt þetta gjörbreytt. Nú hafa raunvís- indi ekki fyrst og fremst menningarlegt gildi á sama hátt og áður var, heldur beinlínis hagnýtt gildi samfara mikilli þýðingu þeirra í öðru menn- ingarlegu tilliti. Raunvísindin hafa vaxið ótrú- lega ört síðustu áratugina og eru nú orðin ein meginstoðin undir atvinnulífi þróaðra þjóða og þar með efnalegri afkomu þeirra. Margt bendir til, að mikilvægi þeirra muni enn vaxa, er fram líða stundir. Þýðing menntunar í nútímaþjóðfé- lagi hlýtur því að vera öll önnur og meiri en áður. í öllum greinum atvinnulífsins er þörf mun meiri þekkingar en áður. Menntun þjóðarinnar er orðin þjóðhagsleg nauðsyn samfara tækni- væðingu atvinnulífsins. Augljóst er að sú þróun, sem að framan hefur verið lýst, hlýtur að hafa gagnger áhrif á skóla- kerfi og fræðslumál. 3. íslenzkir menntaskólar í dag. Meginefni þessarar greinar er menntaskóla- námið á fslandi og því munum við eingöngu taka til frekari athugunar, hvernig menntaskólarnir hafa brugðizt við hinum breyttu kröfum, og við hvaða skilyrði þeir hafa unnið starf sitt. 1 stað þess að ræða menntaskólana almennt munum við hvað þetta snertir aðeins fjalla um Mennta- Nemendafjöldi í Menntaskólanum í Reykjavík. skólann í Reykjavík vegna stærðar skólans og kunnugleika okkar á honum. Lítum fyrst á hinn ytri aðbúnað, skólahúsið og alla aðstöðu til kennslu. Nemendafjöldinn hefur vaxið jafnt og þétt og er nemenda- fjöldinn 1943—1964 sýndur á meðfylgjandi línu- riti. Haustið 1946 þarf að fara að tvísetja í skól- ann að nokkru leyti, en menn sætta sig við þetta neyðarúrræði vegna þess að „uppi voru allmikl- ar ráðagerðir um framtíðarskipan skólans og húsakost, svo að ætla mátti að úr mundi rakna um þessi efni á næstu árum“*) • Þessi úrlausn lét samt á sér standa og hinn gamli skóli varð að rúma sívaxandi nemendafjölda. Sérstofur voru lagðar undir almenna kennslu og nýjar kennslustofur innréttaðar hvar sem auður krók- ur fannst. Á miðjum sjötta áratugnum var eklti talið lengur fært að draga byggingu nýs skóla og farið var að grafa fyrir grunni hins nýja skóla og rektorsbústaður reistur. Lengra kom- ust framkvæmdirnar ekki og nú, tæpum áratug síðar, þegar nemendafjöldinn er orðinn um tvö- falt meiri, er fyrst að rakna nokkuð úr húsnæð- ismálum skólans. Vegna þess hversu brýn þörf- in var orðin fyrir aukið húsnæði var varla ann- að talið mögulegt en að auka við hinn gamla skóla og þá í næsta nágrenni hans. Þar sem vafasamt verður að telja, að þessi byggingarsam- stæða muni fullnægja kröfum komandi ára, þarf ekki að fjölyrða um, hversu dýrar slíkar bráða- birgðalausnir geta orðið. Þó er öllu erfiðara að meta það tjón, sem þjóðfélagið hefur orðið fyrir vegna hinna skaðlegu áhrifa, sem hinn ó- fullkomni aðbúnaður hlýtur að hafa haft á kennsluna síðustu tvo áratugi. *) Skýrsla Menntaskólans í Reykjavík 1946—47.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.