Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1964, Page 13

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1964, Page 13
TlMARIT VFl 1964 37 gætu nemendur síðan valið eftir vissum reglum þær greinar, sem þeir óskuðu. Augljóst er, að ef slíkt fyrirkomulag yrði tekið upp, hlytu bekkj- ardeildirnar einnig að verða leystar upp að nokkru leyti. 6. Endurskoðun námsefnisins. Hér að framan hefur verið rætt nokkuð um tvo þýðingarmikla þætti kennslunnar í skólun- um: fyrirkomulag kennslunnar og skiptingu námsefnis eftir upplagi og áhuga nemenda. Þá viljum við ræða nokkuð þær breytingar, sem við teljum nauðsyn á að gera á sjálfu námsefninu. Við teljum, að höfuðatriðið með öllu tungu- málanámi í menntaskóla sé að þjálfa nemandann í að nota málið sem tæki til miðlunar á mannlegri hugsun, þ.e. til að skilja hugsanir annarra, sem tala og skrifa á málinu og að geta tjáð sínar eigin hugsanir á því. Af þessum ástæðum teljum við eðlilegast, að allir aðrir nemendur en þeir, sem síðar hyggjast leggja frekari stund á tungu- mál, læri svipað i tungumálum. Við teljum vafasamt hvort rétt sé að kenna nokkra latínu í menntaskólum. Þó væri hægt að gefa nemendum kost á að læra nokkuð í latínu með því að hafa hana sem kjörgrein. Þá teljum við nauðsynlegt að leggja meiri á- herzlu á grundvallaratriði hverrar greinar. Á þetta einkum við allar greinar raunvísinda. Sem dæmi um endurskoðun námsefnis í þeim anda, sem við teljum nauðsynlega, er ný bandarísk kennslubók í menntaskólaeðhsfræði gott dæmi. Árið 1955 var stofnuð nefnd að frumkvæði banda- rískra eðlisfræðinga og eðlisfræðikennara, sem skyldi vinna að því að láta semja nýja kennslu- bók í eðlisfræði, bók, sem fyrst og fremst stydd- ist við þá þekkingu, sem við höfum í þessari grein í dag en forðaðist aukaatriði eldri kennslubóka. Nefnd þessi, sem hlaut nafnið Physical Science Study Committee, réð í þjónustu sína 60 manns; eðlisfræðinga, kennara, teiknara, stjórnendur kvikmynda, tækjasmiði og fleiri. Þessi valdi hóp- ur vann í um það bil eitt ár að því að skapa nýtt námsefni í eðlisfræði fyrir bandaríska menntaskóla. Árangurinn af starfi þessa hóps er ný kennslubók, prýdd afburðagóðum skýring- armyndum, verklegar æfingar og áhöld og að lokum nokkrar kennslukvikmyndir. Sum atriði eðlisfræðinnar verða bezt skýrð með lesnum texta, önnur með æfingu, sem nemandinn fram- kvæmir sjálfur og enn önnur er auðveldara að skýra með kvikmynd. Þetta nýja námsefni var síðan reynt við nokkra menntaskóla í eitt ár, síð- an endurskoðað og nú kennt við enn fleiri mennta- skóla í eitt ár og þá fyrst var gengið endanlega frá þessu efni. Hin nýja kennslubók er gjöróhk öllum eldri kennslubókum í eðlisfræði. Megináherzlan er lögð á grundvallaratriði eðlisfræðinnar og þau skýrð mun rækilegar en maður á að venjast í kennslu- bókum. Öllum tæknilegum atriðum er sleppt. Enginn gufuhreyfill eða benzínhreyfill. Enginn ísmoli eða messinglóð, sem látin eru ofan í varma- mæli. Ekkert dæmi um Ohmslögmál. Hins vegar er í bókinni langur kafli um það, hvað mæling sé og hvaða takmörkunum hún geti verið háð. Bygging atóma og gerð fastra, fljótandi og loft- kenndra efna er skýrð ýtarlega. Við teljum, að nemandi, sem lært hefur þessa bók, standi ís- lenzkum nemendum með stærðfræðideildarstú- dentspróf langtum framar í eðhsfræði enda þótt fyrirferð námsefnisins sé svipuð. Þess má að lokum geta, að aUt starf nefndar- innar, sem að þessu stóð, kostaði um 200 miU- jónir íslenzkra króna. 7. Nýir menntaskólar. Nú er verið að fullgera viðbótarbyggingu fyrir Menntaskólann í Reykjavík til að leysa úr brýn- ustu nauðsyn skólans fyrir aukið húsnæði, en jafnframt hefur því verið lýst yfir að samtímis skuli hafinn undirbúningur að byggingu nýs menntaskóla í höfuðborginni. Þá voru bornar fram tvær tillögur á síðasta alþingi, sem báðar voru studdar af þingmönnum úr öllum flokkum, um að tveir nýir menntaskólar skuli stofnaðir, annar fyrir Vestfirði en hinn fyrir Austfirði. Við teljum fuUa þörf á að vara við að rasa hér um ráð fram. Varla getur nokkur vafi leikið á því að fram muni koma fljótlega tillögur um tölu- verðar breytingar á menntaskólunum. Á meðan þessar tillögur eru ekki komnar fram, er erfitt að skipuleggja nýja skóla. Varla efast nokkur um þörfina fyrir nýja skóla og hlýtur þetta því að vera fræðsluyfirvöldunum hvatning til að hraða störfum menntaskólanefndarinnar sem mest. Fyrst þegar grundvaUaratriðin um fram- tíðarskipulag menntaskólanna Uggur fyrir, fer hægt að taka til óspiUtra málanna og koma upp nýjum skólum. Engu að síður teljum við rétt að ræða nokkru nánar þau tvö frumvörp, sem fram hafa komið á Alþingi um nýja menntaskóla. Sam- kvæmt frumvörpunum er aðeins gert ráð fyrir einni deild við skólana, máladeild. Við leyfum okkur að fuUyrða, að slíkir skólar eigi sér eng- an tilverurétt í dag. Deildirnar þyrftu frekar að vera þrjár en tvær. Ennfremur má benda á, að nær óhugsandi yrði að sjá slíkum skólum fyrir

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.