Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 6. MA/2004 Frtttír DV Úttektá Samkeppnis- stofnun George W. Bush reynir að endurvinna traust arabaheimsins á Bandaríkjunum með því að biðjast afsökunar á niðurlægingum og pyntingum sem írakskir fangar hafa þurft að þola af hálfu bandarískra hermanna. Viðskiptaráðherra hefur farið þess á leit við rfkis- endurskoð- anda að stjórnsýslu- úttekt fari fram á Samkeppnisstofnun. Á síðustu 10 árum hefur ekki verið gerð stjórnsýslu- úttekt á stofnuninni. Ráð- herra segir unnið að því að reyna að styrkja stofnunina sem best en ákvarðanir um aukin íjárframlög séu í höndum Alþingis. Á næst- unni megi gera ráð fyrir að ný verkefni verði færð til Samkeppnisstofnunar og ætíar ráðherra sérstaklega að beita sér fyrir því að fjár- framlög til þeirra verkefha verði tryggð." Fjögur með fíkniefni Lögreglan í Kópavogi handtók §ó ra menn á tvítugsaldri í fyrrakvöld við hefðbundið eftirlit vegna grunsemda um fíkniefnamisferli. Að sögn Friðriks Björgvins- sonar, yfirlögregluþjóns í Kópavogi, fannst minni- háttar magn af fíkniefn- um í söluumbúðum á þessu fólki. Um var að ræða tæplega 15 gr. af amfetamíni og nokkur grömmafhassi. Sjóður styrkir Hjölla Fornleifasjóður hefúr úthlutað styrkjum. Fom- leifastofnun fékk milljón til rann- sókna í Kúvfkum í Strandasýslu og 520 þúsund til uppgraft- ar í kirkjugarðinum að Hofsstöðum í Mývatnssveit. Byggðasafn Skagfirðinga fékk 850 þúsund til úr- vinnslu gagna úr uppgreftri kirkjugarðs og kumlateigs í Keldudal í Skagafirði. Hjörleifur Guttormsson fékk 750 þúsund til forn- leifaskráningar á Hall- ormsstað. „Það er dásamlegt gluggaveð- urídag en dálltiö svalt,“segir Flosi Ólafsson, hestamaður og hugsuður á Bergi í Reykholts- dal.„En það er kominn voggrls I augun á hestunum mlnum Landsíminn emsog hestunum I Reykjavlk. Þetta er þó ekkert alvarlegt og gengur yfir á örfáum dögum. Ég fór á árshátíð Þormóðs ramma á Siglufirði um seinustu helgi tii aö reyna að vera skemmtileg- ur. Það tókst og mér var feikna vel tekið. Nú er ég að skrifa næstu jólabók en mig vantar titil á hana. Það hefur komið tii tals aö hún ætti aö heita Á grafarbakkanum. Þetta eru minningar frá öldinni sem var að líða. Það er djöfull gott að skrifa I Borgarfirði, þaö er svo innspírerandi. Ég fæ I senn innblástur og útblástur sem vonandi skitarsér". Bush segir framkomu vio fanga vera ólyrirgefanlega George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hélt ávarp á arabísku sjónvarpsstöðvunum Al-Hurra og Al-Arabiya í gær. Þar for- dæmdi hann meðferð hermanna á föngum í Abu Ghraib-fang- elsinu í írak í tilraun til að vinna traust arabaheimsins á ný. Mikið hefur verið fjallað um meðferð bandarískra hermanna á írökskum föngum eftir að myndir sem sýndu niðurlæginu og pyntingu fanganna komust í fjölmiðla. George W. Bush ákvað því að ávarpa araba- heiminn í gegnum sjónvarp í gær til þess að reyna að endurvekja traust fólks á Bandaríkjunum. Ófyrirleitin og óafsakanleg framkoma Bush sagði meðferðina á föngun- um hafa verið ófyrirleitna, óásætt- anlega og alls ekki vera fordæmi fyrir það sem Bandaríkin standa fýrir. Lofaði hann því að þeir sem væru ábyrgir fyrir pyntingunum og niður- lægingunum yrðu látnir svara til saka. Þetta hafði Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, raunar þegar látið frá sér fara á þriðjudag. Heimamönnum í írak þótti lítið til ræðu Bush koma og héldu uppi öflugum mótmælum fýrir utan Abu Ghraib-fangelsið í gær. Þar var fjöldi manna saman komin til að krefjast lausnar ættingja og ástvina sinna. Þá fordæmdu stjórnvöld í Frakklandi í gær meðferð Bandaríkjamanna og bandamanna á föngunum og sögðu hana vera brot á alþjóðasáttmálum. Var þessi hegðun hermanna banda- lagsþjóðanna sögð vera með öllu Heimamönnum í írak þótti lítið til ræðu Bush koma og héldu uppi öfíugum mótmælum fyrir utan Abu Ghraib- fangelsið í gær. Þar var fjöldi manna sam- an komin til að krefj- ast lausnar ættingja og ástvina sinna. ólíðandi og jafnframt kom fram að frönsk yfirvöld skildu vel viðbrögð umheimsins við þessum fréttum. Gagnrýni eykst Síðustu daga hafa menn víða lýst áhyggjum sínum af pyntingum fanga í írak og marga grunar að hún sé raunar mun útbreiddari en frétt- ir segja til um. Amnesty International og fleiri mannrétt- indasamtök hafa fordæmt meðferð fanganna og farið fram á að þeir hermenn sem hlut áttu að máli verði sóttir til saka. Heima í Banda- ríkjunum hefur gagnrýni á Bush aukist mikið í kjölfar þessa máls og meðal annars lét öldungadeild- arþingmaðurinn og flokks- bróðir forsetans, John McCain, hafa eftir sér að ráðamenn hefðu átt að láta þingið vita af þessu vandamáli fyrir löngu. Donald Rumsfeld, varnar- málaráðherra Bandaríkja- manna, varði hins vegar við- brögð ríkisstjórnarinnar og sagði að hernaðaryfirvöld hefðu strax látið vita af mál- inu þegar það kom upp og þegar í janúar hafi rannsókn hafist í nokkrum málanna. Mótmælendur hóta hefndum Einn liður Bandaríkja- manna í því að vinna traust arabaheimsins var að skipta um yfirmann í Abu Ghraib-fangelsinu. Nýi yf- irmaðurinn Geoffrey Mill- er, sem áður fór með yfir- stjórn í fangelsinu í Guant- anamo Bay á Kúbu, ávarp- aði mótmælendur fyrir utan fangelsið í gær þar sem hann sagði meðferðina á föngunum hafa verið ólög- lega og ekki samþykkta af sjálfum hernum. „Mig langar að biðjast afsökunar fýrir hönd bandarísku þjóðarinnar og hers- ins vegna illvirkja þessara fáu her- manna sem framkvæmdu þessar ólöglegu aðgerðir," sagði hann um leið og hann fýlgdi blaðamönnum um fangelsið. „Ég ábyrgist að þetta muni ekki endur- taka sig,“ bætti hann við. Mótmæl- endum fýrir utan - fangelsið þótti h'tíð . til afsökunarbeiðna og yfirlýsinga Bandaríkjamanna um bætt ástand koma og þótt mótmælin hafi að mestu farið friðsam- lega fram mátti heyra hróp og köll inn á milli þar sem hefndum var hótað. George W. Bush Kom fram i ar- abisku sjónvarpi i gær og badst afsökunar á meðferð banda- riskra hermanna á föngum i Abu Ghraib-fangelsinu. Karlmaður tekinn 1 Leifsstöð með 119 grömm af kókaíni Ákærður fyrir að flytja inn kókaín Birkir Benediktsson, þrí- tugur Austfirðingur, hefur verið ákærður fyrir innflutn- ing á 119 grömmum af kóka- íni. Það er lögreglustjórinn á Keflavíkurvelli sem ákærir Birki og segir í ákæru að hann hafi keypt kókaínið í Amsterdam og flutt það með sér hingað til lands frá Frankfurt mánudaginn 6. október á síðasta ári. Tollverðir fundu kókaínið í þremur pakkn- ingum innan í fóðri á jakka við leit í farangri hans við komuna til Keflavíkurflugvallar. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í Kókaín Grammið kostar um 12þúsund krónur á göturmi og áætlað verðmæti inn- flutningsins þvl um 1,5 milljón. gær og játaði Birkir sök. f ákærunni segir að það þyki sýnt að innflutn- ingur kókaínsins hafi að verulegu leyti verið ætlaður til sölu hér á landi í ágóðaskyni. Miðað við verðkönnun á heimasíðu SÁÁ má ætla að götuverð kókaínsins sé um ein og hálf milljón króna. Birkir er auk þess ákærður fyrir að hafa í vörslu sinni rúm fimm grömm af hassi og fíkniefnatól sem fundust við húsleit á dvalarstað hans í Vesturbænum í Reykjavík daginn eftir að hann var tekinn á flugvellinum. Ákærði á ekki að baki sakaferil. Dómur gengur í málinu næstkom- andi fimmtudag. Verðmæti bankanna dalar f kjölfar uppgjöra fyrsta árs- íjórðungs hefur verð bankanna gefið eftir í Kauphöll íslands. ís- landsbanki hefur lækkað um 1%, KB banki hefur lækkað um 5%, Landsbanki um 2,5% og Straum- ur fjárfestingarbanki um 5%. Frá upphafi árs hefur hækkun bank- anna hins vegar verið mjög mikil eða á bilinu 27% til 48%. Greining íslandsbanka telur að lækkun nú kunni að skýrast m.a. af því að fjárfestar vilji leysa inn hluta af gengishagnaði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.