Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Blaðsíða 13
DfV Fréttir
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ2004 13
Steinþórtil
Atlantsskipa
Steinþór Ólafsson hefur
verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Atlantsskipa, en hann
var áður forstjóri Sæplasts hf.
Steinþór starfaði á árum
áður meðal annars sem for-
stöðumaður flutningsviðs
hjá Eimskipum og fram-
kvæmdastjóri útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtækisins
Pesquera Siglo S.A de C.V. í
Mexikó. Steinþór er verk-
fræðingur og er í sambúð
með Elínu Gautadóttur verk-
fræðingi. Þau eiga tvö böm.
Linda og
unglingarnir
Sporthúsið ætlar að
styrkja söfnunina „EQúum
að íslenskum börn-
um“ með því að
bjóða upp á
íþróttanámskeið
fyrir krakka á aldr-
inum tólf til fjórtán
ára. Fimmtán
krakkar komast á
námskeiðið og
verða þau með eig-
in þjálfara. Meðal þess sem
tekið verður fyrir á nám-
skeiðinu er fótbolti, eróbikk,
skvass, körfubolti, golf, jóga
og tennis. „Með þessu viljum
við gefa þessum krökkum
möguleika á að kynnast því
enn betur hversu ánægjulegt
það er að eiga heilbrigt líf,“
segir Linda Pétursdóttir, eig-
andi Sþorthússins.
Flugmálastjórn hefur kært starfsmann Flugskólans Flugsýnar til lögreglu vegna al-
varlegra brota. Viö eftirlit kom í ljós að ekki hafði verið framkvæmt viðhald sem
sagt var að hefði verið framkvæmt. Flugsýn var til bráðabirgða svipt leyfi til verk-
legrar kennslu.
Flugskóli kæröur til Iðgreglu
Flugmálastjórn hefur kært starfsmann Flugskólans Flugsýnar til
lögreglu vegna misbresta í viðhaldsmálum flugvéla fyrirtækisins
Samkvæmt upplýsingum frá Flugmálastjóm em ekki fordæmi
fýrir kæm Flugmálastjórnar af þessu tagi á hendur aðila sem
hefur með viðhald að gera. Jafnframt hefur Flugskóhnn Flugsýn
verið sviptur leyfi til verklegrar kennslu til bráðabirgða.
Heimir Már Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Flugmálastjómar, segir
að þetta sé alvarlegt brot. „Allt eftir-
litskerfi í flugheiminum byggir á
trausti. Síðan eru gerðar úttektir til
þess að kanna hvort menn séu
traustsins verðir," segir Heimir Már.
Ósamræmi í umsókn
Flugsýn hafði leyfi til verklegrar
og bóklegrar kennslu til einkaflug-
mannsprófs. Heimir Már segir að
fyrirtækið hafi verið að sækja um
endurnýjun á lofthæfisskírteini fyrir
eina af fjórum flugvélum félagsins.
Lögð hafi verið fram gögn sem upp-
fyUtu ekki skUyrði fyrir lofthæfis-
skírteini en eitt af sldl-
yrðunum sé að
ársskoðun flugvélarinnar hafi farið
fram. Undir lok síðasta mánaðar
fóru eftirlitsmenn Flugmálastjórnar
á vettvang og gerðu úttekt á viðhaldi
flugvélarinnar. Segir Heimir Már að í
ljós hafi komið ósamræmi á mUli
þess sem sagt var í umsókninni að
búið var að framkvæma og þess sem
í raun og veru var búið að gera.
Sviptir kennsluleyfi
Flugmálastjóm ákvað 26. aprfl si.
að tilkynna Flugsýn að leyfi
þeirra tU verklegrar
kennslu hefði verið
dregið tU baka,
Þetta var gert með bráðabirgða-
sviptingu tU 15. maí nk. Fyrirtækið
fékk frest tíl andmæla en þegar sá
frestur var liðinn, þann 28. aprfl, er
leyfissviptingin staðfest og sama dag
er Lögreglunni í Reykjavík skrifað
bréf þar sem farið er fram á rann-
sókn vegna starfa flugvirkjans sem
sá um viðhaldið á þessari tUteknu
flugvél. Hefur hún einkennisstafina
TF-TOD.
Segjast vera að breyta
A heimasíðu Flugsýnar kemur
það eitt fram að flugkennsla liggi
niðri. Er eftirfarandi skýring gefin á
því: „Breytingar standa yfir á við-
haidsdeUd skólans þessa daga, og er
verið að koma flugvélum skólans í
gegnum þær viðamikiu skoðanir
sem þær þurfa að
standast
„Allt eftirlitskerfi í
flugheiminum byggir
á trausti. Síðan eru
gerðar úttektir til þess
að kanna hvort menn
séu traustsins verðir."
á ári hverju. Verkleg flugkennsla
liggur niðri af þessum sökum en gert
er ráð fyrir að kennsla hefjist að nýju
laugardagin 15.maí næstkomandi."
Ekki náðist í forsvarsmenn Flug-
sýnar í gær.
Heimir Már Pétursson Upplýsingafulltrúi
Flugmálastjómar segir
brotið alvarlegt.
Ein af fjórum flugvélum Flugsýnar
Hafa verið sviptir leyfi til kennsluflugs
og kærðir til lögreglu.
||,' l
■ * ‘ p n
-
■" íiSSiöS®
: MnBnpBpHHI
■
Þorður Jónsson, löggf
gjafi á viðskiptasviði.
Frjálsi fjárfestingarbankinn hefur á að skipa hópi
fagfólks með víðtæka reynslu, ríka þjónustulund
og sérfræðiþekkingu á öllum sviðum lánastarfsemi;
viðskiptafræðingum, löggiltum fasteignsöium og
lögmönnum.
Þessu fólki geturðu treyst