Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Page 21
DV Sport
Totti ekki til
Englands
ítalska stórstjaman
Francesco Totti, segist ekki
hafa áhuga á að spila í
Englandi. Hann segir
aðeins komi til greina að
spila áfram með Roma eða
fara til Real Madrid. „Ég vil
helst vera áfram hjá Roma,“
sagði Totti. „En Roma
verður að hafa burði til
þess að vinna tida. Ef ekki
þá vil ég gjarna fara til
Madrid. Það kemur ekki til
greina að spila fyrir annað
ítalskt félag og enski
boltinn heillar mig ekki. Ég
mun fylgjast með hvað
gerist hjá Roma áður en ég
ákveð mína framtíð."
Hasselbaink
ósáttur
Jimmy Floyd Hassel-
baink, framherji
Chelsea, hefur enn og
aftur líst andúð sinni á
skiptikerfi Claudios
Ranieri, stjóra Chelsea.
„Við vitum aldrei hver
mun spila hverju
sinni," sagði Hassel-
baink. „Það kemur
alltaf á óvart. Tveim
tímum fyrir leik vitum
við jafii mikið og Gunni
á bolnum. Ég hræðist
ekki samkeppni en
stundum er sam-
keppnin ósanngjöm."
Bronckhorst
til Barca
Hollendingurinn Gio-
vanni Van Bronckhorst
mun væntanlega ganga í
raðir Barcelona á næstu
dögum. Bronckhorst hefur
verið í láni hjá Barca frá
Arsenal í vetur og staðið sig
vonum ffamar. Þjálfari
Barca, Frank Rijkaard, er
verulega ánægður með
Bronckhorst og vill byrja
sumarið á að kaupa hann.
Reid tekur
við Coventry
Peter Reid hefur tekið
við stjórnartaumunum
hjá enska 1. deildar-
Hðinu Coventry City.
Reid hefur verið
atvinnulaus sfðan hann
yfirgaf Leeds United í
nóvember síðastíiðnum.
Hann tekur við starfinu
af Eric Black sem var
óvænt rekinn úr starfi en
hann tók við af Gary
McAllister í janúar er
McAllister álcvað að
hætta af persónulegum
ástæðum.
Vonbrigöi Chelsea er úr leik í meistaradeildinni eftirjafntefli gegn Mónakó. Hér séstjoe Cole
niðurlútur i leikslok. Reuters
Chelsea datt út úr meistaradeildinni í
gærkvöldi eftir jafntefli gegn Mónakó.
Eiður Smári Guðjohnsen verður ekki íyrsti fslendingurinn til að
spila í úrslitaleik meistaradeildar Evrópu. Það varð klárt í
gærkvöldi þegar Chelsea gerði jafntefli, 2-2, gegn Mónakó í
seinni leik liðanna í undanúrslitum á Stamford Bridge. Fyrri
leiknum lauk með sigri Mónakó, 3-1, og mætir franska liðið,
undir stjórn fyrrum leikmanns Chelsea, Didier Deschamps,
portúgalska liðinu Porto í úrslitaleik í Gelsenkirchen í
Þýskalandi.
Það var mikiH hugur í
leikmönnum Chelsea í byrjun leiks
og hver stórsóknin á mark Mónakó
rak aðra. Yfirburðimir voru algjörir
en þeim tókst þó ekki að komast yfir
fyrr en á 22. mínútu en þá skoraði
Daninn Jesper Gronkjær heppnis-
mark. Hann hugðist gefa boltann
fyrir en ekki vildi betur til en boltinn
sigldi í háum boga í hornið yfir
Flavio Roma, markvörð Mónakó,
sem varði oft á tíðum frábærlega.
Nokkrum mínútum síðar var
síðan Eiður Smári Guðjohnsen
nálægt því að bæta öðru marki við
en skalli hans fór í þverslána.
Spænski framherjinn Fernando
Morientes fékk tvö dauðafæri hjá
Mónakó. Fyrst varði Carlo Cudicini,
markvörður Chelsea, skot hans í
stöng en síðan skaut hann rétt
framhjá úr dauðafæri. Stórsókn
Chelsea borgaði sig þó öðru sinni á
44. mínútu en þá skoraði Frank
Lampard fallegt mark eftir glæsilega
sendingu frá Eiði Smára. Á þessum
tímapunkti var Chelsea áfram í
keppninni en það var reiðarslag
þegar Mónakó minnkaði muninn í
2-1, á síðustu sekúndum fyrri
hálfleiks. Hinn magnaði kantmaður
Jerome Rothen fór þá Ola með Mario
Melchiot, bakvörð Chelsea, gaf fyrir
á Morientes sem skaUaði í stöngina
en Hugo Ibarra náði að koma
boltanum yfir línuna.
Leikmenn Chelsea réðu síðan
ferðinni fyrsta stundarfjórðunginn í
síðari hálfleik en á 60. mínútu
þögguðu leikmenn Mónakó endan-
lega niður í Chelsea-liðinu. Fern-
ando Morientes jafnaði þá metin
með fallegu marki eftir að hafa leikið
vörn Chelsea grátt. Leikmenn
Chelsea náðu aldrei að rífa sig upp
eftir þetta enda ljóst að þeir þurftu
að skora þrjú mörk til að komast
áfram.
Leikmenn Mónakó fögnuðu sæti
í úrslitaleiknum en ævintýri Eiðs
Smára Guðjohnsen er á enda í bili -
hann þarf að bíða í eitt ár til viðbótar
að minnsta kosti eftir að komast í
úrslitaleik meistaradeildarinnar.
FRJÁLST
Starfsmannafélög
Norðurljósa efna til
útifundar á Austurvelli
í dag, fimmtudaginn 6. maí,
frá kl. 17-19
til að mótmæla
fjölmiðlafrumvarpinu.
Margir af þekktustu tónlistar- og
skemmtikröftum landsins koma
fram okkur til stuðnings og fluttar
verða ræður. Við mótmælum
fjölmiðlafrumvarpinu í núverandi
mynd. Við ætlum að mæta...
...hvað með þig?
Sýndu stuðning í verki.
Komdu á Austurvöll í dag
milli kl. 17 og 19.