Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Qupperneq 31
DV Síðast en ekki síst FIMMTUDAGUR 6. MAl2004 31 .■* Hin lífseiga leiklistarklíka Mikla athygli vakti nú um daginn að konur sem tengjast leiklist, á einn eða annan hátt, komu saman til að meta þá sérkennilegu stöðu sem ís- lenskt karlaveldi hefur búið leikhst- inni hér á landi. Menn breyta bara lögum ef karhemban vill þann hátt við hafa og þjóðleikhússtjóri fær að sitja svo lengi sem klíkubræður hans leyfa. Svo fátt eitt sé nú nefnt Þegar klíkuskap, ættartengslum, vinaböndum og hjúskaparstöðu sleppir, virðist það skipta miklu máli í íslensku leikhúsi að vera karlkyns. Það er hreinlega til skammar hvem- ig hæfileikaríkar konur hafa mátt þola það að körlum sé ýtt á ffemstu fjöl meðan þær sjálfar hafa fengið að bíða í skugganum. Auðvitað þarf að breyta þessu. Kristján Hreinsson skrifar um Þjóðleikhúsið Kjallari er í þriðja sæti yfir þá höfunda sem ráðnir hafa verið til Þjóðleikhússins. Einungis tveir höfundar hafa fengið lengri umhugsunarfrest á launum hjá leikhúsi allra landsmanna. En þess má geta að eiginkona þjóðleik- hússtjóra er einnig í hópi þeirra sem leikhúsið hefur ráðið til að skrifa leikrit. Harmrænt flopp Klíkan ekki eingöngu kyn- bundin Klikan í leikhstinni er ekki ein- vörðungu kynbundin, því hér hafa vensl, ættemi, vinátta og hjúskapar- staða í fjölmörgum tilvikum ráðið því hvað hefur farið á svið. Síst hafa hagsmunir fjöldans verið hafðir að leiðarljósi í leikhstinni þegar þjóð- leikhússtjóri hefur keypt verk eftir eiginkonu sína, sett sjálfur upp glat- að framhald af einhverju sem færði honum frama í eina tíð, sett upp sýningar th að láta gamla drauma rætast eða th að þóknast vinum, vandamönnum eða klíkubræðmm. Það að núverandi leiklistarráðu- nautur Þjóðleikhússins skuli velja leikrit eftir eiginmann sinn með jöfnu milhbih, ætti líka að sýna okk- ur að íslenski bolurinn lætur enda- laust tal um klikur sem vind unm eyru þjóta. í skýrslu sem nýverið kom frá menntamálaráðuneytinu sem svar við fyrirspum á Alþingi má sjá að eiginmaður leikhstarráðunautarins Æth þjóðleikhússtjóri fari ekki að vinna sem ráðgjafi hjá listahátíðar- nefnd þegar og ef hann lætur af nú- verandi embætti. Er hann kannski nú þegar kominn á launaskrá hjá eiginkonunni? Það að forráðamenn leikhúsa hafa látið einkahagsmuni og tengsl við höfunda ráða miklu um það hvort verk hafa komistásvíð eður ei, 'hefur eyðilegt íslenska ieikritun meira en flest annað, vegna þess að hæfileikar og burðir hafa oft á tíðum ekki ráðið neinuum gæði þess efni- viðar sem um fjalir hefur farið. Það hlýtur að skaða ímynd leik- ritunar heillar þjóðar þegar leikhús- stjóri setur t.d. upp harmrænt flopp eftir ástkæra eiginkonu sína og leik- hstarráðunautur býður okkur leik- verk rituð af ástrikum eiginmanni, því hér er sem hjúskaparstaðan ein ráði för. í öhu falli em hæfileikamir ekki neitt sérstaklega að flækjast fyr- ir umræddum leikskáldum. Eftir að floppin em opinbemð, er síðan reynt að fyha í dældir með klénum skrautsýningum, stöðluð- Ég mun styðja konur í því að ná fram breyting- um til batnaðar í leiklistinni hér á landi, og mæli þess vegna með því að menn segi hinni langlífu leiklistarklíku stríð á hendur. um pakkasýningum og íburðarmikl- um klisjum sem veita mér sjálfum htið annað en velgju, þótt félagsleg hohusta og ættarpukur komi jafnan lofi á framfæri meðal þeirra sem um tauminn halda. Ég nefni hér einungis fá dæmi um spihingu, sem ég kaha svo, en læt mönnum eftir að velta sér upp úr öhu hinu sem þykir best geymt und- ir þykku teppi. Ég gæti nefnt ótal dæmi, en kýs að misbjóða lesendum ekki með of nákvæmum lýsingum á spihingu í íslensku leikhúslífi. Styðurkonur Anhað það sem hefur staðið ís- lenskri leikritun fýrir þrifum, er að hér hefur ríkt um það samkomulag að þegja í hel allt tal um þau áhrif sem klíkur, ætterni, hjúskapur og jafnvel pólitískar skoðanir hafa á stöðu mála. Þetta á reyndar við um aht listalíf í landinu. En það er nú önnur saga. Þegar maður spyr sig að því, hvemig í ósköpunum geti staðið á því að aldrei hefur verið farið út í það að eyrnamerkja visst hlutfah af rekstrar- kostnaði Þjóðleikhússins íslenskri leikritun, þá verður fyrst fátt um svör, því ef vera kynni að fyrirslátturinn fæli í sér að ekki sé til nóg af fram- bærilegum leikritum, þá gefur auga leið að bæta má um betur með því að setja fjármagn í íslenska leikritun. Þingmenn koma með fyrirspurn- ir, leitað er svara og svo kemur að því að túlka niðurstöður og þá er það klíkan sem gefur tóninn. Hvernig ráðherra túlkar tölur sín- um pótintátum í hag og hvernig vís- vitandi er verið að fela þann raun- veruleika sem íslensk leikskáld upp- lifa, er ekkert annað en rökrétt fram- hald þeirrar fásinnu sem viðgengist hefur hér á landi lengur en elstu menn þora að muna. í landi þar sem ráðherrar eru hafnir yfir lög og rétt, er vart hægt að gera ráð fyrir að kærur og klögumál beri árangur. Þótt niðurstöður Ríkis- endurskóðunar sýni að Þjóðleikhús íslands hafi verið rekið eins og þrotabú í umsjá fábjána, þá yppa menn öxlum og láta leikræna til- burði gefa það th kynna að vart sé byltingar þörf. Ég mun styðja konur í því að ná fram breytingum til batnaðar í leik- listinni hér á landi, og mæli þess vegna með því að menn segi hinni langlífu leiklistarklíku stríð á hend- ur. Ef það gerist þá munu forkastan- leg vinnubrögð forráðamanna í ís- lensku leikhúslífi kannski heyra sög- unni til. Krístján Hreinsson Eggert Haukdal, búfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, var geysi aðsópsmikill í íslensku þjóðlífi fyrir um tveimur áratugum. Eggert var alþingismaður fyrir Sjálfstæðis- flokkinn á Suðurlandi á árunum 1978 til 1995. Hann var reyndar utan flokka 1979 til 1980 vegna ágreinings við flokkssystkini sín. Eggert var oddviti í Vestur-Land- eyjahreppi frá árinu 1970. Eftir að pólitískir andstæðingar hans náðu yfirhöndinni í hreppsnefhdinni var honum gefið að sök að hafa misfar- ið með fé sveitarsjóðsins. Eggert hefur alla tíð haldið ff am sakleysi sínu í því máh en var á endanum dæmdur fyrir hluta sakargifta. Frá því Eggert lét af starfi oddvita hefur hann setið á bóh sínu á Bergþórs- hvoh n. Jörðin er í eigu ríkisins og hefur Eggert sem leiguhði á Berg- þórshvoh til fjölda ára falast eftir kaupum á jörðinni. Sveppi, Simmi og Auddi Ætla að láta rikisstjórnina heyra það ídag með úti- fundi á Austurvelli. Hljómsveitir munu koma fram, 70 mín- útur verða með eitt- hvað grin og hvetur Simmi sem flesta til að mæta og mót- mæla fjölmiðlafrum■ varpinu. • Þess er beðið í ofvæni að Halldór Ásgrímsson, rísandi forsætisráð- herra, leysi ráð- herrakrísu flokks- ins og láti náðar- höggið faha. Sú skoðun er þó uppi að hann muni sök- um ákvarðanafælni draga það fram eft- ir sumri. Talið er einsýnt að vahð standi á mihi Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra eða Sivjar Friðleifsdóttur umhverf- isráðherra. Sjálf er hún hvergi bang- in og lýsir af innhfun á heimasíðu sinni daglegum viðburðum. Meðal annars lýsti ráðherrann því hvernig hún missti sig í Ikea og verslaði fyrir 10 þúsund kall. „Væntanlega liggur útpæld rannsókn á neytendahegð- un á bak við velgengni Ikea," segir Siv sem um kvöldið borðaði appel- sínukjúkhng... • Meðal þeirra sem taldir em eiga bjarta framtíð innan Sjálfstæðis- flokksins er Andri Óttarsson, sem sit- ur í útvarpsráði fyrir flokkinn. Andri þyldr hafa sýnt góða takta og snerpu í ýmsum málum og hefur meðal ann- ars ritað athyghsverðar greinar á deiglan.com. Andri barðist fyrir for- mennsku í Heimdalh við síðusm kosningar en dró ffamboð sitt til baka eftir harðar deilur. En fullvíst er talið að hann eigi eftir að láta duglega að sér kveða. Þeir em færri sem vitaþað að Andri er sonur geðlæknisins Ott- ars Guðmundssonar sem þekktur er fyrir leiðbeiningar sínar á sviði kyn- lífs... 70 mínútur gegn Dnvíö „Það verður mótmælafundur á Austurvehi í dag á milh 17 og 19 til að mótmæla þessari skömm sem þetta fjölmiðlafrumvarp er,“ segir Sigmar Vilhjálmsson, sjónvarps- maður á Stöð 2, sem er betur þekkt- ur sem Simmi Idol-kynnir. Hann hefur ásamt nokkrum starfsmönn- um Norðurljósa efnt til samkomu á Austurvehi tíl þess að mótmæla fyr- irhuguðu fjölmiðlafrumvarpi Dav- íðs Oddsonar forsætisráðherra. „Það verður nóg um að vera þama. Hljómsveitir munu sýna stuðning í verki með því að spUa fyrir okkur ljúfa tóna og það kæmi mér ekkert á óvart ef að strákamir í 70 mínútum myndu eitthvað láta tU sín taka. Þeir hafa sjaldnast skorast undan þegar þarf að mótmæla einhverju þannig að það er óhætt að lofa góðri skemmtun," segir Simmi sem ann- ars er ekki mikið skemmt þessa dag- ana þar sem umrætt frumvarp gæti orðið tíl þess að hann missi vinn- una. „Ég hvet bara sem flesta tíl að mæta og sýna stuðning. Þetta mál snertir aUa íslendinga sem einhvern áhuga hafa á afþreyingu því frum- varpið mun að öllum líkindum ganga af henni dauðri," segir Simmi. Ertu, besta gorminnt ? Amerískar lúxus heilsudýnur Queen 153 x 203 cm Verð frá 68.500,- með grind 'M

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.