Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Síða 3
I>V Fyrst og fremst
MIÐVIKUDAGUR 12. MAl2004 3
Halldór Laxness leitaði ekki langt yfir skammt í Nóbelsræðunni
Spurning dagsins
Hún amma mín kenndi mér...
Þegar Halldór Laxness tók við Nóbelsverðlaununum í Stokk-
hólmi 1955 varð honum tíðrætt um ömmu sína, Guðnýju
Klængsdóttur, en um hana hafði hann oft talað áður og þakkaði
henni stóran hluta af sinni menntun. Hún bjó í Laxnesi þar sem
hann ólst upp, kenndi honum kvæði og sögur og innrætti hon-
um eiginlega stóíska heimspeki, nema hún hafi verið hallari
undir Bókina um veginn, svona innra með sér, því hvorki stóu-
spekinga né Lao Tse hafði þessi óbreytta íslenska kona lesið.
Halldór sagði hátíðargestum í Stokkhólmi ýmislegt um
þessa frægustu konu íslandssögunnar og var þar komið ræð-
unni að hann taldi upp nokkra sem honum varð hugsað til þeg-
ar hann frétti að hann fengi líklega Nóbelsverðlaunin.
„Ég hugsaði einmitt til þeirra undursamlegu manna og
kvenna þjóðdjúpsins, sem veittu mér fóstur. Ég hugsaði til föð-
ur míns og móður minnar, og ég hugsaði sér í lagi til hennar
ömmu minnar gömlu, sem var búin að kenna mér ótal vísur úr
fornöld áður en ég lærði að lesa. Ég hugsaði og hugsa enn á
þessari stundu tO þeirra
heilræða sem hún inn-
rætti mér barni: að gera
öngri skepnu mein, að lifa
svo að jafnan skipuðu
öndvegi £ huga mér þeir
menn sem eru kaliaðir
snauðir og litlir fyrir sér,
að gleyma aldrei, að þeir,
sem hafa verið beittir
órétti eða farið góðra
hluta á mis, þeir sem hafa
verið settir hjá í tílverunni,
einmitt þeir væru menn-
irnir, sem ættu skOið alúð,
ást og virðingu fólksins
umfram aðra menn hér á
íslandi. Halldór f æsku
Ég lifði svo alla bernsku mína á íslandi, að miklir menn, sem
svo eru nefndir, og höfðingjar voru aðeins ævintýramynd og
loftsýn, en umhyggja fýrir aðþrengdu lífi var það siðferðisboð-
orð, sem í heimahögum mínum eitt bar í sér veruleikann.''
Og undir lok ræðunnar sagði Halldór:
„Eg spurði mig þetta umrædda kvöld: Hvað má frami og
frægð? Hvað má frægð og frami veita skáldi? Skemmtilega vel-
sælu af því tagi, sem fylgir hinum þétta leir. En ef íslenzkt skáld
gleymir upphafi sínu, þjóðdjúpinu, þar sem sagan býr, ef hann
missir samband sitt og skyldur við það líf, sem er aðþrengt, það
líf, sem hún amma mín gamla kenndi mér að búa öndvegi í
huga mér, þá er frægð næsta lítOs
virði og svo það hamingjulán
sem hlýzt af fé.“
Guðný Klængsdótt-
ir fékk því miður ekki
að lifa þessa stund í
lífi dóttursonar síns.
Hún hafði andast í
hárri elli árið 1924 og
var þá 92 ára gömul.
Næstum allir þola mót-
mæli en vilji maður reyna
virkilega á einhvern,
veitið honum þá vald.
Abraham Lincoln
Er framkvæmdavaldið að
niðurlægja þingið?
Þingmenn lúta flokksaga
„Það er þingræði á Islandi, sem ætti að
þýða að þingið hefði öll ráð ríkisstjórnar-
innar í hendi sér. Þar ámóti kemur að
þingmenn lúta flokksaga sem sýnirsig í
þessu máli, að því er virðist, eransi mikill."
Sigurður Gizurarson hæstaréttarlög-
maður.
„Já, mér finnst
það birtast með
ýmsum hætti. Ég
hefekkiséðí
annan tíma jafn
mörg merki um
stjórnlyndi ráð-
andi afla i framkvæmdavaldinu
ognúna."
Sigurður G. Tómasson út-
varpsmaður.
„Mér finnst það
að sumu leyti."
Katrín Sig-
hvatsdóttir.
„Maðurereins
og eitt stórt
spurningamerki
þessa dagana
og vill bara sem
minnst láta hafa
eftirsér."
„Ég þekki það
ekki nógu vel til
að mynda mér
skoðun."
ValurValtýs-
son, sjómaður.
Margrét Lóa Jónsdóttir
skáldkona.
Fjölmiðlafrumvarpið er keyrt í gegnum þingið á miklum hraða
þrátt fyrir hörð mótmæli stjórnarandstöðunnar.
Ég-skil-þig-ekki-skagi
og Demantur fjallanna
Staðir geta fengið nöfn af alls
konar ástæðum og ekki alltaf alls
kostar heiðarlegum. Við íslending-
ar þekkjum gott dæmi þar sem Ei-
ríkur rauði nefndi nýfundið land í
vestri Grænland, beinlínis til að
lokka þangað landnema. Svipað er
upp á teningnum varðandi suður-
odda Afríku. Þegar portúgalski
landkönnuðurinn Bartholomeu
Dias komst þangað fyrstur Evrópu-
búa 1488 skírði hann syðsta odd-
ann Stormhöfða. Portúgölskum yf-
irvöldum var þá mikið kappsmál
Einkennileg nöfn
að hvetja sjómenn sína til að halda
áfram siglingum og tilraunum til
að finna leiðina til Indlands. Þeim
þótti nafnið fráhrindandi og líklegt
til að letja menn frá því að sigla í
kjölfar Diasar. Vart mundu menn
sigla á slóðir þar sem virtist ríkja
eilífur stormur. Því ákvað Jóhann
2. konungur að skíra höfðann upp
á nýtt og kalla hann Góðrarvonar-
höfða.
Árið 1860 hugðist bandaríska
þingið skíra og skilgreina nýtt
landnáms- og námasvæði í vestri
og að tillögu George nokkurs Will-
ings hafði verið afráðið að kalla
það „Idaho" sem hann sagði að
væri úr indíánamáli og þýddi
„demantur fjallanna". Á síðustu
stundu kom í ljós að Willing hafði
af eintómri stríðni búið orðið til og
var svæðið þá kallað Colorado sem
er spænska og þýðir „rautt", af því
Colorado-fljót var rauðleitt af leir.
Þrem árum seinna þurfti að skíra
nýtt námasvæði í vestri og þá
höfðu menn gleymt hrekkjabragði
Willings og nafnið Idaho varð þá
fyrir valinu. Það festist í sessi og
1890 varð Idaho eitt ríkja Banda-
ríkjanna.
í Mexíkó er Yucatan-skagi.
Hann hlaut nafn þegar spænski
landkönnuðurinn Francisco Cor-
doba kom þangað 1517 og spurði
Maya-indíánana á svæðinu hvað
skaginn héti. Þeir svöruðu:
„Yekteten" og taldi Cordoba það
vera nafnið á skaganum. I raun
réttri þýðir svar indíánanna þó
annað: „Ég skil þig ekki.“
Æ ' RM
.
Forsetinn
frumkvöðullinn
Þann !2.febrúar 1809fæddusttveirmennsem
báðir áttu eftir aðhafa ríkuleg áhrifá sögu 19.
aldarinnar og áhrifþeirra teygja sig einnig yfir
alla 20. öldina og fram á þennan dag. Vestur I
Kentuckyí Bandarikjunum fæddist Abraham Lincoln sem haslaði sér
völl i stjórnmálum og varkjörinn forseti landsins 1860. iShrewsbury
á Englandi fæddist hins vegar Charles Darwin sem lagði fyrir sig
náttúrufræði og gafárið 1859 út bókina Uppruni tegundanna þar
sem þróunarkenningin var sett fram. Hún vakti gífurlega úlfúð, ekki
sist sú ályktun Darwins aðmenn væru komnir aföpum.
FEGURÐ ■ HREYSTI ■ HOLLUSTA