Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ2004
Fréttir DV
Aftaka á
myndbandi
Myndband sem sýnt er á
heimasíðu herskárra ís-
lamskra samtaka sýnir þeg-
ar hópur manna, tengdur
al-Kaída, tekur Bandaríkja-
mann af lífi. Á myndband-
inu eru jafnframt send skila-
boð þess efnis að fleiri af-
tökur séu í bígerð til að
hefna fyrir grimmilega með-
ferð á írökskum föngum.
Myndbandið sýnir fimm
grímuklædda menn standa
yfir manninum sem segist
heita Nick Berg og vera
bandarískur verktaki. Að því
loknu er maðurinn háls-
höggvinn og höfði hans
veifað frarnan í myndavél-
Þjóðminjasafnið hyggst höggva út átta metra sverð í granít og koma fyrir á Mela-
torgi. Leitað er kostunaraðila sem er tilbúinn að borga sex milljónir. Snorri Már
Skúlason, kynningarfulltrúi Þjóðminjasafnsins, segir að sverðið myndi verða tákn-
mynd borgarinnar allrar. Beðið er viðbragða Heimsmetabókar Guinnes.
ina.
Halldór hissa
og hvumsa
Utanríkisráðuneytið
hefur sent frá sér fréttatil-
kynningu í kjölfar þess að
mannréttindasamtökin
Amnesty á íslandi töldu
undarlegt að pyntingar
stríðsfanga í Irak kæmu
Halldóri Asgrímssyni í
opna skjöldu. í tilkynningu
ráðuneytisins kemur fram
að það furði sig á því
að svo virt samtök
haldi því fram að
íslenskum stjórnvöld-
um mætti vera vel
kunnugt um ásakanir
um pyntingar. í bréfi
og skýrslu samtak-
anna til Halldórs kom
fram ítarlegur kafli um
pyntingar á föngum í írak.
Amnesty svaraði ráðuneyt-
inu í gær, sagði gögn sín
opinber og harmaði að
stjórnvöld vestrænna ríkja
hefðu ekki brugðist við fyrr
en myndir af pyntingum
birtust í fjölmiðlum.
Þrír létust í
sprengingu
Þrír létust og tugir
manna slösuðust í
geysiöflugri sprengingu í
plastverksmiðjunni,
Stockline Plastics, í
Glasgow í gær. Nokkrir
hinna slösuðu berjast fyrir
lífi sínu á sjúkrahúsi.
Sprengingin varð skömmu
eftir hádegi í gær og hrundi
þak byggingarinnar og
veggir þannig að grindin
ein stóð eftir. Fjölmargir
grófust undir og var fimm
manns enn saknað I
gærkvöldi.
Már Skúlason „Ég
Snorri
hefhaft samband við
heimsmetabók Guinnes upp
áþað hvort þetta yrði ekki
stærsta vikingasverð i heimi.
Kaldárhöfðasverðið í
granít Svona sér Þjóðminja-
safnið fyrir sér granítsverðið.
Þjóðminjasafnið leitar nú logandi ljósi að velunnara til að kosta
sjö og hálfs metra hátt granítsverð sem reist yrði á Melatorgi;
hringtorginu við safnið. Kostnaður er áætlaður ftmm til sex
milljónir króna.
„Sverðið yrði eftirlíking af einum
þekkasta grip Þjóðminjasafnsins,
Kaldárhöfðasverðinu," segir Snorri
Már Skúlason, kynningarfulltrúi
Þjóðminjasafnsins.
Skyndihugmynd endar í
graníti
Snorri Már segist vilja taka það
skýrt fram að á þessu stigi sé aðeins
um metnaðarfulla hugmynd að
ræða. Bæði eigi eftir að fá öll tilskilin
leyfi borgaryfirvalda og enn eigi eftir
að fjármagna smíði og uppsetningu
granítsverðsins.
„Upphaflega var hugmyndin sú
að stórt sverð yrði sett upp tíma-
bundið í sambandi við opnun safns-
ins í haust. Svo þróaðist málið áfram
og er komið á það stig að menn vilja
gera sverðið varanlegt og láta
höggva það út í granít," segir kynn-
ingarfulltrúinn.
„Staðsetning stór-
fenglegra listaverka á
hringtorgum er
algengí borgum víðs-
vegar um Evrópu."
dáÍAd ' .g-.
kW&WEt
m f
Snorri segir kostnaðaráædun
þegar liggja fyrir vegna granítsverðs-
ins. „Með öllu verða þetta á bilinu
fimm til sex milljónir króna,“ upp-
lýsir hann.
Stórfenglegt segir borgar-
verkfræðingur
Að sögn Snorra mun ekki sjást í
allt sverðið þar sem því verði komið
fyrir á sökkli eins og því væri stungið
niður í jörðina. Þannig upp sett
muni það standa sjö og hálfan metra
upp í loftið. Sjálft er Kaldár-
höfðasverðið út járni, um einn metri
að lengd og er frá tíundu öld. Það
fannst árið 1946 í bátakumli í
Grímsnesinu.
Snorri segir alla hafa tekið
sverðshugmyndinni afar vel.
„Það hefur að minnsta kosti
enginn hallmælt þessu ennþá,“
segir hann.
Jákvæð viðbrögð má meðal
annars sjá af umsögn Björns
Inga Sveinssonar borgarverk-
fræðings:
„Undirritaður telur
þetta vera skemmtilega
hugmynd og til þess
fallna að vekja athygli, en
staðsetning stórfenglegra
listaverka á hringtorgum er algeng í
borgum víðsvegar um Evrópu. Eng-
in umferðartæknileg eða umferðar-
öryggisleg rök mæla í mót hug-
myndinni," segir Björn í erindi til
samgöngunefndar Reykjavíkur, sem
fyrir sitt leyti hefur þegar samþykkt
uppsetningu granítsverðsins.
Vill pláss í heimsmetabókinni
Eftir er að taka sverðsmálið fyrir í
skipulags- og byggingarnefnd,
menningarmálanefnd og borgar-
ráði. Borgarverkfræðingur tekur sér-
staklega fram að framtíð Melatorgs
sé óljós. Þjóðminjasafnið hafi
ábyrgst kostnað sem hlytist af því ef
síðar þyrfti að færa gramtsverðið á
annan stað.
Að því er Snorri segir er vonast til
að málið verði til lykta leitt í þessum
mánuði.
„Sjálft á Þjóðminjasafnið
ekki fé til að borga fyrir
granítsverðið. í
augnablikinu er
þetta fýrst og fremst
metnaðarfull hugmynd.
Málið er á viðkvæmu stigi
því þarf að finna kostunar-
aðila meðal velunnara
safnsins út í bæ. Það
er ekki búið að finna
þennan aðila,“
segir Snorri og
bætir því við að slíkra
kostunaraðila yrði hugs-
anlega
getið á smekklegan hátt á skildi sem
sett yrði upp við torgið.
„Um leið og sverðið yrði kenni-
leiti fyrir Þjóðminjasafnið yrði það
táknmynd fyrir höfuðborgina og
yrði einnig sterk tdvísun til uppruna
þjóðarinnar allrar. Ég hef haft sam-
band við heimsmetabók Guinnes
upp á það hvort þetta yrði ekki
stærsta sverð í heimi, að minnsta
kosti stærsta víkingasverðið,
en ég bíð enn eftir
svari,“ segir Snorri. ......
gar@dv.is
Fríkað út á Hilton
Svarthöfði skilur ekkert í því
fjaðrafoki sem orðið hefur vegna öl-
æðis sem rann á nokkra landsþekkta
stjórnmálamenn á HUton-hóteli á
írlandi fyrir skemmstu. Stjórnmála-
mennirnir voru þar í boði Atlanta
flugfélagsins og fengu allt frítt;
drykki, mat og gistingu. Þá detta
menn í það og frfka út. Til þess er
Hilton.
Ef trúa skal fréttum fór formaður
Frjálslynda flokksins upp á svið í
lobbíinu á Hilton og söng Vertu ekki
að horfa svona alltaf á mig. Þing-
kona Framsóknarflokksins bætti um
betur og tók Sprengisand. Á meðan
sat formaður Sjómannadagsráðs og
þingmaður Sjálfstæðisflokksins og
skammaði meistarakokk HUtons
fyrir lambakjötsrétt sem hann sagði
helvítis kryddkássu.
Þetta hefur verið gott fyllirí enda
klikka þau aldrei á HUton. Það veit
Svarthöfði af eigin reynslu því hann
hefur oft gist á Hilton og þá alltaf á
kostnað annarra. TU dæmis borgaði
þjóðkirkjan einu sinni fyrir hann
ferð á hungursvæði Afríku og þá var
að sjálfsögðu gist á HUton á milli
þess sem svöng börn voru skoðuð í
dagsbirtu. Minnisstæðari eru hins
vegar kvöldin þegar setið var í
koníaksstofunni og horft út á götu
þar sem fólkið lapti dauðann úr skel
með betlandi hönd mót hótelglugga
HUtons. Tárin í augum fólksins voru
samlit kampavíninu í glösunum.
Frískandi samspU.
í annað sinn fór Svarthöfði á
kostnað skattgreiðenda alla leið tU
Hollywood. Þar var HUton hótelið
ekki lakara. Sérstaklega er barinn á
efstu hæð hótelsins minnisstæður
því þar kostuðu sjússarnir ekki neitt
og sUíkonskvísa fylgdi með hverjum
drykk. Þarna tók Svarthöfði eitt lag
eftir Bubba. Líklega Stál og hnífur þó
hann muni það ekki nákvæmlega.
Þetta var yndisleg ferð og ókeypis.
Ljóst er að stjórnmálamenn
þurfa að ferðast þó ekki sé til annars
en að vUcka sjóndeUdarhringinn.
Þess vegna ber þeim skylda tU að
þiggja aUar þær utanlandsferðir sem
stórfyrirtæki bjóða þeim. En setja þá
sem skilyrði að gist sé á HUton. Sú
keðja er í flestum stórborgum heims
og þar er aUtaf skemmtUegra en
annars staðar. Eins og sannaðist á
írlandi.
Svarthöföi
Hvernig hefur þú það?
Elín Anna Steinarsdóttir fótboltakona. „Hefþað mjög gott enda á leiðinni til Eyja í
Herjólfi," segir Elín Anna Steinarsdóttir, sem spilar í liði deildarmeistara ÍBV.„Það var
gríðarlega mikið fagnað og mjög gaman á eftir. Leikurinn var auövitað erfiður en
þetta hafðist að lokum. Sumarið leggst annars vel í mig. Veðrið er gott og við ílBV
ætlum að taka alla titla sem eru I boði - enda langbestar."