Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ2004
Fréttir JXV
Átta ára
skotin á færi
Mannréttindasamtökin
Amnesty International segja
í nýrri skýrslu að
breskir hermenn
hafl drepið fjölda
írakskra borgara
án þess að af
þeim hafi stafað
nokkur ógn.
Þeirra á meðal var
Hanan Saleh
Matrud, átta ára
gömul stúlka, sem
féll fyrir byssu-
kúlu bresks hermanns í
ágúst á síðasta ári. Sjónar-
vottur sagði rannsóknar-
mönnum Amnesty að í stað
þess að skjóta viðvörunar-
skoti hafl verið miðað á
hana.
Óháð
rannsókn
Amnesty átelja bresk
yflrvöld fyrir að rannsaka
ekki þau tilvik þar sem
írakskir borgarar hafa verið
felldir af hermönnum.
Samtökin vilja að óháður
aðili rannsaki tilvik og nið-
urstöður verði gerðar opin-
berar. Kate Allen, fram-
kvæmdastjóri Amnesty í
Bretlandi segir samtökin
vilja rannsókn á 37 tilvik-
um. „Okkur hefur til dæmis
verið sagt að suðurhluti
fraks sé tiltölulega öruggur
en íbúarnir á þessum slóð-
um halda öðru fram."
Sjúklingar í
hættu
Stjórn Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræð-
inga hefur orðið fyrir
vonbrigðum með að enn
meiri niðurskurður verði
á Landspítalanum. Fram
kemur í ályktun stjórn-
arinnar að ekki sé unnt
að lækka rekstrarkostnað
meira en orðið er án
þess að loka deildum og
hætta að veita ýmsa
þjónustu. Spá hjúkrun-
arfræðingar því að með-
ferð sjúklinga verði lak-
ari og öryggi þeirra
minnki.
Ástþórvill
eftirlit ÖSE
Ástþór Magnússon for-
setaframbjóðandi hefur
farið fram á það við Örygg-
is- og samvinnu-
stofnun Evrópu
að kosningaeftir-
litsmenn verði
sendir til íslands
til að fylgjast með
að forsetakosn-
ingarnar verði lýðræðisleg-
ar. I fréttatilkynningu segir
Ástþór að Gerald Mitchell,
forstöðumaður kosninga-
deildar ÖSE, lýsi áhyggjum
sínum vegna ójafnrar
umfjöllunar um fram-
bjóðendur og synjun
dómsmálaráðuneytisins tfl
Ástþórs um leyfi fyrir
fjársöfnun.
Ljósmyndir af Lynndie England þar sem hún dregur nakinn írakskan fanga á eftir
sér í bandi hafa vakið viðbjóð um víða veröld. England starfaði í Abu Grahib-fang-
elsinu í Bagdad. Móðir Englands trúir engu illu upp á dóttur sína og segir banda-
ríska herinn gera úr henni blóraböggul.
Blórabönnull eöa
qpimmup bööull
Lynndie England, 21 árs hermaður frá smábænum Fort Ashby í
Virginíu, hefur verið ákærð fyrir misþyrmingar gagnvart íröksk-
um föngum. Herinn sendi Lynndie til Bandaríkjanna á dögun-
um þar sem hún bíður réttarhalda. „Hún er taugaveikluð og
skelkuð," segir móðir hennar.
Ljósmyndir sem sýna Lynndie
England niðurlægja írakska fanga
hafa vakið óhug og reiði um víða
veröld. Lynndie er þó bara ein
margra hermanna sem sætir ákæru
fyrir að misþyrma og niðurlægja
írakska fanga í Abu Ghraib-fangels-
inu í Bagdad. Lynndie er hins vegar
eina konan í þessum hópi og sker sig
þar af leiðandi úr. Á ljósmyndum
sést hvernig Lynndie bendir sigri
hrósandi á írakska fanga sem þurftu
að upplifa þá niðurlægingu að láta
hrúga sér nöktum hverjir ofan á
annan. Á annarri mynd dregur
Lynndie írakskan fanga á eftir sér
eins og hund.
Vildi verða veðurfræðingur
Fjölskylda Lynndie stendur fast
við bakið á henni og telur að hún
hafi verið neydd til að stilla sér upp á
ljósmyndunum. Þau viðurkenna þó
að Lynndie hafi alla tíð verið afar
sérstök og kannski ekki eins og fólk
er flest. Til marks um það rifjar fjöl-
skyldan upp þegar skýstrókur gekk
yfir bæinn og bæjarbúar leituðu
skjóls í kjöllurum. Allir nema
Lynndie, hún óð út í veðurofsann
með myndavél á öxlinni og tók
fjölda ljósmynda. Hún átti sér þann
draum að verða veðurfræðingur
sem sérhæfir sig í óveðri, hvirfilbylj-
um og skýstrókum. Slíkt starf er sagt
lífshættulegt og það heillaði
Lynndie.
Ekkert varð úr að Lynndie færi í
veðurfræði - hún var gift kona að-
eins 18 ára. Hjónabandið entist í tvö
ár og þá gekk Lynndie í herinn.
„Ég er mjög stolt af dóttur
minni," segir Terrie England, móðir
Lynndie, og bætir við að hún sjái á
myndunum að þær séu svið
settar. Systir Lynndie,
Jessica, tekur í sama
streng og kveðst hreyk
in af stúlkunni. „Ég
styð Lynndie og fé
laga hennar í her-
deildinni."
Terrie telur
að herinn sé að
gera dóttur sína
að blóraböggli.
Hún hafi ein-
vörðungu fylgt
skipunum til jress .
að lenda ekki í
vandræðum.
„Hún sagði mér að
allir yrðu að fram-
fylgja skipunum. Yf-
irmennirnir hefðu
lagt línurnar og sagt
þeim hvað gera átti til
að ná upplýsingum upp
úr föngunum. Hún
barðist fyrir land sitt og
mun halda áfram að gera ’
það. Nú finnst henni að x
hún hafi verið svikin," seg-
ir Terrie England.
Líf fanganna helvíti
Lynndie var send heim í mars
vegna þess að hún er ófrísk. And-
stæðingar Lynndie segja óléttuna
ekki hafa getað komið á betri tíma
enda megi hún vænta þess að máls-
meðferðin verði mýkri í ljósi þess
hvernig ástatt er fyrir henni. Her-
málayfirvöld í Bandaríkjunum hafa
120 daga til að draga Lynndie fyrir
rétt og gæti hún átt yfir höfði sér allt
að fimmtán
Y>.-
ára fangelsi verði hún sakfelld og
dæmd til þyngstu refsingar. Lög-
maður Lynndie, Rose Mary Zapor,
segir hana fórnarlamb þeirra sem
eru andsnúnir Íraksstríðinu og það
að kona sé sýnd við pyntingar á
ljósmyndum sé til þess fallið að
vekja mun harðari viðbrögð í
arabaheiminum en ef um karlmann
væri að ræða. Zapor segir yfirmenn
hafa fagnað myndatökunum og
sagt hermönnunum að þær væru
nýtilegar til að ná enn frekari upp-
lýsingum upp úr öðrum föng-
um.
Önnur kona hefur verið
ákærð fyrir misþyrming-
ar. Sú heitir Sandra
Harman og tUheyrir
sömu herdeild og
Lynndie. Hún hefur
greint frá því að hlut-
verk sitt í Abu
Ghraib-fangelsinu
hafi meðal annars ver-
ið að gera líf fanganna
að „helvíti", með því að
halda þeim vakandi
sólarhringum saman,
hoppa á föngum sem
hafði verið hrúgað upp,
binda fanga með raf-
magnsvírum og hóta
þeim raflosti.
Búist er við að enn
fleiri ljósmyndir sem
sýna illa meðferð á föng-
um í írak eigi eftir að koma
fram í dagsljósið á næstu
dögum og vikum, myndir
sem sýna enn meiri óhugnað
en almenningur hefur þegar séð.
Lynndie England Þessi mynd
er frá þvi Lynndie var i mennta-
skóla. Þá átti hún sér draum um
að verða veðurfræðingur og
elta uppi hvirfilbyli og
skýstróka.
Sigri hrósandi Lynndie dregur fanga á eftir sér eins og hund.
Fjölskylda hennar telur að myndin sé sviðsett en segir jafn-
framt að Lynndie hafi þurft að hlýða yfirmönnum sinum.
'ý*f' Rafmagnsgítar
magnari poki, ól- snúra -stillir
Rafmagnsgítarsett
29.900,- stgr.
Söngkerfi Trommusett frá
frá 59.900,- 49.900,- stgr.
Gítarinn ehf.
Stórhöfða 27, sími 552-2125
www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is
Klassískir gítarar
frá 9.900,- stgr.