Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Side 15
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ2004 15 Hundar í belti Þýskur hunda- eigandi var á dögunum sektaður fyrir að hafa ekki hund- inn sinn Bobbie í belti í bílnum. Umferðalögregl- an stöðvaði þá félaga þegar þeir voru í öku- ferð og var Bobbie aftur í. Eigand- inn var sektaður fyrir brotið og þeg ar hann neitaði að borga var sektin hækkuð um tæplega helming. Haft var eftir talsmanni þýsku umferða- lögreglunnar að litlir hundar eigi heima á gólfum bifreiða og stórir hundar í búrum. Að tjá sig Mikill munur er á háttalagi villikatta og heimiliskatta. Mest áberandi er eðli tjáskipta heimiliskatta og samskipti þeirra við mannfólkið. Til dæmis telja sumir sérfræðingar að til séu allt að níutíu tilbrigði af mjálmi heimiliskatta en villikettir virðast ekki hafa sama „mjálmforða". Meðal heimiliskatta liggur munurinn meðal annars í hrynjandinni, tónhæðinni, jafnvel framburðinum og nota þeir þessi fjölmörgu tilbrigði til að reyna að tjá sig við menn. í náttúrunni eru kettir miklir einfarar og hafa einungis samskipti við aðra ketti á pörunartíma eða þegar læður ala upp kettlinga. Heimiliskettir lifa aftur á móti í nánu sambandi við mannfólkið og jafnvel aðra ketti sem búa á heimilinu. Þeg- ar kettír búa með hundum nota þeir frekar líkamstjáningu til að koma skilaboðum til þeirra líkt og villikettir því hundar skilja líkamstjáningu betur en tjáskipti með hljóðum. Betur fór um ketti en menn í Egyptalandi Kettir voru í hávegum hafðir í Egyptalandi, ein gyðjan hét Bast eða Bastet eftir því hvort hún var öll í kattarlíki eða bara höfuðið. Sjálfir töldust þeir hálfguðir og sá sem drap kött, viljandi eða óviljandi, var réttdræpur. Ef kött- ur dó saddur lífdaga á egypsku heimili rökuðu heimilismenn af sér augnabrúnirnar, sungu, börðu sér á brjóst og sýndu önnur einkenni mikils missis. Síðan var haldið með líkams- leifarnar til hofsins, prestar gengu úr skugga um eðlilegan dauðdaga, síðan var kötturinn smurður og lagður til hinstu hvílu. Bergljót Davíðsdóttir skrifar um dýrin sín og annarra á miðvikudögum í DV bergljat@dv.is Hvað er meðgangan löng? Sæl Helga Ég á 3 ára tík sem er hvolpa- full og var hún pöruð 15. apríl i fyrsta sinn. Hvað er meðgangan löng og á ég að gera eitthvað sérstakt fyrir tíkina á með- göngutímanum og hvernlg veit ég hvenærfæðingin nálgast? Kveðja Bergþóra Svar Meðganga tikur er um 63 dag- ar að meðaltali en getur verið nokkrum dögum skemmri eða lengri. Fyrstu vikurnar er erfitt að geta sér til um hvort getnaður hafi átt sér stað eða ekki. Fyrstu sjáan- legu einkennin eru stækkun á spenum sem verða líka bleikari og eftir 5.vikna meðgöngu leikur venjulegast enginn vafi á hvað er í vændum. Mögulegt er að láta óm- skoða tíkina snemma á með- göngu.en viðurkenndasta og um leið langöruggasta aðferðin er þó sú,að láta röntgenmynda hana ( lok 7.viku meðgöngu, því þá er hægt að staðfesta fjölda fóstra. Hvolpafull tík krefst engrar sér- stakrar meðferðar né fóðurbreyt- ingar í byrjun meðgöngu. Varast þarf þó að offóðra hana en auka dagskammtinn hægt og sígandi þegar líður að lokum með- göngunnar. Þá er einnig mikilvægt að gefa henni spóluormalyf í 3 daga (og tík og hvolpum aftur 2 vikum eftir got). Svarið hér að ofan er ekki tæmandi svo þú ættir að spjalla við dýralækninn þinn, hafir þú fleiri spurningarvarðandi fæðinguna sjálfa. Vona að allt gangi vel þegar þar að kemur. Helga Finnsdóttir, dýralæknir Kambsala-. monnw Tynip vatnsaup Ein af metnaðarfyllstu gælu- dýraverslunum á landinu er án vafa Furðu- fuglar og fylgifiskar þar sem Tjörvi ræð- ur ríkjum. Sjálfur seg- ist hann vera mesti furðufugl- inn á staðnum. Þeir sem eru áhugasamir um furðuleg dýr ættu að finna sitt- hvað við sitt hæfi í Furðufuglum og fylgifiskum. Þar eru ýmis froskdýr í boði og má þar nefha kambsalamöndrur fýrir vatns- búr, froska og körtur, litríka landfroska og alvöru eldsala- möndrur. Birta orðin þung á sér enda aðeins vika í að litlir hvolpar líti dagsins ljós. Hún er ósköp róleg og stjórnar því alfarið sjálf hve langt hún gengur á hverjum degi. Allt Hárt lyrip Ith Hpana Eins og lesendur hafa fylgst með, þá á cavalertíkin hún Birta von á hvolpum á næstu dögum. Við höfum fylgst með henni allt frá því hún fékk Jörfa í heimsókn og var pöruð þann 17. og 18. apríl síðast- liðinn og samkvæmt útreikningum á hún á að eiga milli 17. og 19 maí. næstkomandi. Meðgangan hefur gengið vel hjá henni en hún er orð- in ansi bústin. Hún fór í sónar þeg- ar hún var gengin fimm til sex vikur með og þá kom í ljós að hún geng- ur að minnsta kosti með fimm hvolpa. Gott ef þeir verða ekki fleiri því síðast var hún með sjö hvolpa og gekk fæðingin eins og best var á kosið. Hún er ósköp róleg og vill lítið hreyfa sig; helst ekki fara lengra heldur en út í garð og togar okkur til baka með það sama. Það er eigi að síður mjög mikilvægt að hún hreyfi sig vel til að létta henni fæð- inguna. Hún á þó til að taka sig á og fara stóran hring; svona þegar henni dettur það sjálfri í hug. Búið er að ganga fra sérstakri Verðandi móðir Kannski er Birta að hugsa um harðfisk skúffu á hjólum sem hún liggur í með hvolpana og úti í henni stóru Ameríku keypti móðursystir henn- ar fallega mjúka mottu sem hvolp- arnir geta kúrt sig í svo þeim líði vel eftir fæðingu. Allt er sem sagt tilbúið fyrir stóra daginn og þegar finnast hreyfingar í liltu krílunum. í vikunni fór hún í snyrtingu í Dýrabæ hjá henni Guðríði sem rakaði á henni mallann svo hvolparnir eigi betra með að finna spenana þegar þar að kemur. Svo er bara að sjá hvað litla Gná, dóttir hennar sem nú er tveggja ára, gerir þegar hvolparnir fæðast en dæmi eru um að þær yngri aðstoði við mjólkurgjöfina. Þá fæ þær skyndilega mjólk í spenana, leggjast hjá, hvolpunum og sjá þeim fyrir fóðri með mömmunni. Síðast átti Birta sjö hvolpa og ekki er ólíklegt að þeir verði færri nú. Birta er farin að fá hvolpafóður svo litlu dýrin fái nú nóg að borða og fæðist ekki smá og væskilsleg. Hún er svo sem ekki mjög hrifin af því og vill helst af öllu harðfisk; stillir sér gjarnan upp við ísskápinn og krafsar í ef hún telur sig hafa unnið fyrir harðfisknum. Annars má segja að hún haldi til í eldhús- inu, liggur gjarnan undir eldhús- borði og hreyfir sig varla nema þeg- ar skápurinn er opnaður. Aldrei er að vita nema hvolparn- ir verði fæddir að viku liðinni og þá geta lesendur fylgst með hvernig til hefur tekist. Síðan fylgjum við hvolpunum eftir næstu vikurnar. Móðurhlutverkið Verið að raka mallann Birta Á von á að minnsta kosti fimm hvolpum. Hjá Guðríði rakara Spen- arnir koma I Ijós Gæludýrin á sjúkrahúsin „Gæludýr eiga að heimsækja eig- endur sína á sjúkrahús tO að flýta fyrir bata“ sagði Jane McNicholas, sálfræðingur við Warwick-háskóla á Bretlandi, á nýafstaðinni hjúkrunar- ráðstefnu. Sálfræðingurinn sagði að samvistir eigenda og dýra ykju líkur á bata eigendanna eftir lífshættu- lega sjúkdóma og aðgerðir. Hún sagði heimsóknirnar draga úr álagi og vanlíðan sjúklinganna og veita þeim félagsskap og benti á að að lík- legra væri að þeir smituðust frekar af umgengni við menn en dýr. Mc- Nicholas vitnaði í nýlega rannsókn þar sem fram kemur að þeim sem misst hafa ástvini sína og eru ein- stæðingar gengur betur að takast á við lífið ef þeir eiga dýr. Hún nefndi að allt benti tU þess að ónæmi barna sem eiga gæludýr væri öflugra og þau ættu auðveldara með að takast á við ofnæmi og asma. „Sjúkrahús ættu að koma upp sjúkrastofum þar sem gæludýr geta heimsótt eigendur sína og jafnvel farið upp í ból tU þeirra“ sagði McNicholas. SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík. Stekkjarbakki 2, Staldrið. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Stekkjar- bakki 2, Staldrið. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að á lóðinni verði heimilt að reka verslun, þjónustu, eldsneytissjálfsala og þvottastöð. Byggingareitur stækkar til norðurs. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 08:20 - 16.15, frá 12. maí til og með 23. júní 2004. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við hana skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 23. júní 2004. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Reykjavík, 12. maí 2004 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.