Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Síða 19
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ2004 79
Viltu verða
eins góður og
Shay Given?
Markmenn sem hafa
áhuga á því að verða eins
góðir og Shay Given, mark-
vörður Newcastle, ættu
ekki að láta sig vanta í
Fífuna 17. og 18. maí því þá
verður Simon Smith, mark-
mannsþjálfari Newcastle,
með námskeið. Smith hefur
verið markmannsþjálfari
hjá Newcastle síðan 1993.
Námskeiðið er ókeypis og
er opið öllum sem eru 16
ára eða eldri.
Ingi Þór
yfirþjálfari
Ingi Þór Steinþórs-
son var í gær ráðinn
yfirþjálfari yngri flokka
í körfuboltanum hjá
KR. Ingi Þór hefur
undanfarin ár verið
þjálfari meistaraflokks
karla hjá félaginu en lét
af starfinu eftir síðasta
tímabil. Ingi Þór er ekki
ókunnur þessari stöðu
því hann þjálfaði áður
yngri flokka hjá KR með
góðum árangri.
FH-ingurinn Bjarni Þór Viðarsson semur væntanlega við Everton um næstu helgi
FH gæti grætt tugi milljóna
Hinn 16 ára gamli Bjarni Þór
Viðarsson hefur undir höndum
samning frá enska stórliðinu
Everton sem hann segist væntan-
lega skrifa undir um næstu helgi.
FH og Everton hafa náð samkomu-
lagi um félagaskiptin og Viðar
HaUdórsson, faðir Bjarna Þórs,
segir að FH geti grætt tugi milljóna
ef Bjarni Þór komist í aðallið
félagsins og spili með þeim
einhverja leiki.
„Það skýrist allt um næstu helgi,“
sagði Bjarni Þór í samtali við DV
Sport í gær. „Ég er með í höndunum
tilboð frá Everton sem ég er nokkuð
sáttur við og við höfum verið að fara
yfir hlutina í rólegheitum."
Bjarni Þór er nýorðinn 16 ára og
var að klára samræmdu prófin í gær.
Ef af verður að hann skrifi undir
samninginn við Everton þá fer hann
utan í júlí.
Klárað á næstu dögum
„Það er mjög líklegt að við
klárum þessi mál á næstu dögum ef
ég á að segja alveg eins og er. En það
er aldrei búið fyrr en það er búið,"
sagði Viðar Halldórsson, faðir
Bjarna Þórs, en hann er alvanur að
semja við erlend félög fyrir syni sína
enda eru eldri synir hans báðir
atvinnumenn - Arnar Þór hjá
Lokeren og Davíð Þór hjá Lilleström.
„Þetta verður líklega þriggja eða
fjögurra ára samningur. Við erum
búnir að fara utan að skoða hjá
félaginu og vorum mjög hrifnir.
Þessar ensku akademíur hjá stóru
félögunum eru ótrúlega flottar.
Strákurinn verður í skóla með
fótboltanum enda gengur ekki
annað. Þetta er allt annað en það var
hér á árum áður. Það kostar rúmar
200 milljónir á ári fyrir Everton að
reka þessa akademíu og þarna eru
22 í fullu starfi," sagði Viðar en hann
staðfesti einnig að FH og Everton
væru búin að ná samkomulagi um
„Aftur á móti efhann
kemst i aðaUiöið og
spilar þá fær FH tugi
milljóna ísinn vasa."
félagaskiptin og ef Bjarni uppfyllir
allar væntingar sem til hans eru
gerðar munu FH-ingar ekki bera
skarðan hlut ffá borði.
„Liðin hafa náð samkomulagi.
Everton þarf að greiða eitthvað fyrir
hann en FH samdi þannig að þeir fá
meira fyrir sinn snúð ef Bjarni
stendur sig hjá liðinu og kemst í
aðalliðið. Þar er náttúrulega ef og
kannski í myndinni og það er að
sjálfsögðu ekkert í hendi. Því má
ekki gleyma. Aftur á móti ef hann
kemst í aðalliðið og spilar þá fær FH
tugi milljóna í sinn vasa en þá þarf
að sjálfsögðu allt að ganga upp,“
sagði Viðar.
Orðinn mjög spenntur
„Strákurinn er að sjálfsögðu
orðinn mjög spenntur. Hann var að
klára samræmdu prófin og nú getur
hann farið að einbeita sér að
fótboltanum," sagði Viðar en hann
segir að þeir feðgar muni fara utan
til að skrifa undir ef samkomulag
næst. „Ef við klárum þetta í þessari
viku þá förum við væntanlega tfl
Englands í næstu viku til þess að
skrifa undir. Ég á frekar von á að það
verði ofan á." henry@dv.is
Farinn f Val Vilhjálmur Halldórsson gerði á sunnudag tveggja ára samning við Val. lR og
Haukar höfðu lika áhuga á Vilhjálmi en hann valdi Val.
Vilhjálmur Halldórsson búinn að finna
sér nýtt heimili í Reykjavík
Villi valdiVal
Eftirsóttasti handboltamaðurinn
sem enn er á íslandi er genginn út.
VUhjálmur Halldórsson, sem hefur
leikið með Stjörnunni allan sinn
ferfl, skrifaði á sunnudagskvöld
undir tveggja ára samning við Val.
„Þetta var nokkuð erfitt val en á
endanum ákvað ég að semja við
Val," sagði VOhjálmur í samtali við
DV Sport í gær. „Þar get ég æft eins
og ég vil enda býður Óskar Bjarni
upp á hádegisæfingar sem mér
finnst skipta miklu máli. Ég hef verið
að æfa mikið aukalega einn í vetur
og það munar um að fá einhverja til
að æfa með sér í hádeginu. Ég hef
mikinn metnað og stefni að því að
komast í atvinnumennsku og ég vO
vera klár þegar tækifærið gefst og
það hefst ekki öðruvísi en að æfa
vel.“
Erfitt að segja nei
Eins og áður segir þá höfðu ÍR og
Haukar einnig áhuga á að fá
Vilhjálm í sínar raðir.
„Mér leist vel á ÍR og það var
ekkert auðvelt að segja nei við Júlla.
Þeir eru með toppmannskap og ég
hef heyrt vel látið af Júlla sem
þjálfara en ég taldi Val vera betri
kost fyrir mig eins og staðan er í dag.
Hvað Haukana varðar þá fannst mér
aldrei vera verulegur áhugi hjá þeim
á að semja við mig þannig að ég gaf
það frá mér.“ hemy@dv.is
sendu sms skeytið: NR í numeriól 909 'fnli,nf:i,ert
& þu gaetir unnið glæsilega vinninga. ^jp bf.
svaraóu einni spumingu sm ;;ímar
meó sms skeytt: WR a beEt of 70 mí
NR b ducj
eða WR c miðar ú fame
i númerió 1909 Ijóeokoi-t