Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ2004 Fókus DV Jónas Freydal Þorsteinsson sakar Þorstein J. Vilhjálmsson, sem nú vinnur heimildarmynd um Stóra málverkafölsunarmálið, um annarleg sjónarmið og krefst þess að viðtal við sig verði klippt út úr mynd- inni. í ítarlegu bréfi hans til Þorsteins, Markúsar Arnar Antonssonar og reyndar fleiri aðila, setur hann fram harða gagnrýni á fréttaflutning RÚV og segir Jón H. Snorrason saksóknara og Kristínu Guðnadótt- ur listfræðing hafa logið blákalt fyrir rétti. Meintur falsari svarar tyrir sig Viktor Smári Sæmundsson for- vörður Jónas vill meina að Viktor Smári hafi gert við einar tíu myndir sem eru í málinu löngu áður en hann svo úrskuröaði þær falsaðar sem sér- fræðingur ákæruvaldsins. Kristín Guðnadóttir listfræðing- ur Jónas segir hana hafa logið i Hér- aðsdómi þegarhún sagðist hafa ver- ið hætt hjá Listasafni Islands þegar ákvörðun var tekin um að kæra verk i eigu safnsins sem falsaðar myndir. Hún ernú hjá ListasafniASl. „Það kom fram í Hæstarétti að nið- urstaða Héraðs- dóms er röng hvað varðar aðkomu Kristínar Guðna- dóttur að málinu. Einnig kom fram að hún og Jón Snorra- son saksóknari Jón H. Snorrason saksóknari Sótti málið I héraði en Bogi Nilsson tók við málinu I Hæstarétti.Jónas Freydal heldur þvi fram að Jón hafi logið blákalt fyrir rétti. „Þú verður eiginlega að spyrja hann að því. Hann sendi þér þetta bréf líka og ég sé ekki betur en að til- gangurinn sé sá að nota áfram þær vinnuaðferðir sem notaðar hafa verið í þessu máli: Gera þá sem koma að þessu og fjalla um það tortryggilega. Þetta viðtal var tekið með fullu sam- þykki Jónasar og þátttöku hans, þannig að ég hef svo sem ekkert meira um það að segja,“ segir Þor- steinn J. Vilhjálmsson sem nú er að leggja Iokahönd á heimildarmynd sem fjallar um Stóra málverkafölsun- armálið. Myndin heitir „Án titils" og verður sýnd í Ríkisútvarpinu Sjón- varpi 30. maí næstkomandi. Dóms er nú beðið í málinu sem hefur verið dómtekið í Hæstarétti. Ófagleg vinnubrögð Þorsteins DV hefur undir höndum ítarlegt bréf sem Jónas Freydal, annar sak- borninga í málinu, sem stílað er á Þorstein, Markús Örn Antonsson út- varpsstjóra og fleiri. í bréfinu fer hann fram á það við Þorstein að viðtal sem Jónas veitti og Þorsteinn hyggst nota í myndina verði klippt alfarið út. Þá er þess farið á leit að ekki verði í mynd- inni vitnað í nein þau gögn, skjöl og samtöl sem Jónas hefur látið Þor- steini í té. Forsendur Jónasar eru þær að spurningar þær sem Þorsteinn spurði væru allar úr samhengi, ófag- legar og Jónas mætti í viðtahð á fölsk- um forsendum Þorsteins. Eftir að hafa tiltekið ýmis dæmi þess efnis, svo sem að Þorsteinn hafi dregið inn í umræðuna forverði sem áttu að hafa gert við verk fyrir Jónas, meint vin- fengi Jónasar og Péturs og aðkomu hans að málverkum eftir Vilhelm Wills og dóm sem Jónas hlaut sem unglingur segir í bréfinu: „Við vitum báðir að ég gæti haldið svona áfram og sé það þinn skilningur að ofan- standandi sé dæmi um faglega um- ræðu í heimildarmynd þá er ég því al- gerlega ósammála, fýrir mér er þetta dæmi um ófagmannlega og illa und- irbúna undirmáls rannsóknarblaða- mennsku 'sem unnin er út frá fýrir- fram gefnum fosendum og eins langt frá faglegri umræðu og hægt er.“ Þorsteinn sagðist í samtali við DV ekki æda að fara í rökræður við Jónas í íjölmiðlum. Hann var ekki búinn að lesa bréfið ítarlega og aðspurður hvort hann hygðist fara að tilmælum Jónasar sagðist hann ætla að halda sínu striki. Alvarlegar ásakanir Jónasar Jónas notar tækifærið í bréfinu og bendir á ýmislegt sem hann vill fetta fingur út í. Þannig segir hann Viktor Smára Sæmundsson, forvörð og sér- fræðing ákæruvaldsins, hafa gert við um tíu myndir fyrir eigendur löngu áður en hann dæmdi þær falsaðar. Á þeim tíma hafi hann ekki haft neinar athugasemdir né gefið til kynna að myndirnar væru falsaðar. Jónas rekur skort á samanburði, til að mynda þykir benda til fölsunar sú staðreynd að sum verkanna í málinu séu máluð yfir eldri verk. Hins vegar sé til fjöldi óvéfengdra verka sem eru sannarlega máluð yfir aðrar myndir. Á þessu var enginn samanburður gerður. Jónas segir að reynt hafi verið að fjarlægja 600 síður úr gögnum málsins frá tíma Héraðsdóms til Hæstaréttar, sem af tilviljun voru allt skýrslur og gögn sem sakborningum eru í vil. Þá segir jafnframt í bréfinu, í lið sem Jónas nefnir j.: „Það kom fram í Hæstarétti að niðurstaða Héraðsdóms er röng hvað varðar aðkomu Kristínar Guðnadótt- ur að málinu. Einnig kom fram að hún og Jón Snorrason saksóknari lugu blákalt fyrir Héraðsdómi og lugu blákalt fyrir Héraðsdómi og sögðu hana hafa verið hætta á Kjar- valsstöðum þegar myndirnar sem hún keypti voru kærðar. Afhverju lýgur helsti sérfræðingur landsins í Kjarval fyrirrétti?" sögðu hana hafa verið hætta á Kjar- valsstöðum þegar myndirnar sem hún keypti voru kærðar. Af hverju lýg- ur helsti sérfræðingur landsins í Kjar- val fyrir rétti?" Þá átelur Jónas harðlega frétta- flutning RÚV, hann furðar sig á því að fréttamenn stofnunarinnar skyldu ekki fylgjast með málinu í Hæstarétti né Héraðsdómi þó svo að þarna sé um að ræða eitt stærsta mál íslenskrar réttarfarssögu. Og Jónas lætur að því liggja að helsti ákærandinn í málinu, Ólafur Ingi Jónsson forvörður, hafi í raun verið í hlutverki fréttaritara stofnunarinnar. Hann skrifar í Uð s.: „Hver var fréttamaður RÚV í mál- flutningi varnarinnar í Héraðsdómi? Það komu fréttir í RÚV um hvað hafði verið fram í réttinum en MBL, Frétta- blaðið og Ólafur Ingi sátu og tóku nót- ur. Þannig að RJJV hefur annað hvort fengið fréttir sínar frá dómurum, sækjendum, verjendum, Fréttablað- inu, MBL eða Ólafi Inga Jónssyni." Dýrasti haninn merkilegri en málflutningur varnar Jónas spyr hvort ekki sé rétt að grennslast fýrir um hver heimildar- maður RÚV er og segir jafhffamt að sama dag og málflutningur varnar- innar var í Hæstarétti þá hafi verið „stórfrétt" í RÚV um annars vegar dýrasta hana íslandssögunnar og hins vegar Islandsmeistara í pípulögnum. Án þess að Jónas vilji gera Htið úr píparanum né hananum, „þá hlýtur í faglegri heimildarmynd að vakna spurning um hvað liggi að baki svona ákvörðun, þessara sömu fréttamanna og hafa lagt sakborninga í einelti í 7 eða 8 ár." í lok bréfsins áréttar Jónas kröfu sína um að hann komi ekki ffarn f myndinni og segir þá báða munu spara sér mikinn kostnað og óþæg- indi sendi Þorsteinn J. staðfestingu á lögmann sirm, Karl Georg Sigur- bjömsson, um að ekkert verði haft eft- ir sér í heimildarmyndinni „Án titils". Jafnframt fer Jónas fram á það að Karl Georg fái að sjá myndina áður en hún verður sýnd. jakob@dv.is Vafasamur fréttaflutningur RÚV Og áfram heldur Jónas og tiltekur ýmis atriði sem honum þykja í meira lagi vafasöm þegar þetta mikla mál er annars vegar. Hann spyr af hverju fólk vilji láta skemma og brenna verkin í málinu - em menn hræddir við það hvað framtíðin leiði í ljós? Hann bendir á að forstöðumaður Listasafris íslands hafi ekki mætt til að bera vitni í Héraðsdómi, hann spyr hverjir hafi grætt á þessum máli, því alveg sé fyrir- liggjandi að ekki vom það hinir meintu falsarar sem fengu tugi millj- óna í þóknun. Mun Jónas þarna vera að vísa til þess að sérfræðingar ákæm- valdsins, sem Jónas hefur haldið ffarn að em allir hagsmunaaðilar, séu þeir einu sem hafi haft eitthvað uppúr krafsinu. Þorsteinn J. Kvik- myndatökumaður hans hefur hér stillt myndavélinni upp I Hæstarétti. Þorsteinn ætlar aðhaldasinu striki og telur mál- flutning Jónasari takt við annað:Að reyna að gera alla þá sem nærri málinu koma tortryggilega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.