Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Qupperneq 31
BV Síðast en ekki síst
MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ2004 3 7
Hallgrímur Helgason skrifaði um „bláu höndina“ í Moggann og uppskar reiði forsætisráðherra. Davíð
Oddsson kallaði hann á fund 1 Stjórnarráðinu. Hallgrímur vildi sem minnst um fundinn tala en upp-
lýsti loks í fyrradag á Útvarpi Sögu hvað gerst hefði á fundinum.
Hallgrímur Helgason rithöfundur skrifaði á sínum tíma grein í Morgunblaðið þar
sem hann leiddi líkur að því að Davíð Oddsson forsætisráðherra væri farinn að
hafa óheppileg áhrif á andrúmsloftið í viðskiptalífi landsmanna. Einkum var
fjallað um meinta andstöðu Davíðs við Baug og hét greinin „Baugur og Bláa
höndin". Hugtakið „bláa höndin" varð sérlega fleygt.
Ekki vakti minni athygli að skömmu síðar
fréttist að Davíð hefði boðað Hallgrím á sinn
fund í Stjórnarráðinu til að lýsa óánægju sinni
með greinina. Hallgrímur vildi á sínum tíma
ekki upplýsa í smáatriðum hvað gerst hefði á
fundinum en ljóst þótti að hann hefði verið
skammaður allnokkuð af forsætisráðherra.
I' fyrradag var Hallgrímur í viðtali hjá Arn-
þrúði Karlsdóttur á Útvarpi Sögu og upplýsti
þar loks hvemig fundurinn hefði farið ffam.
Hallgrímur kvaðst á sínum tíma hafa verið
„nokkuð ánægður" með Davíð og þótt „lúaleg-
ar þessar endaiausu árásir á hann, úr vinstrinu"
enda hefði hann gert „margt gott". Síðan hefðu
hins vegar farið að renna á hann tvær grímur,
fyrst og fremst eftir að Davíð „byrjaði ... með
þessar endalausu árásir á Baugsfeðga“. Innrás
lögreglunnar í höfuðstöðvar Baugs meðan unn-
ið var að samningaviðræðum við Arcadia hefðu
svo gert útslagið. Það hefði sér fundist „ein-
hvem veginn of langt gengið. Mér fannst þetta
vera gruggugt". Þá hefði hann skrifað Morgun-
blaðsgreinina frægu, Baugur og Bláa höndin,
þar sem hann hefði að vísu ekki fullyrt að Dav-
íð væri persónulega á bak við lögreglurann-
sóknina gegn Baugi heldur hugleitt hvort „Bláa
höndin" væri ekki eigi að síður „þarna á bak við,
greinilega. Þetta væm fmgraför hennar."
Fundurinn stóð í 70 mínútur
Greinin vakú strax vemlega athygli og fáum
dögum eftir birtingu hennar fékk Hallgrímur
tölvupóst ffá forsætisráðuneytinu þar sem
hann var beðinn að hafa samband. Hallgrímur
hringdi og var þá beðinn að koma til fundar við
Davíð. f viðtalinu við Amþrúði sagði hann:
HaUgrímur: „Ég ætlaði nú ekkert að fara
fyrst, ég meina,... ég vissi náttúrulega um hvað
yrði rætt og hvað kom honum við hvað ég væri
að skrifa? En svo ..."
Amþrúður: „En bíddu ... þú ert beðinn um
að koma á fund. Leið þér eins og þú værir að
fara íyfirheyrslu hjá lögreglu ... eða?“
Hallgrímur: Yfirhalningu kannski frekar ...
Ég vissi náttúrulega hvað ég ætú í vændum, og,
og ákvað fyrst að fara ekki. En svo var forvitnin
því yfirsterkari..." (hlær)
Amþrúður. .... hræðslunni yfirsterkari?"
(hlær)
HaUgrímur: „... ekki hræðslunni, en ... mér
fannst bara fyrst, so what, ég meina ... hvað
kemur mér við hvað honum finnst um það sem
ég er að skrifa? Maður á að hafa ffelsi til að
skrifa hvað sem er og maður á ekki að þurfa að
hlýða á einhverjar ákúmr fyrir það.
En svo var forvitnin þarna svolíúð sterk ...
þetta var tækifæri sem ég gat ekki láúð fram hjá
mér fara og ég fór niður eftir og... var vísað inn
í þessa skrifstofu hans og hann sat þarna, og við
fengum okkur sæú...
Ég var nú mest súessaður alla vega þegar ég
gekk inn en svo lagaðist það súax þegar ég sá að
hann var líka súessaður. Ég fór nú eitthvað að
djóka af því að hann bað mig um að setjast nið-
ur á hægindastól sem var svona ofan á teppa-
bút, þannig að ég spurði: „Já, já, á að fara að
taka mann á teppið?“
Og hann hafði ekki alveg húmor fyrir því,
sko. Þannig að þá ... slappaði ég voða vel af. Og
svo var hann svo æstur og alltaf þegar þú talar
við fólk sem er æst þá einhvern veginn verður
þú afslappaður sjálfúr."
Funduiinn stóö yíir írúmar sjötíu mínútur.
Hallgrímur: „Hann svona var eiginlega bara
að reyna að leiða fyrir mig sannleikann í málinu
og sína hlið og furða sig á því hvernig í ósköp-
unum ég hefði fengið þessa ídeu, og hvernig
mér gat dotúð í hug að hann ... væri að senda
lögregluna á fólk... Og svo kom þessi bara ræða,
sem sagt. I rauninni minnú þetta mig á... ég hef
nú aldrei verið mikið fyrir riffildi sko, og aldrei
lent í að rífast við fólk beinlínis. Og síðasta rifr-
ildi sem ég hafði tekið þátt í var svona hjónarifr-
ildi þegar ég var að skilja við konuna. Og þetta
var svolíúð svipað, sko. Hann var að reyna að
sannfæra mig um að hann hefði ekki haldið
ffamhjá og ég bara trúði honum ekki, sko. Og
þetta minnú mig helst á það.
Og hann ... hafði náúúrulega orðið mestan
tímann, sko. Og... þetta voru miklar svona æú-
fræðitölur um hvernig í ósköpunum hann gæti
verið á móú Baugi þegar Tryggvi Jónsson væri
[þáverandi] forstjóri Baugs, og hann væri vin-
ur dómsmálaráðherra sem þá var og þetta
var allt svona í þessum dúr, sko ... [MJaður
svona komst í tæri svoh'úð við hugsana
ganginn hjá honum... Og svo fór nú nett
um mann svona þarna í restina ..."
Hallgrímur óttaðist um starf
föður síns
Hallgrímur er sonur Hallgríms Hall-
grímssonar sem þá var vcgamála-
stjóri en átti aöeins tvo mán-
uöi eftir í starfí þar sem
hann var um þaö bil að
komast á eftirlaun.
Hallgrímur „Ég var
eitthvað svona að grínast við Davíð, sko, að ...
Haraldur Johannessen, við vorum eitthvað að
tala um hann... Sem er ríkislögreglustjóri, og ég
sagði eitthvað [á þessa leið]: „Já hann er nátt-
úrulega bara svona gæludýrið ykkar í flokknum
og bara flokksráðning hrein og klár og þið hafið
hann alveg í ykkar bandi.““
Amþrúður: „Sagðirðu við Davíð?"
Hallgrfmur:: „Já, og þá skaut hann svona tfi
baka [breyttri röddu]: „Það eru allir flokksráðn-
ir hjá ríkinu! Líka pabbi þinn!“
Og þá allt í einu verð ég hræddur um að
pabba yrði bara sagt upp daginn eftir! Og... mér
fannst það nú leiðinlegt fyrir hans hönd því að
hann átú nú mjög farsælan ferfi að baki hjá
Vegagerðinni, 40 ára starfsferO, og átú bara tvo
mánuði eftir, en það kom nú ekki úl.“
Amþrúður: „Þannig að hann hefur fengið að
klára þessa tvo mánuði?"
Hallgrímur: „Já, já.“
Davíð hrópar í
bakherbergj-
um á Al-
þingi
Amþrúð-
un „Hvernig
eru fleiri svona
orðaskipú ykkar í
mOli?... Talaði hann
um að þú hefðir
gengið aUof langt með
þessari grein?"
HaUgrím-
ue „Já,
Hallgrimur Helgason Frægt er orðtð þegar Davið
Oddssort kollaði hann ó fund sinn. Litið hefur
heyrst afþvt sem fót fram á þeim fundi, Fyrr en nú.
Davíð Oddsson / haust fer Davíd frá sem forsætis
raðherra. Hallgnmur Helgason (ýsti þvi á Útvarpi
Sögu þegar hann var kaílaður á teppið hja Davið,
já, klárlega. Já, já. Hann var mjög óánægður
með greinina en sagði reyndar að hún væri vel
skrifuð. Það var eina.“
Amþrúður: „Hvað sagðir þú þá?“
HaUgrímur: „Ég sagði bara, þeúa væri mín
skoðun. Og ég hvikaði ekkert ffá því og ég held
að það hafi bara komið æ betur í ljós hvernig
„Bláa höndin" vinnur. Hún vinnur á þessum
persónulegu nótum ... Hann talaði mjög Ola um
[Gunnar Smára EgOsson] ritstjóra Fréttablaðs-
ins, um Jón Ásgeir [forstjóra Baugs] og kaUaði þá
aUa Ulum nöfnum. Og ég get nú varla haft það
efúr... [En] þá svona sá maður hvernig höfuðið á
honum vinnur, sko. Og þetta hefur bara komið
síðan æ betur í ljós, því hann hefur náúúrulega
ekkert gert annað síðasúiðin tvö ár en að tala Ola
um Baug og Baugsfeðga og Jón Ásgeir og Fréúa-
blaðið, „Baugstíðindi"... þeúa hafa verið sífeUd-
ar árásir og það fer greinUega rosalega í taugam-
ar á honum og svo er maður að heyra sögur úr
þinginu núna að hann hrópi að þingmönnum
Samfýlkingar að þeir eigi sér bara einn foringja í
lífinu sem er Jón Ásgeir - og þetta lirópar
hann á þá í bakherbergjum efúr umræður
á Alþingi, og hann er greinfiega bara með
manninn á heUanum.
Og ég hef nú spurt fólk sem er nákom-
ið Jóni Ásgeiri hvað [það] gæti hugsanlega
verið sem veldur því að Davíð hatar hann, en
það hefur engin skýring komið fram, en ein
hugsanleg skýring er sú að JónÁsgeir var í Orca
hópnum á sínum tíma, þar sem að Jón Ólafs-
son var náttúrulega innbyrðis og Jón Ólafs-
son var náttúrulega..."
Amþrúður: „Menn æúuðu
að setja upp banka. Það
... liggur ljóst fyrir.
Þeir æúuðu þarna
nokkrir að setja upp
banka ... Þorsteinn
Már og fleiri..."
Hallgrímur: „Ég
er ekki nógu vel að
mér kannski í
þessum viðskipt-
um, en það er
eitthvað þarna."
Amþrúður:
„En hvernig
kvöddust þið?“
Hallgrímur:
„Ja, það var
bara mjög
snöggt. AUt í
eúiu reis hann
upp og sagði
bless: „Vertu
blessaður." Og
svo bara var ég
farinn."
Hallgrímur Helgason kom upp um ýmts
leýndarmál í viðtalinu við Amþrúði Karlsdóttur
á Útvarpi Sögu. Hann talaði um fund sinn með
forsæúsráðherra efúr að greinin um bláu hönd-
ina birúst í fjölmiðlum og
óvænt bræðisköst Davíðs
Oddssonar á Alþingi. Reynd-
ar virðist skiptunum sem
Davíð missir stjóm á sér alltaf
flölga eins og eftirfarandi kafli
úr viðtalinu við Hallgrím leið-
iríljós.
„... hann hefur náttúrlega
ekkert gert annað í tvö ár en
að tala illa um Baug og
Baugsfeðga... þetta hafa ver-
ið sífelldar árásir og svo er
inaður að heyra sögur úr
þinginu núna að hann hrópi að þingmönnum
Samfylkingar að þeir eigi sér bara einn foringja
í lífinu sem er Jón Ásgeir og þetta hrópar hann
Rannveig Guð-
mundsdóttir
þingmaður Segir
Davið sjá Jón Ás-
geir I hverju horni.
Davíð Oddsson forsætisráðherra Sagan um atvikið
með Rannveigu hefur vakið undrun þingmanna.
á þá í bakherbergjum eftir umræður á Alþingi.“
Umræddur atburður átú sér stað á Alþingi í
síðustu viku. Davíð var að veita andsvör við
ræðu Ögmundar Jónassonar en í staðinn fyrir
að svara honum beint nýtú hann sér úmann og
talaði um Samfylkinguna. Rannveigu Guð-
mundsdóttur var misboðið og segja heimildar-
menn DV að hún hafi átt orð við Davíð efúr
ræðuhöldin.
„Davíð, svona tala foringjar ekki," sagði
Rannveig við forsæúsráðherra. Sjónarvottar
segja að Davíð hafi þá gripið um hendurnar á
henni og sagt á móú: „Þú átt bara einn foringja
og það er Jón Ásgeir."
Rannveig er þessa dagana úti í Kaupmanna-
höfn. Þegar DV hafði samband sagðist hún ekki
vilja tjá sig um atburðinn. Hún hefði það fyrir
reglu að það sem færi milli þingmanna utan
ræðupúltsins væri aðeins þeirra á milh.
„Annars hafa ofsóknir forsæúsráðherra verið
með ólfkindum efúr að Ingibjörg Sólrún flutú
ræðuna í Borgarnesi um árið,“ segir Rannveig.
„Það er eins og Davíð sjái Jón Ásgeir í hverju
horni.“
Davíð Oddsson svaraði ekki tölvupósú DV í
gær þar sem hann var spurður út í atvikið með
Rannveigu Guðmundsdóttur. Það vakú hins
vegar athygli í gærmorgun að vel lá á Davíð þeg-
ar fiéttamaður Stöðvar 2 náði tali af honum fyr-
ir utan Stjórnarráðið og spurði hann út í ríkis-
stjómarfundinn. Davíð sagðist vera í góðu
skapi, hefði fengið kakó um morguninn og að
pabbi hans hefði orðið níræður: „Þetta verður
skemmtilegur dagur,“ sagði
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra.
Helgi Hjörvar alþing-
ismaður Komuppum
bræðiskast Daviðs á
heimasiðu sinni.