Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2004, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2004, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ2004 Sport DV Óvissa um leikmenn Stoke Snurða hefur hlaupið á þráðinn í samningamálum Víkinga við þrjá unga leik- menn Stoke City sem væntanlegir voru til félagsins fyrir 4. umferð Landsbankadeildarinnar sem hefst í kvöld. Að sögn Aðalsteins Guðjónssonar, framkvæmdastjóra Víkings, er alls óvíst hvort leik- mennirnir spili með félag- inu yfir höfuð í sumar. Heimildir DV Sports herma að Víkingar séu þegar farnir að líta í aðrar áttir og voru forráðamenn félagsins að skoða ónefndan sóknar- mann frá Norðurlöndunum um helgina. Sigurður Jónsson, þjálfari Víkings, vildi lítið tjá sig um málið og sagði frekari fregna um málið að vænta í dag. FH-KEFLAVÍK 1-1 3. umf. - Kaplakríki -28. mal Dómari: Garðar örn Hinriksson (3). Áhorfendur: 700. Gaeði leiks: 5. Gul spjöld: FH: Heimir Snær (10.), Sigmundur (90.) - Keflavík: Stefán (73.). Rauð spjöld: FH: Heimir Snær (82.). Mörk 0-1 Sjálfsmark 33. Skot úr markteig Haraldur 1-1ÁsgeirÁsgeirsson 62. Skot utan teigs Jónas Grani Leikmenn FH: Daði Lárusson 3 HeimirSnærGuðmundsson 2 Sverrir Garðarsson 4 Tommy Nielsen 4 Freyr Bjarnason 3 Ásgeir Ásgeirsson 4 Smin Karkov 1 Jónas Grani Garðarsson 1 (70., Guðmundur Sævarsson 2) Atli Viðar Björnsson 5 Jón Þorgímur Stefánsson 3 (84., Sigmundur Ástþórsson -) Ármann Smári Björnsson 2 (66., Víðir Leifsson 2) Leikmenn Keflavikur: Magnús Þormar 2 Guðjón Antoníusson 3 Sreten Djurovic 5 HaraldurGuðmundsson 4 Ólafur (var Jónsson 2 Stefán Gíslason 4 Jónas Guðni Sævarsson 4 Zoran Daníel Ljubicic 4 (79., Magnús Þorsteinsson -) Hólmar Örn Rúnarsson 5 (89., Guðmundur Steinarsson -) Scott Ramsey 4 Hörður Sveinsson 3 (71., Þórarinn Kristjánsson -) Tölfræðin: Skot(ámark): 17-12(3-7) Varin skot: Daði 5 - Magnús 2. Horn:6-5 Rangstöður: 1-0 Aukaspyrnur fengnar: 12-12. BESTUR Á VELLINUM: Hólmar Örn Rúnarsson, Keflavík Sjálfsmark hjáTommy Mark Keflvíkinga gegn FH á föstudaginn hefur verið ranglega skráð á Sreten Djurovic í umfjöll- unum um leikinn. Hið rétta er að FH-ingurinn Tommy Nielsen sendi þar boltann í eigið net eftir skalla Haraldar Guð- mundssonar og Djurovic kom þar hvergi nálægt. Hann fagnaði hins vegar markinu manna mest. Fjórða umferð Landsbankadeildar karla hefst í kvöld með Qórum leikjum. DV Sport spáir í spilin og metur möguleika liðanna. Þriðja umferðin olli miklum vonbrigðum og voru gæði leikja í algjöru lágmarki, að undanskildum leik FH og Keflavíkur. Má segja að sá leikur hafi hreinlega komið í veg fyrir að umferðin yrði einhver sú slakasta í manna minnum. Er það óskandi að þessi ládeyða verði gleymd og grafin þegar flautað verður til leiks í kvöld. Skagamenn fá KA í heimsókn til sín í kvöld og vonast Ólafur Þórðarson líklegast eftir að sínir menn fylgi eftir mikilvægum sigri á Fram í síðustu viku. Leikmenn ÍA léku samt sem áður langt undir getu og þarf mikið að breytast í leik þeirra til að hið góða gengi sem þeim var spáð fyrir sumarið verði að veruleika. Búast má við svo til óbreyttu liði hjá ÍA en þó er spurning hvort Grétar Rafn Steinsson verði færður niður á miðj- una á nýjan leik, en lítið fór fyrir honum í nýrri stöðu við hlið Stefáns Þórðarsonar í framlínu liðsins. Leikur KA hefur ollið von- brigðum í ár, liðið hefur ávallt verið lakari aðilinn í leikjum sínum og var stálheppið að fara með sigur af hólmi gegn Víkingi í 2. umferð. Einnig hlýtur það að valda Jóhanni Þórhallssyni hugarangri að hafa ekki enn náð að finna netmöskva andstæðinganna. Reyndar er óvíst um þátttöku Jóhanns sem fór meiddur af leikveUi gegn ÍBV, en búist er við að hann harki af sér fyrir leikinn. Ótrúlegur viðsnúningur Framarar brotíentu í síðasta leik eftir góða frammistöðu í fyrsta leik sumarsins og vilja líklega gleyma frammistöðunni gegn ÍA sem allra fyrst - frammistöðu sem einkennd- ist af metnaðar- og áhugaleysi og misheppnuðum sendingum. For- vitnilegt verður að sjá hvort, og þá hvaða, breytingar Ion Geolgau mun gera á liði sínu fyrir leikinn gegn Grindavík í kvöld, en viðsnún- ingurinn á leik liðsins frá því gegn Víkingi í fyrsta leik og gegn ÍA á fimmtudag var með ólíkindum. Þorvaldur Makan Sigurbjörnsson hefur þegar verið útilokaður ffá leiknum, en búist er við að Ríkharður Daðason verði búinn að ná sér eftir smávægileg ökklameiðsli sem hann hlaut gegn IA. Það er helst sóknarleikurinn sem Grindvíkingar þurfa að taka til gagngerrar endurskoðunar. Sinisa Kekic er algjör yfirburðamaður í liðinu og ljóst er að þegar hann spilar sem miðvörður þurfa aðrir menn að taka af skarið í öðrum stöðum vallarins. Liðið þarf nauðsynlega á sínum fyrsta sigri í sumar að halda, en til þess að hann verði að veruleika þarf að sækja á fleiri mönnum. Víkinga hungrar í stig Víkingar hafa verið einstaklega óheppnir í síðustu tveimur leikjum sínum og voru til að mynda síst lakari aðilinn gegn KR í síðustu umferð. Hinir ungu leikmenn liðsins Klafs Kristinn Hafliöason hjá KR og Sigursteinn Gíslason hjá Víkingií háöu hatramma baráttu á miöjunni í leik liöanna sl. fimmtudag. Þeir veröa líklega báöir f byrjunar- liöum sins liös I kvöld. hungrar í fyrstu stig sumarsins og mega leikmenn FH ekki falla í þá gryíju að vanmeta andstæðinginn í Víkinni í kvöld. Hætt er við að leikstfll Víkinga gegn KR, sem gekk út á að dæla háum boltum á Grétar Sigfinnsson í framlínunni sem fleytti honum áfram, virki síður gegn FH- ingum, þar sem Sverrir Garðarsson og Tommy Nielsen eru mjög sterkir í loftinu. Líklegt er að lið Víkings verði óbreytt frá því gegn KR og Viktor B. Amarson verði að sætta sig við að byrja á tréverkinu eftir að hafa lokið tveggja leikja banni. Hjá FH kemur Heimir Guðjónsson inn í liðið á nýjan leik, líklega á kostnað Jónasar Grana Garðarssonar. íslandsmeistarar KR heimsækja Eyjar og þurfa nauðsynlega á þremur stigum að halda. Wfllum Þór Þórsson þarf hins vegar að taka lið sitt í ærlega naflaskoðun og þá sérstaklega sóknina, sem hefur verið ótrúlega bidaus það sem af er. Lykilmenn hafa hreinlega ekki verið í formi og ef ekki væri fyrir Kjartan Henry Finnbogason væru KR-ingar sennilegast stigalausir á botni deildarinnar. Arnar Gunnlaugsson mun lúdega koma inn í lið KR og reyna að hressa eitthvað upp á sóknarspilið. Eyjamenn hafa hinsvegar komið á óvart, hafa enn ekki tapað leik og virka nokkuð heilsteyptir. vignir&dv.is Keflvíkingar komust á toppinn Jafntefli í Krikanum Keflvíkingar komust á topp Landsbankadeildarinnar í knatt- spyrnu á föstudagskvöldið þegar þeir gerðu jafntefli, 1-1, gegn FH í Kaplakrika. Þessi leikur bauð upp á flest það sem hefur vantað í deildina í sumar og loksins þorðu leikmenn að taka áhættu í sóknarleiknum. Það var gaman að sjá leikmenn liðanna ná meira en tveimur sendingum sín á milli og ekki var verra að sjá liðin sækja á fleiri mönnum en tveimur til þremur líkt og raunin hefur verið í undan- förnum leikjum. Leikurinn var kaflaskiptur að því leyti að Keflvíkingar réðu ferðinni í fyrri hálfleik. Þeir voru mun meira með boltann, hreyfingin á leik- mönnum liðsins var góð og þótt þeirra eina mark væri sjálfsmark FH-inga fór ekki á milli mála að þar fer það lið sem spilar bestu knatt- spyrnuna í defldinni nú um stundir. FH-ingar komu hins vegar sterkir inn í síðari hálfleik, færðu sig framar á völlinn, uppskáru eitt mark fyrir vikið og voru sterkari aðilinn allan seinni hálfleikinn. Þegar upp var staðið var jafntefli sennilega sanngjörn úrslit en leikmenn beggja liða geta borið höfuðið hátt. Þrátt fyrir að leikurinn fari ekki á spjöld sögunnar sem sá best leikni þá var hann mikil framför frá öðrum leikjum í umferðinni. Leikmenn liðanna sýndu hugrekki og þor, sem er sjaldséð á meðal íslenskra knattspyrnumanna í dag. Kannski er kröfurnar ekki miklar en leikmenn liðanna eiga þakkir skildar fyrir frammistöðuna - loksins fengu áhorfendur eitthvað fyrir peninginn. kantana hjá Keflavik í ieiknum á föstudaginn og hér sést hann einu sinni sem oftar fara illa með FH-inginn Heimi Snæ Guðmundsson. DV-mynd Pjetur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.