Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2004, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2004, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ2004 Sport DV íslenska landsliðið beið lægri hlut fyrir Japönum á sunnudaginn. Það er ekki oft sem það er hægt að segja um íslenska landsliðið í knattspyrnu að sóknarleikurinn hafi verið góður en varnar- leikurinn hafi orðið liðinu að falli. Það var hins vegar raunin eftir leik hðsins gegn Japönum á sunnudaginn. fslenska liðið skoraði tvö mörk og hefði getað skorað fleiri en vörnin brást og liðið getur þakkað Árna Gauti Arasyni fyrir að mörk Japana urðu ekki fleiri. fslenska liðið byrjaði leikinn á sunnudaginn mjög vel og komst yfir strax á 5. mínútu þegar Heiðar Helguson skoraði af miklu harðfylgi. Hann fékk síðan ljómandi gott tækifæri til að auka muninn á 16. mínútu en skaut þá yfir úr sannkölluðu dauðafæri. Japanar jöfnuðu síðan leikinn á 21. mínútu þegar Kubo fékk að standa aleinn í heiminum á teignum, sneri Pétri Marteinssyni og ívari Ingimarssyni eins og skopparakringlum og skoraði auðveldlega. Hann var síðan aftur á ferðinni fimmtán mínútum síðar þegar hann lék á meinta rangstæðugildru þeirra félaga, Péturs og ívars, og vippaði boltanum yfir Árna Gaut. Þrátt fýrir þetta reiðarslag var íslenska liðið þó ekki af baki dottið og jafnaði metin á 50. mínútu. Heiðar Helguson skoraði þá sitt annað mark í leiknum með skalla eftir hornspyrnu Jóhannesar Karls Guðjónssonar. Adam var þó ekki lengi í paradís því sex mínútum síðar var dæmd vítaspyrna á íslenska liðið. „íslandsvinurinn" Mike Riley sá þá ástæðu til að flauta víti eftir viðskipti Péturs Marteinssonar og Takayuki Suzuki - afskaplega strangur dómur. Alex skoraði sigurmarkið úr 1 vítinu og það sem eftir lifði leiks voru Japanir líklegri til að skora. Varnarleikur íslenska liðsins var vægast sagt lélegur á löngmn köflum í leiknum gegn Japön- um á sunnu- daginn. Varnarmenn- irnir, sérstak- lega ívar og Pétur, gerðu sig seka um byrjendamistök fyrstu tveimur mörkunum. Miðjan sást ekki löngum köflum, fyrir utan Jóhann- es Karl sem var spræ ur. Það sann- aðist í þessum leik að sóknarleikur íslenska liðsins stendur og fellur með Eiði Smára Guðjohnsen og Heiðari Helgusyni. Það var allt annað yfirbragð á framlínu liðsins en í undanförnum leikjum, ógnunin var miklu meiri og þeir tveir voru allan tímann lfldegir til að skora. Eiður Smári fór sér hægt í leiknum en það er gulls ígildi að hafa leikmann sem getur haldið boltanum jafn vel og hann. Heiðar fór hins vegar hamförum og réðu japönsku vamarmennimir ekkert við hann. Hann uppskar laun erfiðisins með tveimur mörkum. Þegra upp er staðið geta leik- menn og þjálfarar íslenska liðsins verið sáttir við sóknarleikinn en varnarleikurinn er vandamál sem þarf að leysa sem fyrst. Það er hætt við því að útkoman gegn Eng- lendingum verði ljót ef boðið verður upp á sama varnarleik. oskar@dv.is Pétur Marteinsson Pétur átti stórfurðulegan leik. Hann átti sök á öiium þremur mörkum japanska liðsins en leit annars nokkuð vel út. Var grimmur í návígjum og skilaði boltanum vel frá sér. En mörkin þrjú telja. Þórður Guðjónsson Þórður var nánast ekki með í leiknum. Hann náði aldrei sínum frægu rispum og leið fyrir það hversu illa liðinu tókst að ná tökum á miðjunni. Einkunnirleikmanna Stóðst prófíð FaU- einkunn Indriði Sigurðsson Indriði átti afskaplega dapran dag gegn Japönum. Mjög lélegur varnarlega í fyrri hálfleik þar sem var oft farið á bakvið hann og afspyrnusiakur sóknarlega. Brynjar Gunnarsson Brynjar Björn komst aldrei í takt við leikinn og kórónaði slakan leik með því að láta reka sig út affyrir Ijóta tæklingu. Vann óvenju fá návígi og skilaði boltanum illa frá sér. Arnar Grétarsson Árni GauturArason ívar Ingimarsson fvar átti mjög slakan dag gegn Japönum. Hann átti hluta afsökinni í tveimur fyrstu mörkum Japana. Hann er veikasti hlekkur varnarinnar virðist vanta hraða og styrk til að virka. Arnar var ósýnilegur löngum köflum i leiknum og náði aldrei að komast inn i leikinn. Hans sterkasta hlið er að dreifa boltanum en hann komst sjaldan í tæri við hann og gerði þar afleiðandi ekki mikið. Jóhannes Karl Guðjónsson Heiðar Helguson Heiðar var besti leikmaður íslenska liðsins. Vann alla skallabolta, hljóp eins og brjáiæðingur og uppskar laun erfiðisins, tvö mörk. Árni Gautur átti frábæran leik gegn Japönum. Hann verður ekki sakaður um mörkin sem íslenska liðið fékk á sig en varði oft á tíðum frábærlega vel. Hermann Hreiðarsson f Hermann færir íslenska liðinu sjálfstraust. Hann var sterkasti leikmaðurinn i vörninni, vann sín návígi og var öflugur fram á við, í raun mun hættulegri en vængmaðurinn Indriði. Jóhannes Karl var bestur miðjumanna isienska tiðsins. Hann barðist eins og Ijón og átti nokkrar finar sendingar - langbesti leikur hans í langan tima. y, * Eiður Smári Guðjohnsen Eiður Smári hefur oft verið betri en á sunnudaginn. Hann hélt hins vegar boltanum vel, var skapandi og sóknarleikur íslenska liðsins er allt annar þegar hann er með. i vornmn Vandræði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.