Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2004, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2004, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 1.JÚNÍ2004 Fókus DV 0 Beyoncé ^ . Live at Wembley k k W' K : é Columbia/Skífan ggs§ Þessi útgáfa inniheldur tónleika og aukaefni á DVD, en þrjú ný lög og 3 remix á CD. Beyoncé er Plötudómar mikil hæfileikakona og frá- bær söngkona. Og ekki skemmir útlitið fyrir henni. Maður átti þess vegna von á góðri stund fyrir framan imbann. Það verður hins vegar að segjast eins og er að stelpan olli mér von- brigðum. í fyrsta lagi eru tónleikarnir greinilega hraðsoðnir og h'tið í þá lagt. Destiny’s Child-syrpan er t.d. bara brot spiluð af plöt- um og meira að segja með stoppum á milli. Það vantar metnað í tónlistarflutning- inn. í öðru lagi eru lögin á CD-inum algjört afgangs- jukk. Skamm. Crazy in Love er að vísu dúndur á tónleik- unum og einhver fleiri lög sleppa fyrir horn, en Beyoncé á að geta gert miklu betur en þetta. Trausti Júlíusson RJD2 Since Last We Spoke 'k'kir Definitive Jux/Smekkleysa RJD2 er aukasjálf hins 28 ára gamla Ramble Jon Krohn. Since We Last Spoke er hans þriðja plata, en hann vakti töluverða at- hygii fyrir plötu númer tvö Dead Ringer sem var hans fyrsta plata fyrir pötuútgáfu EL-P, Definitive Jux. Meðlimir Radiohead eru víst miklir aðdáendur hans. Tónlist RJD2 er tilrauna- kennt hip-hop. Hann fer ótroðnar slóðir og notar hljóðbúta úr óvæntum átt- um. Á nýju plötunni sækir hann sömplin sín að miklu leiti í gamalt sýrurokk frá sjöunda áratugnum, en líka í soul og fönk og fleira. Það er ekki sjálfgefið að tilraun- ir eins og þær sem RJD2 stundar virki, en hér er út- koman sérstök og skemmti- leg plata sem vinnur á við frekari hlustun. Trausti Júlíusson I f é k u s 1 m (1) The Beastie Boys - Ch-Check It Out 2.(3) The Datsurts - Blacken My Thumb 3.(3) The Streets - Dry Your Eyes 4.(-) The Shins - Saint Simon 5J2) The Walkmen - The Rat 6.(7) Ghostface feat. Missy E - Tush 7.(5) Franz Ferdinand - Matinee 8.(4) !!! - Pardon My Freedom 9.(9) Wiley - Wot Do U Call It? 1 0. (6) The Streets - You're Fit But You... Það hefur farið lítið fyrir fyrrum Smiths-söngvaranum Morrissey siðustu ár. En einmitt þegar maður var farinn að halda að hann væri hreinlega hættur að fást við tónlist mætir hann með nýja plötu. You Are the Quarry er fyrsta platan hans í sjö ár og telst vera viðburður. Trausti Júlíusson tékk- aði á Morrissey. Darkness notar AC/DC pródúser á næstu plötu Bresku þungarokksviðundrin í The Darkness halda áfram að sækja sínar fýrirmyndir í rokktónlist áttunda og „ ’ níunda áratugarins. , -« ÞeirhafanúráðiðRo- « p ' bert John „Mutt" Lange ' til þess að pródúsera aðra plötuna sína, en hann er m.a. þekktur fýrir að hafa tekið upp AC/DC-plötuna For Those About to Rock og Hysteria með Def Leppard. Hitt enska fótboltalagið The Libertines, Supergrass og Delays verða á meðal flytjenda á lagi sem verður gefið út til dýrðar enska landsliðinu í knatt- spyrnu í tilefni af Evrópukeppninni í 'pqgj Portúgal. Þetta er ekki opinbera stuðningslagið heldur sigurlagið úr samkeppni XFM- „Fæstir geta útskýrt líf sitt þannig að ég skil ekki af hverju það er búist við því að tónlistarmenn geri það,“ sagði Morrissey þegar hann var spurður að því hvað hann hafi verið að gera síðan hann gaf út sína síð- ustu plötu, Maladjusted, fýrir rúm- um sjö árum. Morrissey er eitt af stóru nöfnunum í breskri tónlist síð- ustu tveggja áratuga. Hann vakti fyrst athygli á níunda áratugnum sem forsprakki hljómsveitarinnar The Smiths, en eftir að hljómsveitin lagði upp laupana árið 1987 sendi hann frá sér sjö sólóplötur á tíu árum. Svo kom pása, en áttunda platan var að koma út. Hún heitir You Are the Quarry og hefúr fengið mjög góðar viðtökur. Urðu strax hetjur Stephen Patrick Morrissey er fæddur 22. maí 1959 í Manchester. Hann var feiminn og óöruggur í æsku og fékk dellu fyrir kvikmyndum og tónlist. Hann safnaði gömlum Ijósmyndum af kvikmyndastjörnum. Á pönktímanum reyndi hann að komast að sem söngvari í hljóm- sveitinni Slaughter & the Dogs, en var hafnað. Hann söng í skamman tíma með annarri pönksveit, Nosebleeds. Hann hitti gítarleikaran Johnny Marr árið 1982 og þeir byrj- uðu að semja tónlist saman og stofn- uðu síðan The Smiths, sem var sennilega áhrifamesta breska hljóm- sveitin á níunda áratugnum. Fyrsta Smiths-smáskífan, Hand In Glove sem kom út 1983, fjallaði um samkynhneigð. Hún gerði hljómsveitina strax að hetjum í Morrissey Liggur enn margt á hjarta. ákveðnum kreðsum. Áhrif og vin- sældir sveitarinnar jukust stöðugt fr á fýrstu plötunni The Smiths sem kom út 1984 og þar til hún hætti nokkrum vikum eftir útkomu fjórðu plötunnar Strangeways, Here We Come árið 1987. Það voru samt ekki allir hrifnir af sveitinni. Viðkvæmnin og dapur- leikinn sem einkenndi bæði tjáning- una hjá Morrissey og marga texta hans snerti aðdáendur djúpt, en fór jafn mikið í taugamar á öðrum. „Væl frá aumingja í sjálfsvorkunn" eins og einhver kallaði það... í útlegð í LA Þó að Morrissey sé umdeildur eru flestir sammála um að hann sé al- vöru textasmiður. Hann hefur alltaf eitthvað til málanna að leggja. Sóló- plöturnar hans þykja nokkuð mis- jafriar. Viva Hate (1988), Your Arsenal (1992) og Vauxhall & I (1994) eru oftast nefndar sem bestu plöt- urnar og nýja platan You Are the Quarry þykir eiga heima í sama gæðaflokki. Hún er að raða inn góð- um dómum úti um allt þessa dag- ana. Morrissey hefur búið í Los Angel- es undanfarin ár. Það má eiginlega segja að hann hafi flúið þangað til að sleppa við allt ónæðið og áreitið í Bretlandi. í LA er allt fullt af heims- þekktum stjömum og enginn að kippa sér upp við það. Morrissey er samt ekki alveg ánægður með borg- ina. Hann saknar t.d. breska sjón- varpsins og í fyrsta laginu á You Are the Quarry, America Is Not the World, gagnrýnir hann afskiptasemi Bandaríkjanna í heiminum þó að hann taki það fram að hann dái þau líka. Margir aðrir textar á plötunni em eftirtektarverðir, t.d. I Have For- given Jesus, Come Back to Camden, The World Is Full of Crashing Bores og You Know I Couldn’t Last... útvarpsstöðvarinnar, sem sér- hæfir sig í rokki rétt eins og X-ið hér á landi. Loksins Prodigy-plata? Síðustu ár hefur okkur verið sagt á hverju ári að ný Prodigy- plata, Always Outnumbered, Never Outgunned, sé á leiðinni. Og nú á hún að vera tilbúin til úrgáfú. Keith Flint og Maxim komu víst ^ ekkert nálægt gerð hennar. Menn ættu nú samt að fara varlega í að fagna. Maður trúir þessu þegar maður er kominn með eintak í hend- umar... REM og Rammstein með í haust Nýjar plötur með R.E.M. og Rammstein em væntanlegar í haust. Rammstein-platan kemur 20. september og , _____ verður fylgt eftir með heimsreisu. R.E.M.-platan kemur fyrir árslok og mun innihalda lög eins og On the Fly, The Outsiders, Leav- ing New York, Wanderlust, Electron Blue, Aftermath, Magnetic North og Make It All OK... plötur dag, plötumar, á tónleikum og það varð úr að hann pródúseraði nýju plöt- þaö una. Þaö er kannski þess vegna sem hún minnir meira á Biui en fyrm ídur plötumar. Hún er bæði á köflum poppaðri og fjölbreyttari, en Graham ngin segist hafa verið undir áhrifúm frá Ennio Morricone, Scott Walker, The Ruts, The Cars og Split Enz þegar hann var að gera plötuna. leitir Fyrsta smáskífan af plötunni er ekta britpop-smellur, Bitter- ong. sweet Bundle of Misery, en mörg önnur lög á plötunni em ekkert llur- síöri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.