Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2004, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2004, Side 18
18 ÞRIÐJUDACUR 1. JÚNÍ2004 Sport 3DV Ricevann Indy 500 Hinn 28 ára gamli Buddy Rice vann stærsta kappakstursviðburð ársins, Indy 500, á sunnudag fyrir framan 350 þúsund áhorfendur. Ekki náðist að ljúka keppni en eknir höfðu verið 175 hringir af 200 þegar rigning gerði það að verkum að hætta varð akstri. Rice keyrði glæsilega á hinni frægu Indianapolis Motor Speedway-braut og var vel að sigrinum kominn. Þetta var fyrsti sigur hans í IRL-deildinni en hann keyrir fyrir Rahal- Letterman Racing sem er meðal annars í eigu sjón- varpsmannsins kunna Davids Letterman sem fagnaði vel í leikslok. Sammertil Stuttgart Matthias Sammer hefur hætt störfum hjá Dortmund og er tekinn við stjómartaumunum hjá Stuttgart. Hann tekur viö starfinu af Felix Magath, sem fór til Bayem Munchen. „Þetta er veröugt verkefni að takast á við og ég mun reyna að bæta við það góða starf sem Felix hefur unnið hjá félaginu," sagði Sammer. Ranieri rekinn Fréttirnar sem allir hafa beðið eftir í marga mánuði komu loksins í gær er Chelsea rak ítalann Claudio Ranieri úr starfi knatt- spyrnustjóra Chelsea. Fastlega er búist við því að Jose Mourinho, sem stýrði Porto til sigurs í Meistara- deildinni, taki við starfinu. Ranieri fær væntanlega feitan starfslokasamning þar sem hann var bundinn félaginu til 2007. Tyson í Tarver? Mike Tyson er ekki dauður úr öllum æðum en eyrnanartarinn hefur sett stefnuna á að buffa Antonio Tarver á næstunni. Tarver þessi er WBC- og WBA-heims- meistari í þungavigt og hugsanlega nokkrum númerum of stór fyrir Tyson, sem hefur ekkert getað í mörg ár. Tarver gerði sér h'tið fyrir og rotaði sjálfan Roy Jones jr. í 2. lotu um daginn. íslenska landsliðið í handknattleik er komiö með annan fótinn á HM íTúnis á næsta ári eftir sex marka sigur á ítölum í Teramo, 37-31. Sigurinn hefði getað orðið mun stærri en íslenska liðið gaf eftir í síðari hálfleik Veroum að halda haus •rakw.V !" -svefninum ólafur •••>' .•<••• iKikti /.-«.•/1Grikklemdi en •viknaði• ri Irali. riir sem hann átti .t.irielkog ;<v>v«A. I2m.i'i. íslenska liðið fór mikinn í þessum leik og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Þá keyrði íslenska liðið hreinlega yfir ítalana og þegar menn gengu til búningsherbergja hafði íslenska liðið ellefu marka forskot, 23-12. Ekki gekk eins vel í síðari hálfleik. ítalska liðið vaknaði af værum blundi og saxaði jafnt og þétt á forskot íslenska liðsins. Aldrei náðu heimamenn þó að ógna verulega og fór svo að íslenska liðið vann öruggan sex marka sigur, 37-31. Það veganesti ætti að duga liðinu fyrir seinni leikinn, sem fram fer í Kaplakrika um næstu helgi. íslenska liðið lék tvo leiki í Aþenu - gegn Austurríkismönnum og Grikkjum áður en haldið var til Ítalíu. Þar marði það sigur á Austurrfldsmönnum en tapaði gegn Grflckjum. íslenska hðið þótti afspyrnuslakt í leikjunum eins og úrslitin bera með sér. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari sagði að allt annað hefði verið uppi á teningnum en var í Aþenu. „Það verður nú að segjast eins og er að þetta var eins og svart og hvítt. Fyrri hálfleikur var frábærlega vel leikinn af okkur hálfu. Við áttum 29 sóknir og skoruðum 23 mörk. Það segir frekar mikið um leildnn. Hraðaupp- hlaupin gengu mjög vel og við skoruðum að ég held 20 mörk úr Iiraða- upphlaupum. Hraða- upplflaupin voru eitt af því sem við skoðuðum eftir leikina í Aþenu en þau voru skelfileg þar. Það skUaði sínu í þessum leik," sagði Guðmundur. MÖRKIN Þessi frábæri fýrri hálfleikur skflaði eUefu marka forystu en íslenska liðið Ólafur Stefánsson 12 missti svolítið dampinn í síðari Guðjón Valur Sigurðsson 9 hálfleik. Patrekur Jóhannesson 4 EinarÖrn Jónsson 3 Gáfum eftir Jaliesky Garcia Padron 3 „Við gáfum eftir í síðari hálfleik. Dagur Sigurðsson 2 Við ætluðum að halda áfram að Snorri Steinn Guðjónsson 2 I bæta við en því miður þróaðist Sigfús Sigurðsson 1 leikurinn öðruvísi. Við fengum Rúnar Sigtryggsson 1 1 dauðafæri sem fóru í súginn og svo fóru dómar gegn okkur. Svo slökuðu Varin skot: menn á og ítalir nýttu sér það og Guðmudur Hrafnkelsson 18 | unnu síðari hálfleikinn." Sex marka forysta gegn ítah'u ætti að öhu eðlUegu að duga eins sterku hði og íslandi. Þrátt fyrir það er Guðmundur ekki tílbúinn að fagna strax. „Ég vU ekkert segja um hvort þetta sé komið eða dugi okkur. Þetta ítalska lið var svipað því sem ég átti von á. Þetta lið vann Austurrfld sem við rétt mörðum í Aþenu og menn verða að spfla almennflega tíl þess að klára dæmið. Menn verða að halda haus í þessari baráttu. Maður er búinn að vera það lengi í þessu að maður veit að það þarf að klára svona leiki með fullri einbeitingu tíl þess að komast áfram." Mörgum blöskraði frammistaða íslenska liðsins í Aþenu og var sett spurningarmerki við það að HSÍ væri að senda lið tU undirbúnings fyrir Ítalíuleikinn og svo þegar á reyndi var engu líkara en atvinnu- mennirnir nenntu ekki að spila þessa æfingaleiki. Er einhver tilgangur að mati Guðmundar að spUa svona leiki ef ekki er metnaður fyrir því að spUa þá af fullum krafti? Mikilvægir æfingaleikir „Það er margt sem spilar inn í þetta og við verðum að hta á þetta í samhengi. Menn voru að tínast úr sitt hvorri áttinni og menn voru nýbúnir að spila. Jú, jú, það má alveg gagnrýna okkur fyrir það að hafa ekki komið grimmari í þessa leiki en engu að síður held ég að við höfum fengið helling út úr báðum leikjunum. Við verðum líka að líta á að það er mikilvægt að vinna réttu leildna,'' sagði Guðmundur, sem sér ekkert eftir ferðinni til Aþenu. „Ég er sannfærður um að þessir leikir skUuðu miklu og voru gríðarlega mUdlvægir. Það var hálft ár síðan hópurinn hittist og við urðum að stiUa saman varnar- og sóknarleUdnn, tímasetningar og annað. Það er mfldlvægt að spUa leiki. Það er bara þannig." henry@dv.is Það má alveg gagnrýna okkur fyrir það að hafa ekki komið grimmari í leikina í Aþenu en engu að síður held ég að við höfum fengið helling út úr báðum leikjunum. Við verðum líka að líta á að það er mikilvægt að vinna Ferrari í flnu formi á Nurburgring Allt eins og það á að vera Tilfinningaríkur maður MichaelSchu- macher er ekki búinn að fá leið á þvíað sigra. Hann felldi tár eftir keppnina um helgina. Það er aUt orðið eðlUegt í Formúlu 1 heiminum á ný því Michael Schumacher vann ákaflega þægUegan sigur á Nurburgring um helgina. Kraftaverkunum á þessu tímabUi er því lokið í bUi en eins og kunnugt er gerðist það í keppninni þar á undan að hann vann ekki. Það var tvöfaldur sigur hjá Ferrari-liðinu um helgina því BrasUíumaðurinn Rubens Barri- cheUo kom annar í mark en enginn ógnaði þeim tveimur á toppnum. Ferrari er því komið með yfirburðaforystu í keppni bílasmiða og keppnin um ökumannstitUinn er svo gott sem búin enda hefur Schumacher unnið ahar keppnir nema eina. McLaren-liðið ætlaði sér stóra hluti á heimaveUi en vonir þess um árangur fuku fljótt út í buskann þegar Benz-vélar bflanna bUuðu. Það var síðan enn frekar vatn á myUu Schumachers að WiUiams- bflarnir rákust saman í fyrstu beygju. Ralf Schumacher kláraði síðan ekki kappaksturinn og Juan Pablo Montoya varð að sætta sig við áttunda sætið. Sato kom á óvart Takuma Sato kom nokkuð á óvart er hann veitti Ferrari-bflunum keppni lengi vel en hann var klaufi er hann reyndi að komast fram úr BarricheUo - framvængur brotnaði og eftir þjónustuhlé sprakk síðan vélin í bíl hans. Button tók því þriðja sætið og mikilvæg stig. henry@dv.is URSLIT Orslitin á Nurburgring: 1. Michael Schumacher Ferrari 2. Rubens Barrichello Ferrari 3. Jenson Button BAR 4. JarnoTrulli Renault 5. Fernando Alonso Renault 6. Giancarlo Fisichella Sauber 7. Mark Webber Jaguar 8. Juan Pablo Montoya Williams 9. Felipe Massa Sauber 10. Nick Heidfeld Jordan 11.0livier Panis Toyota 12. Christian Klien Jaguar 13. Giorgio Pantano Jordan 14. Gianmaria Bruni Minardi 15. Zsolt Baumgartner Minardi Luku ekki keppni: Takuma Sato BAR David Coulthard McLaren Kimi Ráikkönen McLaren Ralf Schumacher Williams Cristiano da Matta Toyota

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.