Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1974, Blaðsíða 15

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1974, Blaðsíða 15
ar. Allar venjulegar reikniaðgerðir, sem framkvæma má á tölum er hægt að framkvæma á vektorum og fylkj- um án nokkurra breytinga. Ef skrif- að er A + B, þá fæst, ef A og B eru tvær tölur, ein tala og ef A og B eru fylki, þá fæst nýtt fylki, sem hefur einstök element jöfn summu element- anna í A og B. Eins og sést á mynd 2 þá er töluverður fjöldi tákna, sem eingöngu er fyrir aðgerðir á vektor- um og fylkjum. Þannig má bylta fylki með einu tákni, fella niður eða bæta við röðum og dálkum og finna má andhverfu fylkis eða leysa n jöfnur með n óþekktum með einu tákni, en það verður að teljast mjög sérstakt því að í öðrum forritunar- málum þarf stórt forrit til þess að framkvæma þessar tvær síðast töldu aðgerðir. Mjög einföld regla gildir um röð aðgerða í APL: séu engir svigar í skipun eru allir reikningar framkvæmdir frá hægri til vinstri. Þannig er 2X3 + 4 jafnt og tvisvar sinnum summan af 3 og 4 eða 14 og 3X6 + 6-í-2 er jafnt og 3X6 + 3 eða 3X9 það er 27. Ýmsir mun að sjálf- sögðu telja, að þetta sé frekar ókost- ur en kostur og enn aðrir segja ef- laust að „frá hægri til vinstri“ regl- an sé óeðlileg. En sé þessi regla bor- in saman við reiknireglur annarra forritunarmála t.d. PL/I, sem hefur allt að 9 mismunandi stig, sem fylgj- ast verður með, þá skilst hversu hag- nýt og eðlileg þessi regla er. Vissu- lega ber þó að viðurkenna, að þetta er regla, sem verður að tileinka sér og getur valdið erfiðleikum, þegar læra á reiknireglur annarra forritun- armála. Ef undan eru skildar stað- bundnar breytistærðir í föllum, þá þarf ekki að skilgreina stærðir i APL. Lengd vektora og stærð fylkja er sveigjanleg og ákvarðast á því augnabliki, sem skipun er fram- kvæmd þ.e. engar DIMENSION- setningar þarf. Þetta er einkar mikilvægt í gagnvirku máli, því ekki þarf að fletta til baka til þess að finna hvernig einhver stærð hefur verið skilgreind. Einn aðalkostur APL umfram önnur forritunarmál t.d. FORTRAN og PL/I er, að mun minni tíma tekur að gera forrit í APL. Stafar þetta meðal annars af því, að með hverju APL-tákni má framkvæma flóknar aðgerðir. Þann- ig má gera ráð fyrir, að ein APL setning komi í mörgum tilfellum í stað fimm FORTRAN setninga. Eftirfarandi dæmi sýna mismun á forritun í APL og FORTRAN og APL FORTRAN AÐGERÐ 1) A+-3 2) B<_ 24 1 3) C^AXB C 6 12 3 4) ,532 5) D<_2 3PB D 4 1 3 2 A=3 DIMENSION B(3) B(l)=2 B(2)=4 B(3)=l DIMENSION C(3) DO 1 1=1,3 1 C(1)=A*B(1) PRINT 2,C 2 FORMAT Ekki mögulegt í Fortran nema B hafi í upphafi lengdina 6 B(4)=5 B(5)=3 B(6)=2 DIMENSION D(2[3) D(1,1)=B(1) D(1,2)=B(2) D(1,3)=B(3) D(2,1)=B(4) D(2,2)=B(5) D(2,3)=B(6) PRINT 1,D 1 FORMAT Tala Vektor Margfalda vektor með konstant Lengja vektor Mynda fylki 2X3 úr vektornum B 6) C<—3 1PC C 6 12 3 eða C< Breyta láréttum vektor í lóðréttan 7) -0C -D+ . XC 8) G<_3 3p G 2 3 5 6 8 9 t9 DIMENSION F(2) DO 1 1=1,2 F(I)=0 DO 1 J=l,3 F(I)=F(I) + D(I,J)*C( J ) PRINT 2,F FORMAT DIMENSION G(3,3) K=1 DO 1 1=1,3 DO 1 J=l,3 G(I,J)=K 1 K=K+1 PRINT 2,G 2 FORMAT 9) H<_D + .XG Dimension H(2,3) G DO 1 1=1,2 25 32 21 DO 1 J=l,3 31 41 51 H(I,J)=0 DO 1 K=l,3 1 H(I,J)=H(I,J)+D (I,K)*G(K,J) PRINT 2,H 2 FORMAT 10) X<_B:A Forrit með nokkrum tugum lína Margfalda fylki með vektor Mynda fylki 3X3 úr tölunum 1 til 9 Fylkjamargfeldi Leysa n líkingar með n óþekktum AX=B TlMARIT V FI 1974 — 93

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.