Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1974, Blaðsíða 12

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1974, Blaðsíða 12
Guðmundur Guðmundsson, dósent en auk hans kennir Ottó J. Björnsson, adjúnkt, einkum likindafræðina. Meðfylgjandi mynd gefur heildar- yfirsýn yfir námsefni reiknifræði- brautarinnar og samhengi hinna einstöku greina. Nokkuð er um það, að nemendur utan þessarar náms- brautar sæki einstakar greinar eða greinaflokka námsefnisins. 1 því skyni hefur verið leitast við að gera greinar og greinaflokka sem sjálf- stæðasta. Um námsefni hinna einstöku greinaflokka er þetta að segja: Aðgerðagreining hefst á nám- skeiði í fléttufræði og er þar fjallað um ýmsa innviðu endanlegrar stærð- fræði, svo sem graffræði. Að nokkru leyti er þetta hjálpargrein vegna rafreiknifræðinnar. Þá tekur við bestunarfræði. Er þar farið allítar- lega í línulega bestun en einnig í nokkur sérhæfð bestunarverkefni. 1 aðgerðagreiningu I og II er fjallað um dýnamiska bestun, birgðafræði, ákvarðanafræði, biðraðafræði, reikni- eftirlíkingu og ólínulega bestun. Líkindafræði er kennd á 2. og 3. misseri og er þar gefinn ítarlegur fræðilegur inngangur í greinina. Á seinna námskeiðinu er m.a. fjallað um markgildissetningar, Markoff- keðjur og fallhendingar. Tölfræði I og II tekur þá við. Auk almennra undirstöðuatriða í tölfræði má nefna línulega tölgreiningu, tölfræðilegar prófanir, þáttagreiningu og tíma- raðir. Rafreiknifræði hefst með nám- skeiði í FORTRAN-forritun. Þá taka við kennslugreinarnar: tölvunotkun, rafreiknifræði, kerfisforritun og loks gagnasafnsfræði. Kennd eru forritunarmálin RPG, FORTRAN IV, Assembly-mál, og PL/I. Farið er í atriði eins og stjórnkerfi, skrá, mál- fræði forritunarmála, strengi, lista, „loaders', „makró-‘‘mál, fjarvinnslu og gagnagrunn. Námi í reiknifræðum lýkur með ritgerðarverkefni. Aðbúnaður kennslunnar er sú að- staða, sem reiknistofa Raunvisinda- stofnunar háskólans veitir. Er þar fyrst og fremst um að ræða aðgang að tölvu, IBM 1620. Þá hefur tölva Skýrsluvéla rikisins og Reykjavíkur- borgar, IBM 370/135, verið notuð við kennsluna. Áformað er að auðvelda þau afnot með fjarvinnslustöð. Þá hefur háskólinn afnot af APL-reikni- kerfi því, sem komið hefur verið á við rafreikni SKYRR. Framtíðaráform Um framþróun reiknifræðikennslu innan Háskóla Islands er erfitt að spá. Væntanlega verður hún þó vax- andi þáttur í námi verkfræði- og viðskiptafræðinema, einkum þó raf- reiknifræðikennslan. Þá er ekki óeðlilegt, að nemendur I félagsfræði fái nokkra nasasjón af rafreikni- fræði. Námsgreinar reiknifræðibrautar við stærðfræðiskor Háskóla íslands Stæröí'ræðigr. I Línul. a lgobrn Algobra Forritun Valgrcin Valgrcin Valgrein Bcs tunarfræði v Tölfræði I Rafreiknifræði Aðgerðagrcining I Töli'ræði II Kcrfisforritun v Ý Aðgcrðagreining II Ritgcrð Gagnasafnsfræði Efsta línan tilgreinir námsefni 1. misseris o.s. frv. Skrá yfir helstu fræðiorð. aðgerðagreining: oparationsanalýsa, operations research bestunarf ræði: optimerings teoría fléttufræði: kombínatorisk stærðfræði forritun: programering línuleg bestun: línuleg programering línuleg tölgreining: línuleg regression rafreiknifræði: computer science reiknief tirlíking: numerisk simulation tölfræði: statistik töluleg greining: numerisk analýsa þáttagreining: faktor analýsa 90 — TlMARIT V F I 1974

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.