Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1974, Blaðsíða 26
Shipping
Den internasjonale shippingutstilling verður haldin i fimmta sinn í Osló dagana
5. til 10. maí 1975. Verður þar að finna ýmislegt, sem lýtur að skipum og útgerð.
Nánari upplýsingar fást hjá:
Nor-Shipping 75
Postboks 130,
Sköyen,
Oslo 2.
PL
Fryst matvæli
Þriðja alþjóða-vörusýning á sviði frystra matvæla verður haldin í Japan dagana
3. til 7. júnl 1975.
Nánari upplýsingar veitir:
Third International Frozen Food Industry Exhibition and Conference,
Japan Management Association,
Kyvoritsu Building,
1-22, 3 - Chome,
Shiba-Park Minato-Ku,
Japan. PL
POAC-3
Þriðja alþjóðlega ráðstefnan um höf og hafnir á norðurslóðum (POAC-3) verður
haldin í Alaskaháskóla í Fairbanks, Alaska, dagana 11.-15. ágúst 1975. Svo
sem á fyrri ráðstefnunum mun á þessari ráðstefnu aðallega verða fjallað um
strandverkfræðileg viðfangsefni, en einnig er gert ráð fyrir því, að hún láti
náttúruverndar- og umhverfismál til sín taka. Ráðstefnan verður haldin í Alaska
einmitt um það leyti sem hagnýting olíu og jarðgass í íshafinu er að komast á nýtt
stig með byggingu olíuleiðslu þvert yfir landið.
Gert er ráð fyrir, að ráðstefnuna muni sækja a.m.k. 500 þátttakendur, þ. á m.
ýmsir vel þekktir sérfræðingar á þeim sviðum, sem ráðstefnan fjallar um.
Frekari upplýsingar veita Þorbjörn Karlsson og Jónas Elíasson, Háskóla Islands.
VERKLEGAR FRAMKVÆMDIR
Útboð — tilboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar
Nýlega hefur stofnunin boðið út eftirtalin mannvirki:
A. Hitaveita
1. Tilboð í lögn Hafnarfjarðaræðar, 2. áfanga, voru opnuð 6. nóvember 1974.
Alls bárust 6 tilboð og voru þau 76,5% (Aðalbraut h.f.), 91,7% (Istak h.f.),
96,5% (Véltækni h.f.), 98,1% (K.R. Vinnuvélar), 101,1% (Brún h.f. og Miðfell h.f.)
og 102,0% (Hlaðbær h.f. og Gröfutækni h.f.) af kostnaðaráætlun Fjarhitunar h.f.,
sem var kr. 129.981.000,-. Samið var við lægstbjóðanda.
B. Ýmislegt
1. Tilboð í gatnagerð og lagnir I Seljahverfi í Breiðholti, 5. áfanga, voru opnuð
31. október 1974. Alls bárust tíu tilboð og voru þau 78,0% (Verkframi h.f.),
87,8% (Miðfell h.f.), 100,0% (Hlaðbær h.f.), 100,2% (Loftorka s.f.), 108,8%
(Völur h.f.), 112,8% (Aðalbraut h.f.), 116,0% (Húmus), 121,4% (Breiðholt h.f.),
124,8% (Ástvaldur og Halldór) og 133,1% (Kristófer Reykdal) af kostnaðaráætlun
verkkaupa, sem var 53.794.200,- kr. Samið var við lægstbjóðanda.
2. Tilboð í gatnagerð og lagnir I Seljahverfi í Breiðholti, 6. áfanga, voru opnuð
27. desember 1974. Alls bárust átta tllboð og voru þau 84,9% Ástvaldur og
Halldór), 88,0% (Miðfell h.f.), 89,7% (Völur h.f.), 91,5% (Breiðholt h.f.),
94,1% (Húmus), 94,1% (Loftorka s.f.), 101,3% (K.R. Vinnuvélar) og 101,8%
(Hlaðbær h.f.) af kostnaðaráætlun verkkaupa, sem var 48.548.900,- kr.
Samið var við lægstbjóðanda. — HS