Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ2004
Fyrst og fremst DV
Útgáfuféiag:
Frétt ehf.
Útgefandi:
Gunnar Smári Egilsson
Ritstjóran
lllugi Jökulsson
MikaelTorfason
Fréttastjórar.
ReynirTraustason
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn:
550 5020 - Fréttaskot 550 5090
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing-
an auglysingar@dv.is. - Dreifing:
dreifing@dv.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: (safoldarprentsmiðja
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagna-
bönkum án endurgjalds.
Hvað veist þú um
geimverur f
1. Hvaðan komu verurnar í
frægri sögu H.G. Wells um
innrás á jörðina?
2. Hvað skildu geimverurn-
ar í myndinni 2001 eftir á
jörðinni?
3. Hvað heitir bíómynda-
persónan sem sífellt slæst
við geimverur og Sigourney
Weaver leikur?
4. Hver leikstýrði þeirri
bíómynd?
5. Hvaða staður í Atlants-
hafi hefur oft verið sagður
tengdur geimverum?
Svör neðst á síðunni
Háskólar og leikskólar
Ríkisendurskoðun hefur sent frá sér
skýrslu þar sem fram kemur býsna
hörð gagnrýni á stefnu stjórnvalda
að undanförnu í málefnum skóla á há-
skólastigi. Gagnrýnin er að vísu kurteis-
lega orðuð en óhjákvæmilegt er annað en
telja það harða gagnrýni þegar Ríkisend-
urskoðun segir að „opinber stefna um
málefni háskóla sé ekki nægilega skýr“ og
jafnframt að yfirvöld hafí haft tilhneig-
ingu til að bregðast við álitamálum eftir á
í stað þess að skilgreina markmið og við-
brögð fyrirfram. Þá er gagnrýnt að eftirlit
hins opinbera með mörgum hinna ný-
stofnuðu háskóla hafi verið slælegt og lítil
áhersla verið Iögð á gæði við mótun skóla-
stefnunnar.
Það var ein helsta skrautfjöðurin í hatt
Björns Bjarnasonar sem menntamálaráð-
herra hve gífurlega fjölgað hefur skólum á
háskólastigi síðustu árin. Bjöm hlaut al-
mennt mjög góða dóma fýrir störf sín
meðan hann sat í embætti og skýrsla Rík-
isendurskoðunar hlýtur því að koma mjög
illa við hann. Sem og arftaka hans í emb-
ætti, Tómas Inga Olrich. Reynist gagnrýni
Rfkisendurskoðunar á rökum reist - sem
engin ástæða er til að efast um - þá er jafn
ljóst að núverandi menntamálaráðherra,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, verður
að taka ærlega til hendinni og veita skýr-
ari svör við fyrirætlunum sínum í þessum
efnum en hún hefur gert til þessa.
Henni er vitaskuld vorkunn þar sem
hún hefur aðeins gegnt embætti í hálft ár
og vafalítið hefur mestallur hennar tími á
undanförnum mánuðum farið í hinn
fáránlega farsa um fjölmiðlalögin, en það
dugar þó ekki til lengdar að vísa einungis
tfí fjölgunar og frelsis, þegar Ríkisendur-
skoðun gefur svo berlega í Ijós að kröfur
um gæði og eftirlit hafí setið á hakanum.
Reyndar bíða fjölmörg mikilvæg mál
hins nýja menntamálaráðherra. Það verð-
ur tíl dæmis að gera mun meiri skurk í
málefnum yngstu barnanna í skólakerf-
inu. Ég á til dæmis strák sem er nýlega
orðinn fímm ára og þráir að læra að lesa.
Hann gæti það Uka alveg ef við foreldrarn-
ir settumst niður með honum og kennd-
um honum galdurinn. En eins og staðan
er nií í skólakerfínu, þá er maður næstum
feiminn við að uppfylla óskir drengsins.
Því ef hann verður nú orðinn fluglæs á
síðasta árinu sínu í leikskóla blasir við að
hann mun lítið sem ekkert hafa að gera
fyrsta veturinn sinn í hinum eiginlega
skóla. Og hvað eigum við þá að gera fyrir
hann?
Mugijökulsson
Vantrú á gelmverum
Hvað er í
ruslinu?
Á vefsíðunni web-
waste.net er safnað saman
rusli úr ruslatunnum tölvu-
notenda. Ruslið, sem eru
hvort sem er myndir, text-
Vefsíðan
Webwaste.net
ar, tákn eða hljóð, er síðan
til sýnis fyrir vefnotendur
um allan heim. Þeir sem
fylgjast með geta látið sér
nægja að skoða ruslið ferð-
ast um skjáinn og mynda
form og myndir. Menn geta
líka sjálfir orðið þátttak-
endur með því að hlaða
niður litlu forriti sem send-
ir hluti úr ruslakörfum tölv-
unnar inn á vefinn. Ekki er
hægt að rekja hvað kemur
hvaðan. Vefurinn er smíði
íslenska listamannsins
Ragnars Helga Ólafssonar
og þar má sjá meðal annars
myndir af Eiffel-turninum
og Jónsa í svörtum fötum.
Heimdraginn
Á sumrín hleypa margir
heimdraganum og halda í
sumarfrí. Orðtakiö má nota
á þennan hátt þótt færa
megi rök aö því að þaö
merki í reynd lengri og af-
drífarlkarí heimanfören
stutta sumarleyfísferð. Ungt
fólk hleypir til dæmis heim-
draganum þegar
þaö flytur aö
heiman og stofn-
arsitteigið heimili eða
heldur til langdvala erlend-
is. Orðtakið erævafornt og
„heimdragi" merkir einfald-
lega„heimalningur" - ef til
vill lamb sem dregið hefur
veríð heim á bæ. Og„að
hleypa“ merkir hér einfald-
lega að láta hlaupa.
Málið
Svörvlðspumlngum:
1. Frá Mars - 2. Stóran slípaðan stein - 3.
Ripley - 4. Ridley Scott - 5. Bermúda-þrí-
hyrningurinn
■o
£
GEIMVERUR ERU SKYNDILEGA í sviðs-
ljósinu á íslandi eftir að hér hófst ráð-
stefna um líf á öðrum hnöttum sem
vera má að snúist fyrst og ffemst um
rannsóknir stjarnfræðinga á fjarlæg-
um reikistjömum eða möguleikum
örvera á að lifa af í „fjandsamiegu"
umhverfi en vekur þó fýrst og fremst
áhuga almennings vegna spuming-
arinnar um geimverur.
Fréttablaðið tók forskot á sæluna
um síðustu helgi með viðtali við
Magnús Skarphéðinsson, helsta
geimvemsérfræðing þjóðarinnar, og
birti lfka frásögn um atburðina í
Roswell í Bandarikjunum 1947 en
það er vinsæl kenning geimvem-
ffæðinga að þar hafi hrapað geimfar
ffá öðmm hnetti en Bandarfkjastjórn
hafi ákveðið að þagga málið niður af
ótta við skelfingu almennings.
V1 i '
Geimverur brotlentu í Roswel!
Myndin er uppstilling, byggð á
frægu myndbandi af krufningu
einnar geimverunnar. Myndbandið
er reyndar augljós fölsun.
I
—
'?Í: í. ^í:
'MSm: aft tM iSMsS
Á VEFNUM VANTRÚ.NET er Frétta-
blaðið síðan tekið í gegn fyrir umfjöil-
un sína og einkum greinina um
Roswell. Við emm reyndar mjög vel
að okkur um það mál og tökum und-
ir að ifásögn Fréttablaðsins var full
gagnrýnislaus. í Vantrúar-greininni,
sem aðeins er merkt „Óli gneisti“, er
hins vegar haldið áfram á þessa leið:
„Magnús Skarp-
héðinsson virðist
trúa öllu nema því
sem vísindamenn
segja enda eru þeir
forpokaðir. Magnús
trúir á geimverur,
j álfa, huldufóik,
drauga og hugsana-
flutning, öllþessi fyrirbrigði hafa ver-
ið rannsökuð ítarlega án þess að
nokkuð bendi til þess að þau séu
raunverulega til. íraun verðurfólkað
spyrja sig hvort það trúi Magnúsi
Skarphéðinssyni eða vísindasamfé-
laginu, svarið ætti að vera augljóst.
Það er sorgleg staðreynd að
stundum virðast blaðamenn halda
að fréttaflutningur af yHmáttúruleg-
um fyrirbrigðum falli ekki undir
sömu lögmál og umfjallanir um önn-
urmál. Þeir virðastlfta á svona grein-
arsem meinlausa skemmtun án þess
að sjá ástæðu til þess að merkja
greinamar þannig að þær þekkist frá
raunverulegum fréttum.
Fyrst og fremst
ÞETTA VIÐH0RF ER HÆTTULEGT," bætir
„Óli gneisti" síðan ábúðarmikill við.
„Fyrst ogfremst er það reyndar skað-
legt fyrir Ijölmiðlana sjálfa ogtrúverð-
ugleika þeirra en einnig getur þetta
skaðað trúgjamt fólk (og böm) sem
ekki hafa náð tökum á þeirri tækni
sem þarf til að gera greinarmun á
raunveruleika ogkjaftæði.
Hver veit nema að Magnús Skarp-
héðinsson sé sjálfur fómarlamb óá-
byrgra blaðamarma sem töldu hlut-
verk sitt vera að skemmta almenningi
en ekki uppfræða. Fjölmiðlafólk verð-
urað taka ábyrgð á umíjöllunum sín-
um ogátta sigá að það má ekkifram-
reiða hvaða mgl sem er í búningi
frétta. Blaðamenn verða að bera virð-
ingu fyrir sannleikanum, almenningi
ogsíðast en ekki síst, sjálfum sér. “
MEGUM VIÐTAKA UPP HANSKANN fyr-
ir vini vora á Fréttablaðinu? Og okkur
sjálf reyndar, því við teljum okkur
hafa fullt leyfi til að fjalla á hvaða hátt
sem við viljum um geimverur ogjafn-
vel í náinni ffamtíð. í fyrsta lagi var
umfjöllun Fréttablaðsins ekki „frétt",
heldur helgarblaðsgrein sem lýtur að
sumu leyti öðrum lögmálum en
raunverulegar fféttir. Þetta vita allir
lesendur. í öðm lagi þykir okkur sem
„Óli“ þessi gerist mjög sekur um
einmitt þann „forpokaskap" sem
hann sakar þann góða mann Magnús
Skarphéðinsson um. Fýlutónninn í
honum yfir því að einhverjir skuli
voga sér á trúa á eitthvað sem hann
trúir ekki á sjálfur er furðulegur. Sag-
an ætti þó að kenna honum og skoð-
anabræðrum hans að fjölmörg dæmi
em um að menn hafi orðið að láta sér
nægja að „trúa á eitthvað" löngu áður
en mögulegt reyndist að sannreyna
það vísindalega.
MEÐ ÞESSU ERUM VIÐ EKKI að lýsa
yfir trú á geimverur, hvað þá álfa og
huldufólk. En að ekki megi fjaila um
þau mál öðmvísi en af einhvers kon-
ar vantrúar-fýlu þykir okkur full
langt gengið. Og ólíkt þessum „Óla
gneista" berum við líka fulla virð-
ingu fyrir því hlutverki blaðamanna
að skemmta fólki, ekki síður en upp-
fræða. Og við þekkjum ekki mörg
dæmi um að umfjöllun og greinar
um „yfirnáttúruleg" efni hafi „skað-
að“ fólk. Að trúa því þykir okkur bera
vitni um nokkra vantrú á mann-
eskjunni...
Fleiraertil...
... d hlmnl og JörO en
heimspekina þlna
dreymir um, Hóras
minn.
Hamlet I leikriti
Williams Shakespeare
„Við þekkjum ekki mörg dæmi um að umfjöll-
un og greinar um „yfirnáttúruleg" efni hafi
„skaðað" fólk. Að trúa þvíþykir okkur bera
vitni um nokkra vantrú á manneskjunni..."
Yfirnáttúrulegir framsóknarmenn
„f júlí 1998 sló DV upp frétt á forsíðu sem kom mörgum í opna skjöldu.
Þar kom fram að samkvæmt skoðanakönnun á vegum DV svaraði meiri-
hluti slembiúrtaks af íslensku þjóðinni játandi, þegar spurt var um trú á
álfa. Samkvæmt könnuninni skiptust karlar nokkurn veginn jafnt í ját-
endur og neitendur, en mun fleiri konur sögðust aftur á móti trúa á álfa
en ekki, eða 6 af hverjum 10. Svörin voru líka borin saman við pólítískar
skoðanir. í Ijós kom að stuðningsmenn flestra flokka skiptust nokkurn
veginn til helminga í játendur og neitendur. Á þessu var þó ein áberandi
undantekning því að mikill meirihluti framsóknarmanna sagðist trúa á
álfa, eða 64,2%. En það er nú útúrdúr."
AfvísindavefHáskóla íslands,
Valdimar Tr. Hafstein þjóðfræðingur