Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ2004 Fréttir DV Porsche-inn er í London Dómsmálaráðuneytið hefur staðfest að pöntun á Porsche fyrir tombólu- happdrætti Astþórs liggi fyrir hjá ráðuneytinu. Pöntunin er skráð á Porsche-umboðið í London og sá sem skráður er fyrir bifreiðinni er Lýð- ræðishreyfingin í Reykja- vík. Pöntunin er dagsett 30. júní en Ástþór hefur fengið mánaðar frest til að draga í happdrættinu. Neil Crickshank, hjá Porsche- umboðinu, vildi ekki tjá sig um hvaða áhrif seinkunin hefði á pöntunina og bar fyrir sig trúnaðarsambandi milli viðskiptavinarins og umboðsins. Hákon Eydal, sem situr á bak við lás og slá grunaður um morð á fyrrum sambýlis- konu sinni, fer með aðalhlutverkið í nýrri íslenskri kvikmynd sem frumsýnd verð- ur í næsta mánuði. í myndinni leikur Hákon forsætisráðherra íslands en kvik- myndin fjallar um hernámsárin og ástandið í ljósi samtímans; kvikmynd um vald, ofbeldi og kvenfyrirlitningu. Hákon Eydal í reyk Sýndi magnaöa takta sem forsætisráð■ herra íslands. Sýndi ótvíræða hæfileika Eittaf mörgum andlitum Hákonar Eydal í kvikmyndinni um ástandsárin. Af veggspjaldi myndarinn- ar Þarna stendur Hákon t und- arlegum hópi klerka, valds- manna og berbrjósta kvenna með dulur fyrir andliti. Með leikstjóra og höfundi leikmyndar Hákon Eydal með Böðvari Bjarka leikstjóra ogÁrna PáliJóhannssynileik- myndasmiði. Spiderman-æði Spiderman-myndin er að slá öll aðsóknarmet á ís- landi og er á góðri leið með að verða vinsælasta mynd- in í sumar. Segja má að Spiderman-æði hafi gripið um sig. Sjá má krakka með Spiderman-grímur og Spiderman-tölvuleikurinn selst vel. Margrét Tinna Traustadóttir vinnur í miðasölunni í Regnbogan- um. Hún segir aðsóknina hafa verið gríðarlega um helgina; allir aldurshópar hafi gaman af myndinni. „Ég hef aldrei séð annað eins,“ segir hún. „Þetta fer frábærlega af stað.“ Rannsókn á DNA dregst „Það er ekkert nýtt að frétta af rannsókninni," segir Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykja- vík sem stjórnar nú rann- sókn á hvarfi Sri Rahma- wati. Niðurstöður úr DNA- rannsókn á blóðinu sem fannst í fbúð og bíl Hákon- ar Eyadal, grunaðs í mál- inu, eru ekki komnar. Hörður segir að það muni taka einhverja daga að fá úr því skorið úr hverjum blóð- ið er. Ekki hefur verið lýst eftir Sri Rahmawati. Grunaöur morðingf leikur lorsætisráAherra Islands „Það er draumur allra kvikmyndagerðarmanna að gera myndir sem lifa inn í framtíðina. En þetta er með ólíkindum," segir Böðvar Bjarki Pétursson kvikmyndagerðarmaður sem er að leggja lokahönd á kvikmynd sína „Situation 1" sem frumsýnd verður í lok ágúst. í myndinni fer Hákon Eydal með hlutverk forsætisráðherra ís- lands á stríðsárunum en Hákon situr sem kunnugt er í gæsluvarð- haldi grunaður um morð á fyrrum sambýliskonu sinni. Kvikmynd Böðvars Bjarka fjallar um ástandið á hernámsárunum hér á landi eins og þau mundu birtast sjónrænt á árinu 2004. í raun tilraun um ástand í nýju og þekktara ljósi. Böðvar Bjarki dreg- ur ekki dul á að viðfangsefni myndarinnar sé valdhroki, ofbeldi og kvenfyrirlitning; allt atriði sem einkenndu með einum eða öðrum hætti samskipti kynjanna á her- námsárunum. Þeim mun merki- legra er að Hákon Eydal hafi valist í aðalhlutverkið nú þegar atburða- rásin í Stórholtsmálinu er að skýr- ast. „Ég fann Hákon ekki sjálfur. Til þess fékk ég menn sem ég treysti til að finna stóra, stæðilega og valds- mannslega menn sem staðið gætu undir þeim hugmyndum sem ég var með,“ segir Böðvar Bjarki sem leist strax vel á Hákon Eydal þegar þeir áttu fund saman. Og Hákon brást ekki vonum hans þegar tökur hófust. Líkastur risa gnæfði hann yfir aðra; fulltrúi valds sem enginn ræður við. Forsætisráðherra ís- lands á hernámsárunum. Böðvar Bjarki er nú að leggja lokhönd á mynd sína og voru allar tökur með Hákoni Eydal komnar í hús áður en hann var handtekinn á dögunum. Eftir situr kvikmynda- leikstjórinn með frábærar myndir af glæstum manni sem nú má muna fifil sinn fegurri: „Ég get ekki annað en haldið áfram. Mig óraði ekki fyrir þessari framvindu rnála," segir Böðvar Bjarki sem leitar nú að hentugu kvikmyndahúsi fyrir frumsýningu myndarinnar í næsta mánuði. Það er fyrirtæki Böðvars Bjarka, 20 geitur, sem framleiðir kvikmyndina. Sem fyrr greindi er nafn myndarinnar „Situation 1“ og er hugsuð sem fyrsta mynd í röð fleiri. Undirtitill myndarinnar er Mona Liza and the temple of the „Ég fann Hákon ekki sjálfur. Tilþess fékkég menn sem ég treysti til að finna stóra, stæði- lega og valdsmanns- lega menn sem staðið gætu undirþeim hug- myndum sem ég var með." whores eða Móna Lísa og musteri hóranna. Áður hefur fyrirtækið 20 geitur meðal annars framleitt kvik- myndina í skóm drekans sem fjall- aði um fegurðarsamkeppnina Ungfrú ísland.is. Ómögulegur tengdasonur Menn geta verið misheppnir með tengdasyni. Og tengdadætur ef því er að skipta. Svarthöfði getur ekki annað en vorkennt Jóni Baldvini og Bryndísi með hvernig til tókst með val á tengdasyni. Marco, hinn ítalski, kvartar sáran yfir tengdaforeldrum sínum á síðum DV og það löngu eft- ir að hann er farinn úr fjölskyldunni. Marco hefur látið mörg orð falla og sum óskiljanleg. Hvað á hann til dæmis við þegar hann segist aldrei hafa hitt fyrrum tengdaföður sinn nema fullan. Svarthöfði á bágt með að trúa því að Jón Baldvin hafi alltaf verið í glasi á fjölskylduhátíðum, hvort sem var á Vesturgötunni, í utanríkisráðuneytinu eða í Wash- ington. Svarthöfði hefur þekkt Jón Baldvin lengi og veit að hann er ekki fullur nema endrum og sinnum. 111- skiljanlegri er þó yfirlýsing Marcos Hvernig hefur þú það? Éghefþað alveg hreint glimrandi, er eiginlega í hamingjuleiðslu, enda bara nokkrir dagar þar til ég fæ aö hitta krflið í bumbunni minni.“ segir Lóa Aldísardóttir ritstjóri sem erí fæðingar- orlofí.„Eina sem angrar mig þessa dagana er aö fá ekki að nýta méryndislega fæðingarað- stöðuna í Hreiðrinu á Landsþítalanum afþví að þar anna menn ekki eftirspurn. Þótt ég búi í um 3 mlnútna göngufjarlægð frá Landspítalanum ætla ég því að keyra 140-50 mínútur I ann- að bæjarfélag til að komast í næstum jafnfína fæðingaraðstöðu á Sjúkrahúsinu á Akranesi." um að Jón Baldvin eigi að vita eitt- hvað sem hann veit. Þetta er hálf- kveðin vísa vona eins og hjónaband hans og dóttur Jóns Baldvins. Svarthöfði er ekki fæddur í gær og veit eins og er að hjónaskilnaðir eru engin ný bóla. Hins vegar er það nýtt af nálinni að hjónaskilnaðir skuli taka svona langan tíma eins og virðist vera f tilviki Marcos hins ítalska. Dettur Svarthöfða þá í hug raunir skrifstofumannsins sem skildi við eina af ofurhetjum íslensks menningarh'fs fyrir mörgum árum. Hann sagði að nógu erfitt hefði ver- ið að vera kvæntur konunni en erfið- ara þó að vera skilinn við hana. Eftir skilnaðinn hafði konan nefnilega skrifað um hann heila bók, ort um hann ljóð í Lesbókina og frumsýnt leikrit þar sem harm var aðalpersón- an - sífullur eins og Marco segir að Jón Baldvin hafi verið. Eiginlega skilur Svarthöfði ekki hvaða erindi meintur drykkjuskapur Jóns Baldvins á við almenning. Eini mælikvarðinn á reglusemi eigin- manna er ánægja eiginkvennanna. Og Svarthöfði veit ekki betur en Bryndís hafi alltaf verið ánægð með hann Jón sinn og sé enn. Sama hvað Marco segir. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.