Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ2004
Fréttir DV
Löggan elti
gemlinga
Lögreglan í Vestmanna-
eyjum elti uppi þrjá drengi
um helgina. Þeir höfðu velt
kofa á hliðina á lóð leikskól-
ans Sóla og brotið einn stól.
Þeir náðust og viðurkenndu
verknaðinn. Af öðrum verk-
efnum Eyjalöggunnar um
helgina má nefna að einn
ökumaður var kærður fyrir
ranga ljósanotkun og annar
fór yfir leyfilegan hámarks-
hraða um götur bæjarins. Þá
þurfti í tvígang að aðstoða
fólk við að komast inn í bif-
reiðar sínar eftir að það
hafði læst lyklana inni í bíl.
Auk þess var einum hjálpað
til að komast inn heima hjá
sér, því hann gleymdi lykfin-
uminni.
Staðfesti vitni
en ekki sýn
Vegna mistaka var
sagt í yfirfyrirsögn á fiétt
um Stórholtsmálið að
Sigurbjöm Víðir Eggerts-
son aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn hefði staðfest að
vitni lögreglunnar hefði
lýst því að Hákon Eydal
hefði borið eitthvað sem
líktist mannslíkama í
svörtum plastpoka. Sigur-
bjöm staðfesti einungis
að um vitni væri að ræða,
en ekki hvað vitnið hefði
séð. Eins og DV greindi
frá í gær taldi vitnið sig
sjá glitta í líkama þegar
Hákon var að fara með
byrði sína í bifreiðina
sama dag og sambýlis-
kona hans hvarf. DV hef-
ur rætt við vitnið en birtir
ekki nafn þess af öryggis-
ástæðum.
Rústam óvænt
heimsmeistari
Úsbekinn Rústam
Kasimdzhanov varð í
gær óvænt FIDE-
heimsmeistari í skák.
Hann sigraði Bret-
ann Michael Adams í
bráðabana. Sigur Ús-
bekans kom mjög á
óvart en hann var
aðeins 28. stígahæsti
maður mótsins. Miklar deil-
ur í skákheiminum ollu því
að stígahæstí skákmaður
heims, Garry Kasparov, tók
ekki þátt í mótinu.
Skilti skapa
slysahættu
Samgöngunefnd
Reykjavíkur hefur sam-
þykkt tillögu um að gerð
verði úttekt á staðsetn-
ingu umferðarskilta og
-merkja. í tíllögunni seg-
ir að mörg dæmi séu um
að umferðarskilti og veg-
vísar skyggi á útsýni öku-
manna og skapi þar með
slysahættu. Fyrirhugað
er samstarf við Vega-
gerðina um úttekt og
nauðsynlegar úrbætur.
Tveir menn voru dæmdir fyrir hrottalega líkamsárás og hótanir í garð lögreglu-
þjóns á Akureyri. Annar þeirra, Kristján Hjálmar Jensson, fór í kjölfar árásarinnar
í meðferð og hefur nú verið edrú í fimm mánuði. Daníel Guðjónsson, yfirlögreglu-
þjónn á Akureyri, segir það algengt í fikniefnaheiminum að lögregluþjónum sé hót-
að. Erfitt sé að leynast í smábænum Akureyri.
Hótaði að myrða fjölskyldu
víkingasveitarmanns
„Hann lamdi mig í eyrað með húslykli. Það fdr að fossblæða. Þá
fór ég í hann,“ segir Kristján Hjálmar Jensson, 24 ára Akureyring-
ur. Héraðsdómur Norðurlands Eystra dæmdi Kristján í þriggja
mánaða fangelsi fyrir hrottalega líkamsárás í miðbæ Akureyrar.
Þá var Kristján dæmdur fyrir að hafa hótað lögreglumanni og
fjölskyldu hans lífláti. Félagi Kristjáns, Daníel Christensen, fékk
vægari dóm.
Maðurinn sem Kristján og Daníel
réðust á er 25 ára gamaíl. í dómnum
kemur fram að þeir hafi fellt hann í
götuna og slegið mörg hnefahögg í
andlit hans og líkama. Maðurinn
nefbrotnaði, tvær framtennur í efri
gómi brotnuðu. Hann marðist og
bólgnaði í kringum augun. Hlaut sár
á enni. Skurð á vinstri kinn og marð-
ist allur og hruflaðist.
Kristján man vel eftir umræddu
kvöldi þrátt fyrir að um ár sé liðið frá
því að atburðirnir áttu sér stað.
Fyrsta höggið
„Þessi maður var í einhverju ves-
eni inni á Sjailanum. Reif í Danna,
félaga minn, sem ýtti aðeins við
honum. Dyraverðir komu og hentu
manninum út. Seinna um kvöldið
ætlaði Danni að fá bolinn sinn sem
var rifinn endurgreiddan. Þá byrjaði
vesenið aftur,“ segir Kristján.
í dómnum kemur fram að Krist-
ján og Daníel hafi veitt fórnarlamb-
inu eftírför og ráðist á hann á
bflaplaninu vestan við Borgarbíó.
Kristján segir rétt að þar hafi áflogin
byrjað en er ekki sammála því sem
kemur fram í dómnum að þeir hafi
átt upptökin.
„Maðurinn liggur ofan á Danna
og ég ætla að skerast í leikinn," segir
Kristján. „Þá neglir hann einhverju
inn í eyrað á mér, lykli eða kveikjara
og það tekur að fossblæða. Hann átti
fyrsta höggicV'
Mikið er gert úr því í dómnum að
Kristján hafi hótað lögreglumanni
og fjölskyldu hans lífláti. Er það orð-
að sem brot við valdstjórninni.
„Það er ósköp lítið
sem við getum gert.
Þú getur leynst í
milljónaborgum og
jafnvel í Reykjavík
en hérna... það er
ómögulegt
Kristján hlær þegar hann heyrir af
þessu. „Brot gegn valdstjórninni,"
segir hann eins og orðið vefjist fyrir
honum. „Ég sagði honum bara það
sem mér brann í brjósti."
Hótaði löggu
Það sem brann á Kristjáni var
áralangur pirringur í garð lögregl-
unnar. í dómnum kemur fram að
hann hafi áður komist í kast við lög-
in; aðallega fýrir fíkniefnabrot. Þetta
segir Kristján að sé rétt. Hann hafi
verið í rugli. Framkoma lögreglunn-
ar hafi samt einnig einkennst af
ákveðnu rugli.
„Ég man eftir einu skipti þegar ég
bjó úti á Sandi," segir Kristján. „Ein-
ir tíu lögreglumenn komu til mín
seint um kvöld. Barnsmóðir mín og
krakki voru þarna og ég man að
barnið grét þegar lögreglumennirnir
brutu rúður og gengu með hávaða
um íbúðina. Á endanum fundu þeir
ekkert dóp enda myndi ég aldrei
geyma slíkt fyrir framan börnin
mín."
Kristján segir að á því augnabliki
sem hann var færður upp á lögreglu-
stöð hafi allur þessi pirringur brotíst
út. Hann viðurkennir að hafa kallað
lögguna, sem heitir Jón Valdimars-
son, öllum illum nöfnum en hann
hafi aldrei hótað að drepa fjölskyldu
hans.
„Ég ber mikla virðingu fyrir Jóni,"
segir Kristján. „Hann er skyldur
kærustunni minni og er bæði varð-
stjóri og vflcingasveitarmaður.
Toppgaur."
Átökin við fíkniefnaheiminn
Daníel Guðjónsson er yfirlög-
regluþjónn í Lögreglunni á Akureyri.
Hann segir mjög algengt að lögreglu-
mönnum sé hótað. Sérstaklega þeim
sem starfi £ fíkniefnaheiminum.
„Það er ósköp lftíð sem við getum
gert," segirDaníel. „Sérstaklegaílití-
um bæ eins og Akureyri. Þú getur
leynst í milljónaborgum og jafnvel í
Reykjavlk en hérna... það er ómögu-
iegt."
Daníel segist fagna því að tekið sé
á hótunarmálinu í dómnum. „Það er
ástæða fyrir því að löggur endast
ekki lengi í fíkniefnalögreglunni,"
segir hann. „Þetta er mjög góður
dómur fyrir okkur."
Aftur á sjóinn
Um ár er liðið síðan hin hrotta-
lega árás Kristjáns og félaga hans átti
sér stað. Kristján fór í meðferð á
Staðarfelli skömmu síðar og hefur
nú verið edrú í eina fimm mánuði.
Hann á tvö börn með tveimur kon-
um. Daníel er einnig fjölskyldumað-
ur. Báðir sjá þeir eftir því sem gerð-
ist.
„Maður er að reyna að taka sig
saman í andlitinu," segir Kristján en
hann og Daníel þurfa að greiða fórn-
arlambinu 331 þúsund krónur í
skaðabætur. ,Ætli maður þurfi ekki
að treysta á yfirdráttínn en annars er
ég að bíða eftír að komast aftur á sjó-
inn. Það kemur dagur eftir þennan
dag."
simon@dv.is
Gjöld ríkisins fóru 90 milljarða fram úr áætlun
Óreiða í fjárreiðum ríkisins
í skýrslu Rfldsendurskoðunar um
ffamkvæmd fjárlaga ársins 2003 er
bent á mikilvægi þess að ráðuneyti
og stofhanir ríkisins virði fjárlög. Víða
er pottur brotinn í þessum efnum og
margar stofnanir hafa jafnvel farið
langt ffarn úr fjárlögum ár eftir ár.
Lesa má skýrsluna sem harða
gagnrýni á stjórn ríkisfjármála á síð-
ustu árum. Að mati Rfldsendurskoð-
unar er umframeyðslan óviðunandi
enda gerir hún að engu markmið
stjórnvalda um hóflega aukningu
rfldsútgjalda og hallalausan rekstur.
Ríkisendurskoðun bendir á nauðsyn
þess að ráðuneyti og stofnanir virði
fjárlög og sjái til þess að rekstur
Hvað liggur á?
stofnana og fyrirtækja sé innan fjár-
heimilda.
Samanburður Rfldsendurskoð-
unar á forsendum fjárlaga og rekstri
ríkisins á árunum 1999-2002 sýnir
að tekjur urðu 38,2 milljarðar kr.
hærri en fjárlög gerðu ráð fyrir.
Gjöld fóru hins vegar 90 milljarða kr.
fram úr áætlun. Neikvæð staða eigin
Qár rfldsins versnaði um 50 milljarða
kr. frá árslokum 1999 til ársloka
2002, þar af eru rúmir 46 milljarðar
kr. vegna verð- og gengisbreytinga á
tímabilinu.
í forsendum fjárlagafrumvarpa
var gert ráð fyrir að aukning sam-
neyslu yrði að meðaltali tæp 3% á ári
Þórey Edda Elísdóttir stangarstökkvari: „Ég ernú bara uppi á hóteli í Salamanca á Spáni að
drífa mig íkeppnisgallann fyrir stangarstökkskeppni sem er að fara að hefjast hérá aiþjóðiegu
boösmóti. Ég fer beint héðan til Madríd og keppi þar á laugardaginn. Síðan eru mót hér og þar
fram að ólympluleikunum; í Þýskalandi, Póllandi og á Islandi. Það er nóg að gera."
Geir Haarde fjármálaráðherra Lesa má
skýrslu Ríkisendurskoöunar sem harða gagn-
rýni á stjórn rlkisfjármála á síðustu árum.
en hún varð í raun yfir 10%. Þá var
áætlað að verg landsframleiðsla yk-
ist að meðaltali um 2,5% á ári en
aukningin varð í raun tæplega fjór-
falt meiri. í fjárlögum ársins 2003 var
gert ráð fyrir að ríkissjóður yrði rek-
inn með 3,8 milljarða kr. greiðsluaf-
gangi. í reynd varð hallinn 9,1 millj-
arðar kr.
Gaypride fer
Hringinn
Andrés Guðjónsson hefur ósk-
að eftir því við Ákureyrarbæ að fá
fjárstyrk til handa Leikfélaginu
Hégóma. Peningana segir Andrés
eiga að notast vegna Gaypride-
ferðar í kringum landið og gerðar
heimildarmyndar um Hégóma-
hópinn. Menningarmálanefnd
Akureyrar frestaði í síðustu viku
afgreiðslu erindis Andrésar þar til
úthlutað verður úr Menningar-
sjóði bæjarins í haust.