Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Side 15
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ2004 15
Kisubarn.óskar
enir neimili
Þessi þriggja mánaða svarta
og hvíta kisustelpa býr um
þessar mundir í Kattholti. Hún
er afar róleg og góð og myndi
veita nýjum eiganda mikla
gleði. í Kattholti eru fleiri kisur
af báðum kynjum sem bíða
eins og hún eftir að dýravinir
komi og sæki þær í kattavin-
ina við Stangarholt. Þeir sem
áhuga hafa á kisum og vilja
búa þeim heimili, ættu að
skoða heimasíðuna katt-
holt.is
Bergljót Davíðsdóttir
skrifar um dýrin
sín og annarra á
miðvikudögum IDV.
Hundadagar hafnir
hófust í gær og lýkur 23. ágúst. Á þ
Hundadagar
hófust í gær og lýkur 23. ágúst. Á þessu tímabili
skín Síríus eða hundastjarnan skært. Á heimasíðu
Þjóðminjasafnsins kemur fram að
hérlendis hafi ýmsar nafnskýringar
verið reyndar, til dæmis að hundar
bíti gras á hundadögum eða verði
slengjarnir. Einnig hafa hundadagar
verið tengdir hátterni smáhvala eða
fiskhunda um þetta leyti. Síð-
ustu aldir hafa hundadagarn-
ir tengst minningu Jörundar
hundadagakonungs og
valdatíma hans hér á
landi sumarið 1809.
Mannýgar kengúrur gera
USla Kengúrur valda miklum usla í uthverfum
Canberra, höfuðborgar Ástralíu, þessa dagana.
Kengúrur hafa orðið uppvísar að því að ráðast á
hunda og menn. Miklir þurrkar og hungur rekur
kengúrurnar áfram en þessi dýr eru í eðli sínu
grasbítar. Sérfræðingar
segja afar fátítt að
kengúrur leggist á fólk.
Ekki fer sögum af því að
fólk hafi slasast við
þessar árásir en nokkrir
hundar hafa drepist eftir
átök við kengúrurnar.
Kengúrur vega allt að
áttatíu kílóum og eru
jafnháar meðalmanni.
Feit kisa
meðfiösu
Gísli, Magga og Edda Kata
spyrja:
Amma okkar á kisu sem er
7 ára. Þegar við pössum kisu,
er svakalega erfitt að gefa
henni að éta, því amma gefur
henni bara túnfisk í olíu úr
dós. Kisa er ekki bara mat-
vönd, heldur líka slöpp og feit
og feldurinn ekkert sérstak-
lega fallegur með fullt af
flösu. Amma segir að
þetta sé allt í lagi, en hvað
finnst þér?
Sæl, Gfsli,
Magga og Edda
Kata.
Það virðist
amma ykkar gefi
kisu nokkuð einhæfan
mat að éta og því ekki
nema von að kisa sé matvönd
og ekki í sérlega góðu formi.
Kettir eru reyndar í eðli sínu
kjötætur, en verða samt að fá
rétt næringarefni, vítamín og
steinefni til að halda heilsu.
Túnfiskur, ætlaður mönnum,
inniheldur ekki þau næringar-
efni og vítamín sem eru nauð-
synleg fyrir kisur, en skortur á
þeim getur leitt til sjúkdóma.
Að auki er túnfiskur feitur fisk-
ur og að viðbættri olíu, verður
hann ekki hollari. Ljótur feldur,
fullur af flösu, er einmitt merki
um ranga fóðrun og skort á
nauðsynlegum og réttum nær-
ingarefnum. Það getur verið
erfitt að breyta þessum
óheppilegu siðum ömmu og
kisu. Væri ekki góð hugmynd
að fá ömmu til að fara með
kisu til dýralæknis, t.d. undir
því yfirskyni að nú sé kominn
tími til að bólusetja hana. Dýra-
læknirinn sér strax að hér er úr-
bóta þörf og hvetur ömmu til
að fóðra kisu rétt, svo hún
verði nú ekki lasin. Vona að
þetta gangi nú vel hjá ykkur.
Kveðjur, Helga Flnnsdóttir
dýraiæknir.
Síðustu helgi söfnuðust um 82.000 krónur til styrktar Cobru Líf sem lenti í alvar-
legu slysi í lok júní og í gær var búið að safna 90.000 krónum
Eigandann dreymdi fyrir
slysi hundsins Cobru Lífar
Nokkrum dögum áður en keyrt var yfir Cobru Líf dreymdi Sol-
veigu Pálmadöttur, eiganda hennar fyrir slysinu. Það var skrítin
tilfinning þegar faðir hennar hringdi og sagði henni frá því sem
komið hafði fyrir.
„Mig dreymdi mjög skýrt fyrir
slysinu nokkrum dögum áður“ seg-
ir Solveig. „Mig dreymdi að Cobra
Líf væri í sveitinni hjá foreldrum
mínum og það var keyrt yfir hana. í
draumnum tók ég hana upp og þá
var hún lömuð að aftan eins og hún
var fyrstu dagana eftir slysið. í
draumnum var hún líka brotin á
báðum framlöppunum. Mér leið
mjög illa þegar ég vaknaði og
hringdi í foreldar mína og sagði
þeim frá draumnum. Ég hafði
ekki góða tilfinningu og bað
þau öll um að passa sig
og Cobru Líf. Eg sagði
líka vinkonu minni sem
er mjög náin Cobru Líf
frá draumnum. Cobra
Líf Ienti undir bílnum
mánudaginn 28. júní og
þann dag var ég að vinna
tvö. Þá fór ég í Sjóvá-Almennar
til að athuga hvað það kostar
að tryggja hund. Tveimur
tímum síðar var keyrt yfir
hana. Það var skrítin dlfinn-
ing þegar pabbi hringdi í
mig og lét mig vita. Ég
fékk fyrirboða um slysið
en maður tekur því
miður ekki alltaf mark á
draumum. Mann grun-
ar ekki að draumurinn
komi svona sterkt fram eins
og raunin varð,“ segir Sólveig.
Komin heim til „mömmu"
„Ég er svo glöð núna því litla
brúneygða daman mín er að koma
heim í kvöld," sagði Solveig þegar
DV hafði samband við hana í gær.
Solveig vinnur á Selfossi í sumar en
á veturna stundar hún nám í við-
skiptalögfræði í Viðskiptaháskólan-
um á Bifröst. „Cobra Líf er svo dug-
leg og góð, en hún þarf á „mömmu
sinni“ að halda," segir Solveig
hlæjandi. „Hún á erfitt með
sitja og trúlegt að í
ffamd'ðinni verði hún að
einhverju leyti bæ-
kluð. Eins og staðan
eru
að
snúnir á henni afturfæturnir. Ég er
með hana á Bifröst á veturna, hún er
dekraður fjölskyldu- og heimilis-
hundur, hún er ein af fjölskyldunni
og alltaf með okkur. Cobra Líf var
búin að vera í sveitinni hjá foreldr-
um mínum og eldri sonum mínum
nokkra daga áður en hún Ienti í slys-
inu en til stóð að hún yrði þar í sum-
ar vegna vinnu minnar," segir Sol-
veig.
Þóttist vera sveitahundur
„Þegar hún kom í sveitina fór hún
að haga sér eins og sveitahundur og
tók það alvarlega," segir Solveig.
„Hún gerði eins og hundarnir henn-
ar mömmu. Ég reyndi að venja hana
við sveitalífið, tók hana til dæmis
með í útreiðartúra en hún var alltaf
að þvælast í löppunum á hrossinu.
Cobra Líf hefur alltaf verið frekar
grönn en eftír dagana í sveitinni og
alla útiveruna þá fór hún að bragg-
ast mjög mikið. En núna er hún að
horast aftur en hún er samt dugleg
að éta. Þessi eini og hálfi sólar-
pegar ég vissi ekki hvort
myndi lifa þetta af var
erfiður," segir Solveig.
Fjöldi fólks
mætti
„Söfnunin
síðustu helgi
gekk alveg
frábærlega,
við þurftum
meira að setja
fólkoghundaá
biðlista. Nú þurfum við bara að
finna tíma til að sinna þessum við-
skipta-vinum. Báða dagana kom
mikill straumur af fólki. Sumir komu
bara til að heilsa upp á Cobru Líf og
af- hentu peninga í söfnunina,"
segir Solveig. „Dýrheimar gáfu
sjampó og hárnæringu, Kaffitár
styrktu okkur með kaffi, Helena bak-
aði vöfflur, Silla og Karen sáu um
hundasnyrtinguna og ég um hár-
snyrtingu á mannfólkinu," segir Sol-
veig. Söfnuninni er ekki lokið því
snyrtistofan Hundaspa ætlar að gefa
20% af öllu sem inn kemur í þessari
viku. Kostnaður við aðgerðina sem
Cobra Líf þurfti að fara í og lyf sem
hún þarf að taka er kominn í hund-
rað og fimmtíu þúsund krónur og
enn er eitt- hvað eftir. „Cobra Líf
var svolítíð þreytt eftír helgina og
vildi bara liggja inni í búri og hvíla
sig. Þetta hefði aldrei tekist án hjón-
anna Karenar hundaræktanda og
Péturs, þau eru perlur. Éghefði þurft
að hætta í sumarstarfinu ef þau he-
fðu ekki tekið Cobru Líf að sér eftír
slysið og passað hana hana hingað
til,“ segir Solveig. „Á sunnudags-
kvöld þegar mér voru afhentír pen-
ingamir og undirskriftír allra ásamt
mynd af mér og Cobru Líf sem tekin
var á sýningu í fyrra þá fóru tilfinn-
ingarnar af stað.“ Solveig þakkar öll-
um sem sýnt hafa stuðning á einn
eða annan hátt. „Þó Cobra Líf sé lít-
ill hundur þá er hún hluti af fjöl-
skyldunni og hefur sinn rétt," segir
Solveig.
Algengt að köttum sé lógað á sumrin
Nú er sá tími sem flestum kött-
um er lógað en alla jafiia er flestum
dýrum lógað yfir sumarið og svo í
desember en það tengist ótvírætt
því að fólk þarf að komast burt í ffí.
Það er kostnaðarsamt að láta lóga
dýrum.
„Það kostar 5.500 krónur með
förgun að láta lóga einu dýri. Það
er líka algengt að fólk sjái sjálft um
greftrun. Auðvitað tengist það ekki
alfarið fríum fólks en við finnum
fyrir mun,“ segir Sif Traustadóttir,
dýralæknir á Dýralæknastofu Dag-
finns.
Það er töluvert ódýrara að láta
lóga kettlingum en að láta bólu-
Kisa Ormahreinsun
og bólusetning er al-
gjörlega nauösynleg
hverri kisu árlega.
setja þá og ormahreinsa en það er
oftast grundvöllur þess að hægt sé
að koma þeim í fóstur hjá góðu
fólki. „Við fyrstu komu kostar
ormahreinsun 4.805 krónur. Þá er
fyrsta endurkoman eftir mánuð og
kostar 2.250 krónur. Eftír það kost-
ar árleg endurkoma það sama og
sú fyrsta," svarar Sif.
„Önnur þjónusta sem við veit-
um fyrir ketti eru geldingar. Þá
kostar gelding fýrir fress 5.900
krónur og 10.000 laónur fyrir læðu.
Ofan á þetta bætast 2.000 krónur
fyrir bólusetningu, ormahreinsun
og eyrnamerkingu," segir Sif
Traustadóttír.
Ugla og Hneta
,Ugla er rúmlega fímm ára gömul
labrador-tík. Hún er fædd á Blikastööum í
Mosfellsbæ en býr núná Isveit noröur á
Ströndum. Hún eignaöist slna fyrstu
hvolpa 1 l.júllslöastliöinn en tveirþeirra
fæddust andvana en ein tlk sem fengiö
hefur nafniö Hneta liföi. Ugla sem sjálfer
mikiö dekurdýr hefur
breyst mikiðþessa
daga síðan hún átti
hvolpinn sinn. Hún
vlkur varla frá hon-
um og má ekki vera
að því aö borða eða
fara útnema mlnútu
f senn. Ugla hefur
ekkileikiðséraö
leikföngum I mörg ár en núna nær húnl
þau og hleypur með ýludýr fram og aftur
hvort sem þaö er til þess aö draga athygli
frá afkvæminu eöa hún heldur aö hvolp-
urinn vilji leika viö hana,“ segir Heiða, eig-
andi Uglu.