Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ2004 Sport DV Kvennalið KR í Landsbankadeild kvenna var búið að missa þrjár markadrottningar úrvalsdeildar kvenna á aðeins tveimur árum þegar liðið hóf titilvörn sína í sumar. Olga Færseth (2002), Ásthildur Helgadóttir (2002) og Hrefna Huld Jóhannesdóttir (2003) höfðu skorað samtals 96 mörk á íslandsmeistarárum liðsins 2002 og 2003. Olga fór til ÍBV fyrir tímabilið 2003 og bæði Hrefna ogÁsthildur fór út í atvinnumennsku eftir sumarið í fyrra. Hólmfríður Magnúsdóttir hefur tekið sóknarleik KR-liðsins á sínar herðar og er sá leikmaður Landsbankadeildar kvenna sem stóð sig best í fyrri umferð að mati blaðamanna DV-Sports. Hólmfríður Magnúsdóttir er tvítugur sóknarmaður sem spilar jafnan úti á vinstri væng. Hennar stærsti kostur sem leikmanns er mikill sprengikraftur og hraði hennar upp vinstri vænginn leikur andstæðinga hennar jafttan grátt. Það losnaði greinilega meira um Hólmífíði þegar Guðlaug Jónsdóttir kom inn í KR-liðið á hægri vænginn en Guðlaug spilaði ekki tvo fyrstu deildarleikina í sumar. Guðlaug lék sinn fyrsta leik gegn ÍBV í Frosta- skjólinu 8. júní og frá þeim tíma hefur KR-liðið verið á mikifli siglingu. Liðið var mjög óheppið að vinna ekki Eyjastúfkur í þeim leik og hefur síðan unnið fjóra leiki í röð á sannfærandi hátt. Eftir að Guðlaug kom með mikla ógnun á hægri vænginn hefur mótherjum KR reynst afar erfitt að halda í við Hólmfríði sem fékk alls 12 bolta (af 15 mögulegum), skoraði 11 mörk og átti 10 stoðsendingar í fimm síðustu leikjum KR-liðsins í seinni umferð. KR-liðið er mikið breytt frá því undanfarin ár og það tók því liðið nokkurn tíma að spila sig saman á nýjan leik. Hólmfríður Það er ekki að sjá á markaskori liðsirss, 33 mðrk í sjö leikjum, að liðið sé búið að missa þrjár marka- drottningar deildar- innar á aðeins tveimur árum. hefur fengið stærra hlutverk og nýtt það frábærlega og það er ekki að sjá á markaskori liðsins, 33 mörk í sjö leikjum, að liðið sem búið að missa þrjár markadrottningar deildarinnar á aðeins tveimur árum. Glímdi við meiðsli í fyrra Eftir að hafa glímt við erfið meiðsli fram af sumrinu í fýrra kom Hólmfríður sterk inn á lokasprett- inum og átti mikinn þátt í að KR- liðið náði að verja íslandsmeistara- titil sinn. Hólmfríður skoraði sex af sjö mörkum sínum og átti allar fimm stoðsendingar sínar í seinni umferð- inni. Þar sýndi hún það sem koma skal enda vann hún sæti í landslið- inu og hefur síðan haldið uppi sókn- arleik KR-liðsins. Hólmfríður er nú á sínu fimmta ári með meistaraflokki KR þrátt fyrir ungan aldur en hún hefur verið byrjunar- liðsmaður frá 2001. Fyrir leikinn gegn Fjölni í gærkvöldi sem lauk eftir að DV fór í prentun hafði Hólmfríður skorað 36 mörk í 48 leikjum í efstu deild. Fastamaður í landsliðinu Hólmfríður hefur spilað átta landsleiki fyrir íslands hönd og hefur verið byrjunarliðsmaður í liðinu allt þetta ár. Með framgöngu sinni að undanförnu gefur hún góð fyrirheit fyrir mikilvæga leiki landsliðsins í haust þar sem liðið á ágæta möguleika á að komast á stórmót fyrst íslenskra A-landsliða í knatt- spyrnu. Af öðrum leikmönn- um sem komu sterklega til greina sem bestu leikmenn fyrri umferðar má nefna Laufeyju Ólafsdóttur sem hefur verið allt í öllu á miðju Valsliðsins í sumar, Karenu Burke og Margréti Láru Viðarsdóttur sem hafa borið upp sóknarleik Eyjaliðsins Stefanovic fykilmaður Fjölnis. og Vanja sem er liði nýliða ooj@dv.is Það iosnaði greinilega meira um Hólmfríði þegarGuðlaug Jónsdóttir kom inn í KR-liðið á hægri vænginn en Guðlaug spilaði ekki tvo fyrstu deildarleikina i sumar. FRÁBÆRIR 28 DAGAR HJÁ HÓLMFRÍÐI Hólmfríður Magnúsdóttir átti frábæran mánuð með KR og var allt í öllu þegar Islandsmeistararnir náðu (13 af 15 stigum sem í boði voru frá 8. júní til 5. júli. Hólmfríður átti þátt í 21 af 30 mörkum KR-liðsins I þessum fimm leikjum. Frammistaða Hólmfríðar Magnúsdóttur eftir leikjum: Dags Mótherji DV-boltar Mörk Stoös. Þáttur í mörkum 8. júní W 1-1 1 0 1 af 1 17.júnl ^11-2 4 5 9 af 11 22. júnf % 4-1 0 2 2 af 4 29. júnf $ 5-1 2 1 3 af 5 S.júlf 9-0 4 2 6 af 9 mánuður Hólmfríður Magnúsdóttir er besti leikmaður fyrri umferðar Landsbankadeildar kvenna að mati blaða- manna DV Sports. Hólmfríður er algjör lykilmaður í liði KR í sumar og varð bæði markhæst og sú sem lagði upp flest mörk fyrir félaga sína í fyrstu sjö umferðum sumarsins. Leikin með boltann Hólmfríöur Magnúsdóttir er stórhættuleg á vinstri vængnum hjá KR en hún er sem stendur bæöi markahæsti leikmaður Landsbankadeildar kvenna meö 12 mörk sem og sá leikmaður sem hefur lagt upp flest fyrir félaga sína. DV-mynd E.ÓI. Besti þjálfarinn Elfsabet Gunnarsdóttir hefur náö þvl besta út úr Valsliðinu í sumar en liöiö vann alla sjö leikina f fyrri umferöinni. Lið fyrri umferðar í Landsbankadeild kvenna: Flestir leikmenn úr Val og KR DV hefur valið ellefu manna lið út frá boltagjöf blaðsins og stillt er upp í leikkefið 4-3-3. Valur og KR eiga flesta leikmenn eða þrjá hver. Þrátt fyrir yfirburði Valskvenna í mótinu skera fáir einstaklingar sig úr enda kemst Valsliðið áfram á gríðarsterkri liðs- heild og jöfhum leikmannahóp. Sandra Sigurðardóttir úr Þór/KA/KS er í markinu, hún hefúr átt marga stórleiki í sumar þar á meðal í 1-1 jafnteflinu við ÍBV. f þriggja manna vöm eru Vanja Stefanovic úr Fjölni, einn af bestu leikmönnum deÚdarinnar og svo þær Ásta Ámadóttir úr Val og hin eitil- harða Embla Grétarsdóttir úr KR. Miðjan er skipið þremur sókndjörfum leikmönnum í þeim Karenu Burke, Laufeyju Ólafsdóttir og Emu Björk Sigurðardóttur en Edda Garðarsdóttir er djúp fyrir aftan þær. f sókninni er síðan þrfr marka- hæstu leikmenn deiidarinnar en þær Hólmfffður Magnúsdóttir úr KR, Margrét Lára Viðarsdóttir úr ÍBV og Nína Ósk Kristinsdóttir skomðu saman 33 mörk í fyrri umferðinni. Þjálfari liðsins er síðan að sjálfsögðu Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari toppliðs Vals. Lið fyrri umferðar i Lancisbankadeiid kvenna Hólmfiíður Magnúsi KR Karen Burke ÍBV • rét Lára Viða ÍBV Laufey Olafsdóttir • Val • Erna Björk Sigurðardóttir ... , - Breiðabliki Edda Garðarsdottir • KR Ásta Árnadóttir Val Vanja Stefanovic Fjölni Embla Grétarsdóttir Sandra Sigurðardóttir Þór/KA/KS KR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.