Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Page 29
DV Fókus
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ2004 29
Fljót að finna
sér nýjan
Leikkonan fagra Halle Berry
er komin með nýjan kærasta
upp á arminn en einungis
nokkrir dagar eru síðan leikkon-
an fullyrti að hún væri komin
með nóg af
karlmönn-,
um fyrir
lífstíð,
Hinn
heppni er
leikarinn
Michael v ■
Ealy sem lék
í Barbershop
myndunum.
Eftir skilnað-
inn við Eric Benet sagði Halle
að hún ætlaði að vera ein það
sem eftir væri en leikkonan hef-
ur ávallt verið óheppin í karla-
málum. Vinir hennar segja hins
vegar að Ealy sé eins og hannað-
ur fyrir hana.
Harrison hélt vöku
fyrir gestum hótels
Hasarmyndahetjan og fslandsvinurinn
Harrison Ford hélt vöku fyrir gestum á
hóteli I Wales. Leikarinn er þar staddur
ásamt kærustunni sinni Calistu Flock-
hart. Vitni segja parið hafa rifist svo
hátt alla nóttina að engum hafi tekist
að sofna. „Inn á milli öskranna heyrðist
barningur og brothljóð," sagði gestur á
hótelinu. „Ég hef séð kvikmyndirnar
hans svo ég er feginn að hafa ekki ver-
ið nálægt. Hann gæti léttilega barið
mann í klessu."
Hamlngjusöm
sem aldrei fyrr
Sjónvarpskokkurinn Jamie
Oliver segir ekkert tíl í þeim
fréttum að hjónaband hans
standi á brauðfótum. Hann og
Jools konan hans hafi aldrei ver-
ið hamingjusamari. Slúðurblöð-
in í Bretlandi hafa haldið því
fram að vinnuálagið sem Jamie
sé undir sé farið að hafa áhrif á
samband þeirra hjóna. Kokkur-
inn er nýbúinn að opna nýjan
veitingastað í London, er að
opna annan í Amster-
dam, stendur í tök-
um á nýrri þátta-
röð auk þess
sem hann leikur f
j§ auglýsingum og
er að skrifa sína
fimmtu uppskrifta-
bók.
Partígellan París Hilton hefur ákveðið að falla frá ákærum
vegna kynlífsmyndbandsins sem hún leikur aðalhlutverkið í.
Hún virðist hafa komist að því að það var myndbandið sem
gerði hana fræga - svo það var kannski ekki verra að græða
nokkrar krónur á því í leiðinni.
Gleðigellan París Hilton hefur
ákveðið að falla frá ákærum gegn
fyrrverandi kærasta sínum vegna
dreifingu hans á kynlífsmyndband-
inu fræga. París og Rick Salomon
hafa nefnilega komist að samkomu-
lagi - París fær liluta af gróðanum
sem Rick fékk fyrir að
dreifa myndbandinu á
netinu.
Salomon og inter-
netfyrirtækið sömdu
um að Paris fengi 215
þúsund pund auk
ákveðinnar prósentu-
tölu nú þegar mynd-
bandið er komið út á
vídeóspólu. Gellan
var aðeins 19 ára þeg-
ar myndbandið, One
Night In Paris,
var tekið upp
Þar sést París í
ýmis konar
kynferðislegum
athöfnum
ásamt Salomon
sem nú er eiginmaður leikkonunn-
ar Shannon Doherty. Talsmenn
hótelerfingjans hafa lengi haldið
því fram að París hafi verið nær
áfengisdauða þegar ástarleikurinn
áttí sér stað. Þeir verða nú að éta
það ofan í sig því allir geta séð að
hún er glaðvakandi og veifar meira
að segja í átt að myndavélinni í
miðjum klíðum.
Hilton og Salomon áttu í laus-
legu sambandi í nokkra mánuði.
Rick hefur sagt frá því að París hafi
hringt í hann hvenær sem hún
hafi verið í stuði. „Sama hvað ég
var að gera þá var ég mættur til
hennar innan nokkurra mínútna."
París hefur verið orðuð við
nokkra mestu töffarana í
Hollywood þar á meðal leikarana
Nicolas Cage, Leonardo DiCaprio,
Edward Furlong, Jared Leto og
Ashton Kutcher auk boxarans
Oscar de la Hoya. Myndbandið
þykir renna stoðum undir þá
ímynd sem hún hefur skapað sér -
forrfk, kynlífssjúk gála sem hefur I
ekkert betra við tímann að gera
en að eltast við karlmenn.
Partýgella París er þekktust fyrir aö vera
þekkt. Hún mætir á alla heitustu staðina
og veigrar sér ekki viö aö stilla sér upp fyrir
myndavélarnar.
Scarlett Johansson segist aldrei hafa kelað vlð vinkonu sína né
gert það með Benicio del Toro í
lyftu
er e
Leikkonan fagra Scarlett Johansson hlær að þeim
sem halda að hún sé tvíkynhneigð. Sögurnar fóru af
stað eftir að hún sást kela við vinkonu sína fatahönn-
uðinn Töru Subkoff í New York í
að borða saman og gert að gamni sínu með því að kalla hvor
aðra ástina sína. „Má ég ekki hella rauðvíni í glasið þitt ástin
mín nú þegar við erum kærustupar?" Scarlett segir enn-
fremur að sagan um ástarfund hennar og leikarans Benicio
del Toro í lyftunni frægu sé ósönn. „Við áttum að hafa gert
það í lyftu sem er að mínu mati frekar subbulegt," sagði leik-
konan og bætti við að samkvæmt sögunni hafi einhver átt að
hafa verið með þeim í lyftunni en hún hafi lítinn áhuga á að
láta horfa á sig þegar hún stundar kynlíf.
Stjörnuspá
Andri Snær Magnason rithöfundur er
31 árs í dag. „Þessi tunglmaður hefur
meðfædda sögubók í kollinum og innra
landslag. Hann er kannski utan við sig
dagsdaglega en þegar ást-
vinir hans eiga í vand-
ræðum bregst hann
skjótt við. Hann ætti að
vera meðvitaðri um
hvenær og hvernig
binda skuli enda á slæm
k sambönd," segir í
stjörnuspá hans.
Andri Snær Magnason
w
w
Vatnsberinn (20.jan.-i8. febr.)
Þú veist hvað þú vilt um þess-
ar mundir og metur sömu hreinskiptni
hjá félaga þínum mikils. Þú ert reiðubú-
in/n að stilla saman strengi ykkar en
jafn reiðubúin/n að leyfa sjálfinu og
ekki síður félaga þínum að spila sitt eig-
ið lag.
FiskarnirfD. febr.-20. mars)
Umburðarlyndi getur reynst
þér erfitt um þessar mundir en þú ert
fær um að vera til fyrirmyndar ef þú
hlustar á eigin sannfæringu og lifir í
þeirri vitneskju að það sem þú sjálf/ur
aðhefst mótar framtíð þína alfarið.
T
Hrúturinn (21.mars-19.a
Þú ættir um þessar mundir að
taka opnum örmum á móti því sem til-
vera þín færir þér en hér er á ferðinni já-
kvæð reynsla sem ýtir undir velgengni
þína og ekki síst viðurkenningu.
Ö
Nautið (20. april-20. mai)
n
Þú átt jafnvel í einhverjum erf-
iðleikum með að tjá eigin tilfinningar
opinberlega og átt það til að skammast
þín fyrir að gefa hjarta þitt. Þetta kann
að ýta undir erfiðleika hjá þér þegar
ástin er annars vegar.
Wibmm (21.mai-21.júnl)
Viðurkenndu tilfinningar þínar
en ekki bæla þær niður. Haltu þig við
eigin tilfinningar og skynjun.
Krabbinn (22:^1-22.júíí)
Q** Þú ættir ekki að sniðganga líð-
an þína og átta þig á að þú ert fær um
að takast á við vandamál nútíðar án
þess að streitast sffellt gegn því að við-
urkenna óskir hjartans.
LjÓnÍð ÍH.júlí-2?. ógúslj
Þú átt I erfiðleikum með að
sleppa tilfinningum þínum lausum án
tryggingar um að fá þær endurgoldnar.
Þú virðist vera upptekin/n af frammistöðu
þinni og ert í raun nokkuð feimin/n. Slak-
aðu á og hlustaðu á skilaboð hjartans.
Meyjan (23.0gúst-22. septj
Þú ert fær um að leiðbeina
öðrum samkvæmt eigin sannfæringu
og kennir náunganum að leita svara við
spurningum tilverunnar en átt það til
að gleyma að hlusta á eigið hjarta sem
kallar hér á athygli þína því unaðs-
stundir bíða þín fyrir sumarlok.
n Vogin (23. sept.-23.okt.)
Eitthvað virðist vanta upp á
þessa dagana og þú leitar eflaust að
nýjungum. Jafnvægi ríkir milli þín og fé-
laga þinna og sú vinátta hjálpar þér að
takast á við hvaða hindranir sem kunna
að verða á vegi þínum.
111
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0v.)
Fólk eins og þú er fært um að
sá eigin rökhugsun yfir tilfinningalegar
þrár en ætti ekki að halda aftur af sér
því það er þess vert að vera elskað.
/
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.des)
Hér ert þú ert fær um að
skapa stemningu og hefur mikið yndi
af mannlegum samskiptum. Einbeittu
þér að einum kafla í einu þegar um til-
finningar þínar er að ræða og beindu
allri athyglinni að þeim sem þú unnir
með sanni.
%
Steingeitin (22. des.-19.jan.)
Gefðu þér tíma til að upplifa
og þú finnur án efa innri ró og skynjar
meðvitað fegurð tilveru þinnar ef þú ert
fær um að hlúa að hjarta þínu og ekki
síður líðan náungans.
SPÁMAÐUR.IS