Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Page 31
DV Síðast en ekki síst
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ2004 31
F
Jafn atkvæðisréttur og bein kosning framkvæmdavaldsins
Ruddaskapur stjórnvalda gagn-
vart sjálfsögðum og stjómarskrár-
bundnum rétti þjóðarinnar til að
kjósa beint um fjölmiðlalögin beinir
kastljósinu að því margvíslega rang-
læti sem ríkir í lýðræðisfyrirkomulagi
okkar. í framhaldi af þeim skrípaleik
sem setning fjölmiðlalaga er orðinn
hjá rfkisstjórnarflokkunum er brýnt
að halda mönnum við efríið og færa
lýðræðisfyrirkomulagið til nútíma og
jafhréttís.
íslensk stjórnsýsla hefur ekki þró-
ast í takt við tímann og afleiðingarnar
blasa við. Völdin hafa blindað sýn og
eftírlitið bmgðist hvað eftir annað
með þeim afleiðingum að almenn-
ingur hefur í stórum stíl misst trúna á
getu stjómmálamanna til góðra
verka. Án róttækra umbóta á stjórn-
kerfi landsins verður erfltt að hreinsa
til og endurheimta trú og traust fólks-
ins á stjómkerfinu og stjómmálum
landsins. Vantraust og tortryggni al-
mennings í garð stjómmálamanna
almennt er staðreynd sem eitrar
samfélagið og grefur undan því.
Beint lýðræði
Það á að taka upp þjóðarat-
kvæðagreiðslur og beint lýðræði í
miklu ríkari mæli en nú er gert og
setja inn í stjórnarskrá ákvæði um að
tiltekinn hluti atkvæðisbærra manna
geti kailað mál í þjóðaratkvæði.
Beint lýðræði er nánast óþekkt á ís-
landi nema þegar um hunda og
brennivín er að tefla. Enda brellum
og brögðum beitt af stjórnarflokkun-
um til að komast undan dómi kjós-
enda.
Sú aðför að mannréttíndaákvæð-
Björgvin G. Sigurðsson
veltirfyrirsérhvort
kjósa eigi fram-
kvæmdavaldið beinni
kosningu.
Kiallari
um stjórnarskrárinnar sem felst í
fjölmiðlalögumun hefur valdið for-
dæmalausu rótí í samfélaginu og
skyldi engan undra. Eina vitlega og
sjálfsagða niðurstaðan er að láta
fólkið kjósa beint um málið og útkljá
þetta deilumál með þeim hættí. En
þannig er okkar lýðræðiskúltúr ekki
og því er reynt að telja okkur trú um
að það megi ekki eiga sér stað milli-
liðalaus atkvæðagreiðsla um þetta
mál eða önnur.
Landið eitt kjördæmi
Jafnaðarmenn hafa barist fyrir
því að landið verði eitt kjördæmi ffá
árinu 1927. Þá fluttí Héðinn Valdi-
marsson frumvarp þess efnis. f
greinargerð með frumvarpinu segir
Héðinn að í mannréttindakenning-
um þeim sem þingræðið hvílir á
ættu allir fullorðnir menn í landinu
að hafa jafnrétti í þessum málum og
muni óvíða í siðuðum löndum
sveigt svo langt frá því marki sem
hér á landi.
Að mati Héðins var því reglan
einn maður - eitt atkvæði horn-
steinn lýðræðisins. Jafn atkvæða-
réttur er mannréttindi og með því er
einnig unnið gegn kjördæmapoti og
þeim ljóta bletti sem það er á fram-
göngu stjórnmálamanna.
Bein kosning framkvæmda-
valdsins
í þeirri vinnu að stjómarskrár-
breytingum sem framundan eru á
næstu missemm finnst mér sjálfsagt
að skoða vandlega hvort eigi að kjósa
framkvæmdavaldið beinni kosn-
ingu. Líkt og víða er gert erlendis.
Margir kostír fylgja slíku fyrir-
komulagi einsog lesa má í greinum
eftir þá feðga Gylfa Þ. Gíslason og
Vilmund Gylfason. Vilmundur flutti
um það sérstakt þingmál og Gylfi
skrifaði um það merka grein á sínum
tíma.
Með beinni kosningu fram-
kvæmdavaldsins er skilið algjörlega
á milli framkvæmdavaldsins og lög-
gjafans og skýrar línur dregnar. Bein
kosning ffamkvæmdavaldsins trygg-
ir einnig miklu betra aðhald af hálfu
þingsins en nú er þegar við upplifum
meirihluta þingsins sem áhrifalausa
stimpilstofnun fyrir ffamkvæmda-
valdið.
Ægivald flokksræðisins og for-
ingjaveldis stjórnarflokkanna kemur
skýrt fram einsog málum er nú hátt-
að hérlendis. Það hlýtur að vekja
okkur til umhugsunar um það hvort
ekki sé nauðsynlegt að skilja alveg
þarna á milli með beinni kosningu
ffamkvæmdavaldsins. Um það þarf
að fjalla af kraftí á næstunni hvort við
eigum ekki að skoða slíkt fyrirkomu-
lag í fullri alvöru.
„Með beinni kosningu framkvæmdavaldsins er
skilið algjörlega á milli framkvæmdavaldsins
og löggjafans ogskýrar línur dregnar."
• Lítið er að gerast í
stuðningsmanna-
hópi Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur
varðandi formanns-
framboð. Flestír telja
að meðan össur
Skarphéðinsson
heldur flokknum yfir 30 prósentum
eigi Ingibjörg Sólrún ekki möguleika
á að velta honum úr
sessi. Því ræða menn
nú í tveggja manna
tali í og utan við
Ráðhúsið hvort ekki
sé best að koma
Ingibjörgu Sólrúnu
aftur fyrir í borgar-
pólitíkinni og láta hana að þessu
sinni leiða listann sem óskorað
borgarstjóraefni. Framsókn virðist
geta sætt sig við slíka vendingu en
talið er að VG eigi erfiðara með að
kyngja Ingibjörgu; enn einu sinni...
• Hugsanlegt er að Reykjavíkurlist-
inn klofni og flokkarnir bjóði ffam
undir eigin merkjum við næstu
kosningar. Skemmst er að minnast
yfirlýsinga bæði Guðmundar Áma
Stefánssonar og Margrétar Frí-
mannsdóttur í kjölfar síðustu kosn-
inga um að Samfylkingin ætti alls
staðar að bjóða fram undir eigin
flaggi, líka í Reykjavík. HalldórÁs-
grímsson hefur sömuleiðis marg-
sinnis lýst yflr að það sé Framsókn
óhagstætt að bjóða
aldrei ffam eigin
lista. ÁmiÞórSig-
urðsson, oddvití VG,
er sagður orðinn
leiður á samstarfinu.
Sjálfstæðisflokkurinn
er til í allt sem gætí
fellt R-listann og þar á bæ eru menn
jafnvel sagðir vera til í að bjóða VG
borgarstjórastól ef samstarf tækist.
Óttast menn innan R-listans að Árni
Þór gætí vel hugsað sér að verða
borgarstjóri í meirihluta VG og Sjálf-
stæðisflokksins...
fréttaritara. Morgunblaðið hefur yfir
að ráða einu fjölmennasta yfir-
mannaliði sem þekldst á fjölmiðli en
ekki er búist við því að Styrmi
Gunnarssyni ritstjóra eða næstráð-
endum verði sagt upp í bili heldur
verði lögðúhersla á að fækka smá-
fuglunum:..
• Sterk forysta er talin lífsnauðsyn-
leg fyrir Reykjavíkurlistann eigi hann
að sigra í fjórða sinn. Fari svo að þrí-
eykið sem ræður listanum, Alfreð
Þorsteinsson, Stefán Jón Hafetein og
Ámi Þór Sigurðsson,
telji ÞórólfÁmason
ekki nógu sterkan er
óvænt vending kom-
in inn í umræðuna.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir er ennþá
borgarfulltrúi og var
sterkur borgarstjóri. Hún hefur hins
vegar engu flugi náð í landsmálun-
um og stöðugt fallið lengra inn í
skuggann af sjálfri sér eins og Bragi
Kristjónsson bóksali orðaði það í
Fréttablaðinu...
Sævar Pétursson hjá Baðhúsinu ætlar
að færa vinningshöfum í áskrifendaleik
DV glæsilegan vinning.
Aldrei of seint að
byrja í ræktinni
„Við ætíum að gefa
einkaþjálfun í einn
mánuð, þriggja mán-
aða kort og eitthvað
skemmtilegt úr snyrti-
stofunni," segir Sævar
Pétursson hjá Bað-
húsinu en heppinn
vinningshafi í áskrif-
endaleik DV fær
glæsilegan líkams-
ræktarvinning frá
Baðhúsinu, Sport-
húsinu eða Þrekliús-
inu. „Einkaþjálfarinn
mun meta hverja
manneskju fyrir sig.
Vinningshafinn gæti
náttúrulega verið í
fínu formi en haft
áhuga á að styrkja sig
eða þá verið of þungur og haft
áhuga á að léttast. Það verður að
ráðast þegar úrslitín em komin.“
Samkvæmt Sævari em body
pump og body step vinsælustu tím-
arnir hjá þeim. „Við byrjuðum með
body step-tímana í haust og þeir
hafa verið gríðarlega
vinsælir," segir Sævar
og bætir við að vinn-
ingshafinn geti einnig
notfært sér tækin og
alla aðra aðstöðu sem í
boði sé. Hann segir að
fólk sé alltaf orðið dug-
legra og duglegra við að
mæta í ræktína. „Það er
mikil breyting á því
sem áður var. Hér áður
fyrr hefði mátt loka yfir
hásumarið. Við finnum
þó alltaf fyrir smá minni
aðsókn en margir sem
fara til útíanda em farn-
ir að notfæra sér sam-
starfssamning okkar
við 60 líkamsræktar-
stöðvar í Evrópu."
Að lokum vill Sævar minna á að
það sé aldrei of seint að byrja í rækt-
inni. „Skynsamlegast er að byrja á
réttan hátt. Það er mjög sniðugt að
fá sér einkaþjálfara og gera þetta
rétt í stað þess að beita sér vitíaust,
fá strengi og gefast upp.“
Sævar Pétursson Sxvar segir
að þegar fólk fari til útlanda í
sumarfri færistþað stöðugt i
aukana að það heimsæki þær lik-
amsræktarstöðvar sem Baðhúsið
hefur gert samstarfssamning við.
Duglegum krökkum
lausasðlu og þeir sem
selja blaðið fá 70 kr. af hverju seldu blaði
virka daga en 90 kr. um helgar. Ef þú selur 10
blöð á hverjum degi frá mánudegi til laugardags
þá vinnur þú þér inn 4.400 kr. á viku eða 17.600 á mánuði. H
Þú sækir blaðið til okkar í Skaftahlíð 24 að morgni og skilar
síðan af þér óseldum blöðum og sölunni ____________________
þegar þú ert búin. Við greiðum þér launin ri r ."aTf?
strax. Blaðið er selt með því að ganga í 1 ■
fyrirtæki og heimili eða við fjölfarna staði. t
Blaðberar DV og Fréttablaðsins geta líka V
fengið blöðin send heim og gert upp vikulega. Náðu þér í vasapening í sumar með því að
selja skemmtilegt
Söluhæstu krakkarnir
fá miða á tónleika 50 Cent
í Egilshöll 11. ágúst n.k.
*