Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1982, Blaðsíða 10
Hjörleifur Guttormsson iönaðarráðherra:
Nýiðnaður og möguleikar í
orkufrekum iðnaði
Erindi flutt á fundi hjá Verkfræðingafélagi íslands 21. okt. 1982.
Góðir fundarmenn.
Það er mér ánægja að eiga þess kost
að koma hér inn á vettvang Verk-
fræðingafélags íslands til að ræða um
nýiðnað og möguleika í orkufrekum
iðnaði hérlendis, eins og ég hef kosið að
kalla þetta erindi. En áður en að því
kemur vil ég bera fram þakkir til Verk-
fræðingafélagsins fyrir mikið og ötult
starf í þágu tæknimála og mannvirkja-
gerðar hérlendis. Ég hef ekki komið inn
á vettvang félags ykkar fyrr, en tel mig
þó þekkja nokkuð til hans sem áskrif-
andi að tímariti ykkar í nær tvo áratugi
og fréttabréfsins, sem nú hefur brátt sjö
árganga að baki. Ástæðan fyrir því að
ég fór að gefa áhugamálum ykkar gaum
var í fyrstu sprottin af nokkurri tor-
tryggni. Sem náttúrufræðingur og
áhugamaður um umhverfisvernd hafði
ég áhuga á að kynna mér meiriháttar
mannvirkjagerð og áhrif hennar á ásýnd
landsins og umhverfi. í starfi mínu að
náttúruverndarmálum kynntist ég
mörgum verkfræðingum og fann fljót-
lega, að þar var ekki við samsvarinn hóp
andstæðinga að etja heldur höfðu
margir þeirra næmt auga fyrir
umhverfisvernd og góðan skilning á
sjónarmiðum náttúruverndar. Það á
ekki síst við um aldna brautryðjendur í
félagsskap ykkar, en ég vænti þess að
hinir yngri séu þar engir eftirbátar, og
græna línan eigi raunar nokkur ítök í
okkur öllum.
STEFNUMÖRKUN STJÓRNVALDA
Ég mun hér í upphafi gera nokkra
grein fyrir stefnumörkun á vegum ríkis-
stjórnar og Alþingis að undanförnu
varðandi meiriháttar iðnað í landinu,
fjalla um forsendur slíkrar iðnþróunar
og samkeppnisstöðu okkar íslendinga á
þessu sviði. Einnig vil ég víkja að skipu-
lagsmálum, er snerta staðsetningu
meiriháttar iðnfyrirtækja og gera grein
fyrir einstökum verkefnum í svonefnd-
um nýiðnaði og orkuiðnaði, sem að
hefur verið unnið í tíð núverandi ríkis-
stjórnar. Rétt er einnig að minnast á
þær starfsaðferðir, sem fyrirhugaðar
eru á þessu sviði í ljósi fenginnar reynslu
og á líklegt svigrúm til fjárfestinga í
orkuiðnaði á næstu árum og áratugum.
í stjórnarsáttmálanum frá 8. febrúar
1980 segir svo:
„Ríkið stuðli að uppbyggingu meiri-
háttar nýiðnaðar er m.a. byggi á inn-
lendri orku og hráefnum, enda verði
slíkur nýiðnaður og frekari stóriðja á
vegum landsmanna sjálfra.
Undirbúningi meiriháttar fram-
kvæmda verði hagað þannig, að inn-
lendir verktakar hafi sem besta mögu-
leika til að taka þær að sér á eðlilegum
samkeppnisgrundvelli”.
Jafnframt er í stjórnarsáttmálanum
lögð áhersla á að nýta innlendar
auðlindir og hráefni og að efla rann-
sóknir á íslenskum auðlindum.
í samræmi við þessa stefnu hafa fjár-
veitingar til rannsókna á orkulindum
okkar og vegna orkufreks iðnaðar og
annars nýiðnaðar verið stórauknar frá
því sem áður var, eins og ég mun koma
nánar að síðar.
En fleira hefur gerst í stefnumótun í
iðnaði en það, sem fram kemur í
stjórnarsáttmálanum. Þannig sam-
þykkti Alþingi á síðasta vori samhljóða
þingsályktun um iðnaðarstefnu, sem
fyrst var lögð fram vorið 1979 í tillögu-
formi. Meðal markmiða í þessari iðn-
aðarstefnu eru eftirtalin:
,,Að nýta sem best þá möguleika til
iðnaðarframleiðslu, sem felast í inn-
lendum orkulindum, og efla innlenda
aðila til forystu á því sviði. Orkufrek-
ur iðnaður verði þáttur í eðlilegri iðn-
þróun í landinu, og jafnframt verði
lögð áhersla á úrvinnsluiðnað í
tengslum við hann”.
Og jafnframt segir þar:
Hjörleifur Guttormsson lauk diplóm-
prófi í líffrœði frá háskólanum í Leipzig
1963, aðstoðarm. Hygiene Institut
háskólans í Leipzig 1963. Kennari við
Gagnfrœðaskóla Neskaupstaðar 1964—
1973. Vann að náttúrurannsóknum,
einkum á Austurlandi 1968—1978 á
vegum Náttúrugripasafnsins í Neskaup-
stað, forstöðum. safnsins frá stofnun
þess 1971—1978. Alþm. frá 1978. Iðn-
aðaráðherra 1. sept.—15. okt. 1978 og
frá 8. febr. 1980.
,,Að tryggja forræði landsmanna
yfir íslensku atvinnulífi og auðlind-
um og stuðla að æskilegri dreifingu
iðnaðar og jafnvægi í þróun byggðar
í landinu”.
Nánar segir síðan í kafla um leiðir til
að ná þessum markmiðum:
„Ríkisvaldið stuðli að uppbyggingu
fjármagnsfreks nýiðnaðar, m.a.
orkufreks iðnaðar, er hagnýti
innlenda orku og hráefni. Orku-
frekur iðnaður lúti íslenskum lögum
og forræði. Leitað verði eftir sam-
vinnu við erlenda aðila um einstaka
þætti, eftir því sem nauðsynlegt og
hagkvæmt er talið á hverjum tíma.
Slíkur iðnaður taki mið af æskilegri
atvinnu- og byggðaþróun og
umhverfisvernd ”.
VIRK YFIRRÁÐ
Ég tel þann stefnumarkandi ramma,
sem Alþingi hefur dregið með sam-
hljóða samþykkt um ofangreind atriði,
afar mikilsverðan því hann festir í sessi
þá stefnu að hagnýting orkulindanna til
iðnaðar og uppbyggingar annars meiri-
háttar iðnaðar i landinu skuli lúta inn-
lendri forystu og forræði, eins og annar
atvinnurekstur. Menn getur að vísu
greint á um útfærslu á þessum stefnu-
58 — TÍMARIT VFl' 1982