Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1982, Qupperneq 12

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1982, Qupperneq 12
okkur jarðvarmann í iðnaði í vaxandi mæli, þurfum við einnig að leggja í margháttaðar rannsóknir, er varða slíka hagnýtingu, bæði almennar, s.s. varð- andi flutning á jarðvarma, svo og varð- andi nýtingu í einstökum iðnaðarferl- um. Það segir nokkuð um, hvar við erum á vegi stödd í þessum efnum, að um árabil hafa verið til staðar virkjaðar holur með umtalsverðu gufuafli í Krísu- vík og í Ölfusdal við Hveragerði, án þess að fram hafi komið margar hug- myndir um að nýta þetta afl. Þar er hugsanleg sykurvinnsla nánast það eina, sem litið hefur verið á að marki, svo mér sé kunnugt. VERÐLAGNING ORKUNNAR UNDIRSTÖÐUATRIÐI Mikið vantar einnig á að við höfum skýra mynd af líklegum framleiðslu- kostnaði jarðvarma á háhitasvæðum, og marka þarf stefnu um verðlagningu á þessari auðlind. Leiða má líkur að því, að við seljum jarðvarma verulega undir kostnaðarverði í vissum tilvikum, eins og t.d. til Kísiliðjunnar við Mývatn, en þar hafa raunar komið til eldsumbrot á undanförnum árum, sem hækkað hafa tilkostnað við jarðvarmavinnsluna. Á vegum Orkustofnunar hefur vissu- lega verið unnið nokkuð að þessum málum og þannig áætlar Karl Ragnars verð á jarðgufu frá háhitasvæðum 15,50 — 18,40 kr/tonn á verðlagi í janúar 1982 miðað við tilteknar forsendur, og svarar það til 14—16 aura/kWh í raforkuframleiðslu. Um verðlagningu raforku til orku- freks iðnaðar gegnir raunar svipuðu máli. Raforkuna höfum við selt langt undir framleiðslukostnaðarverði á undanförnum árum og eru hlutföll þar stöðugt að breytast til hins verra. Áhersla hefur verið á það lögð að undanförnu að átta sig á, hvert sé líklegt framleiðslukostnaðarverð raforku frá þeim virkjunum, sem heimilda hefur verið aflað fyrir og fyrirhugað er að reisa á næstu 10—15 árum, og jafn- framt hvað telja megi samkeppnisfært verð með tilliti til einstakra framleiðslu- greina. Þetta er undirstöðuatriði, því að forsenda þess að orkulindirnar reynist sú auðlind, sem við vonumst til, er að framleiðslukostnaður á orku hérlendis sé lægri en verð til orkufreks iðnaðar annars staðar hjá óskyldum aðilum, einkum í Evrópu og Norður-Ameríku. Nýlega er lokið á vegum iðnaðarráðu- neytisins víðtækri athugun á raforku- verði til orkufreks iðnaðar með sérstöku tilliti til íslenska álfélagsins hf. Starfs- hópurinn, sem að þessu vann, var skipaður mönnum frá Orkustofnun, Landsvirkjun, Rafmagnsveitum ríkisins og iðnaðarráðuneyti. Varðandi framtíðarhorfur um sam- keppnisstöðu íslendinga í áliðnaði kemst starfshópurinn að þeirri niður- stöðu, að framleiðslukostnaður á raf- orku til stóriðju frá nýjum virkjunum sé á bilinu 18—22 mill/kWh miðað við 6—8% reiknivexti og fulla verðtrygg- ingu og að samkeppnishæft orkuverð til áliðju hér á landi sé um 20 mill/kWh. Slíkt verð gæti m.a. orðið grundvöllur fyrir frekari áliðnaði hér á landi, þegar markaðurinn kemst úr þeim öldudal, sem hann nú er í. Til hliðsjónar vil ég bregða hér upp töflum 1 og 2, sem sýna m.a. raforkuverð til áliðnaðar í Vestur- Evrópu og raforkuverð til álvera á öðrum svæðum 1981 og spá um árið 1990. í hagkvæmniathugunum vegna kísil- málmverksmiðju á Reyðarfirði hefur verið miðað við, að væntanleg verk- smiðja greiði að meðaltali um 17,5 mill/kWh fyrir orkuna. Samningar standa nú yfir við Landsvirkjun um raforkusamning fyrir verksmiðjuna. Til samanburðar er áætlað, að meðalorku- verð til kísilmálmframleiðslu í heim- inum sé um 20 mill/kWh. 2. mynd. Staða rannsókna á 20 virkjunarstöðum og háhitasvœðum. 60 — TÍMARIT VFÍ 1982

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.