Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1982, Blaðsíða 17
ÁHRIF Á HAGVÖXT, SKULDA-
STÖÐU OG GREIÐSLUBYRÐI
Athuganir á áhrifum þessara fjárfest-
inga á hagvöxt og framleiðslu sýna, að
framlag orkuiðnaðar til hagvaxtar gæti
numið um 0,5 % á ári og að hlutdeild
nýs orkuiðnaðar í þjóðarframleiðslu
árið 2000 gæti orðið allt að 7%. Er þá
miðað við, að afkastavextir fjárfestinga
í orkuiðnaði, að virkjunum meðtöldum,
næmu um 10%. Til samanburðar má
nefna, að hlutdeild sjávarútvegs í
þjóðarframleiðslu landsmanna hefur á
undanförnum árum verið 12—15%.
Ein stærsta spurningin varðandi slík-
ar framkvæmdir er þó varðandi áhrif
hennar á skuldastöðu þjóðarbúsins. Nú
mun skuldastaðan vera um 45% af
þjóðarframleiðslu og þykir flestum það
vera i hámarki. Þegar áhrif áður-
greindra fjárfestinga á skuldastöðu eru
metin kemur í ljós, að bein viðbótar-
áhrif gætu numið allt að 20% af þjóðar-
framleiðslu. Við fyrstu sýn virðist þetta
dæmi ekki líta vel út, en hafa verður í
huga, að á næstu árum mun eldri hluti
skulda þjóðarbúsins fara minnkandi á
sama tíma og tekin eru lán til nýrra
framkvæmda. Engu að síður virðist
þörf að fara hér að með verulegri gát.
Varðandi áhrif fjárfestinga í orkuiðn-
aði á greiðslubyrði kemur í ljós, að um
bein jákvæð áhrif gæti orðið að ræða
eftir svo sem 5—10 ár. Kemur það ekki
á óvart, þar sem útflutningsframleiðsla
á í hlut, en allt er þetta að sjálfsögðu því
háð, að umræddar forsendur verði ekki
lakari en hér er gert ráð fyrir.
Að sjálfsögðu þarf að horfa til allra
átta í undirbúningi ákvarðana í svo stór-
um málum, m.a. varðandi liklega arð-
semi fjárfestinga og alþjóðlegar
þróunarhorfur. Iðnaðarráðuneytið
telur því mikilvægt að gera sem traust-
astar langtímaáætlanir um þessi efni, og
endurskoða þær stöðugt í ljósi breyt-
inga og reynslu. Einnig er ástæða til að
minna á, að þótt orkumálin vegi
væntanlega þungt í heildarfjárfestingu
landsmanna á næstu árum, þarf jafn-
hliða að átta sig á þróunarhorfum og
möguleikum annarrar atvinnustarfsemi
í landinu. Slíkt er forsenda þess að
áætlanagerð sem hér um ræðir komi að
notum við stjórn efnahagsmála.
9. mynd. Hluldeild nýs orkuiðnaðar i þjóðarframleiðsiu.
10. mynd. Áhrif fjárfestinga í orkuiðnaði á skuldaslöðu.
% AF
STARFSAÐFERÐIR OG
ÞEKKINGARÖFLUN
Góðir fundarmenn.
Að lokum vil ég aðeins víkja hér að
mótun vinnuaðferða við undirbúning
og framkvæmd þeirra stóru mála, sem
hér eru til umræðu. Á undanförnum ár-
um hefur fengist verðmæt reynsla á
þessu sviði á vettvangi iðnaðarráðuneyt-
is, stofnana og fyrirtækja, ekki síst
verkfræðistofa, sem unnið hafa að
frumathugunum, svo og hagkvæmni-
athugunum og annarri áætlanagerð í
tengslum við orkunýtingu og meirihátt-
ar nýiðnað. Tímabært er að hagnýta
þessa reynslu um leið og leitast er við að
koma meðferð þessara mála í sem best-
an farveg.
TÍMARIT VFÍ 1982 — 65