Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1982, Blaðsíða 18
Ég tel eðlilegt að efla þróunardeild
Iðntæknistofnunar sem forystuaðila til
að hafa með hendi frumkönnun og for-
athuganir á sviði orkunýtingar. Jafn-
framt þarf að tryggja sem best samstarf
þróunardeildar við aðrar stofnanir og
fyrirtæki, sem lagt geta þessum málum
lið og byggt geta upp þekkingu í land-
inu. Eðlilegt virðist að tengja slíka aðila
saman með einhverjum hætti til að koma
við eðlilegu streymi upplýsinga og
verkaskiptingu. Þar hef ég m.a. í huga
auk þróunardeildar aðila eins og Rann-
sóknaráð ríkisins, Háskóla Islands og
Orkustofnun, svo og starfandi fyrirtæki
í orkuiðnaði, verkfræðistofur og fleiri.
Samvinnu þarf einnig að tryggja við
áhugaaðila og hugsanlega fram-
kvæmdaaðila, sem eigi hlut að hag-
kvæmniathugunum.
Við uppbyggingu og rekstur þeirra
fyrirtækja, sem við væntum að spretti
upp af þessu starfi, þarf að gæta sem
best hagkvæmni og arðsemissjónar-
miða, ekki síður þótt ráð sé fyrir því
gert, að opinberir aðilar, ríki og sveitar-
félög, hafi þar forystu. Sú sókn inn á
orkusviðið, sem við væntum að geti
orðið að veruleika hérlendis, þótt illa ári
í efnahagsmálum heimsins nú um skeið,
þarf að verða til búsílags í íslenskum
þjóðarbúskap, en ekki að ómaga, sem
leggja þurfi til af annarri verðmæta-
sköpun. Undirstaða þess að vel takist til
í þessum efnum er að í landinu sé til og
eflist þekking og færni. íslenska verk-
fræðinga á ekki að þurfa að brýna í
þeim efnum og á þá mun reyna nú sem
oftast áður, er þjóðin sækir inn á ný
svið í atvinnuþróun.
Ólafur Sveinsson (V 1982),
f. 30. sept. 1952 á Akureyri.
Foreldrar Sveinn skrifstofu-
maður í Kópavogi, f. 2.
febr. 1928, Ólafsson verka-
manns á Akureyri Rósinants-
sonar og kona hans Guð-
björg Malmquist, f. 4. maí
1930, dóttir Einars Malm-
quists skrifstofumanns á
Akureyri.
Stúdent MH 1973, próf í
hag- og rekstursverkfræði
frá TU Berlin 1981. Iðnráð-
gjafi Vesturlandskjördæmis
í Borgarnesi frá 1981.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 25. jan. 1982.
H.G.
Páll Gíslason (V 1981), f.
18. febr. 1953 á Blönduósi.
Foreldrar Gísli bóndi að
Hofi í Vatnsdal, A-Hún, f.
18. mars 1920, Pálsson
bónda að Sauðanesi á Ás-
um, A-Hún, Jónssonar og
kona hans Vigdís, f. 19.
nóv. 1929, Ágústsdóttir
bónda að Hofi Jónssonar.
Stúdent MA 1974, próf í
vélaverkfræði frá HÍ 1981.
Verkfr. hjá Slippstöðinni á
Akureyri frá 1981. Fór til
framhaldsnáms við DTH i
Khöfn 1982.
Maki 7. des. 1979, Arnfríður hjúkrunarfræðingur, f. 21.
maí 1953 í Rvík, Gísladóttir menntaskólakennara á Akureyri
Jónssonar og konu hans Hervarar Ásgrímsdóttur. Barn Her-
vör, f. 11. júlí 1981 á Akureyri.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 15. febr. 1982.
H. G.
Þórir Ingason (V 1979), f. 3.
ág. 1954 á Húsavík. Foreldr-
ar Ingi skólastjóri í Rvík, f.
29. ág. 1929, Kristinsson frá
Grenivík Jónssonar og kona
hans Kristbjörn Hildur
kennari f. 31. jan. 1933,
Þórisdóttir Friðgeirssonar.
Stúdent MR 1974, próf í
byggingaverkfræði frá HÍ
1979 og DTH í Khöfn 1981.
Verkfr. hjá Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðar-
ins að Keldum frá 1982.
Maki 10. apríl 1980, Þor-
björg fóstra, f. 19. maí 1955 í Hafnarfirði, Karlsdóttir vél-
stjóra í Rvík Sigurðssonar og konu hans Ásrúnar Rögnu
Þórðardóttur. Börn 1) Ragnar, f. 17. febr. 1977 í Rvík, 2)
Hildur, f. 28. des. 1978 s.st.
Veitt innganga 1 VFÍ á stjórnarfundi 8. febr. 1982.
H. G.
Þorlákur Jónsson (V 1981),
f. 13. júlí 1956 í Khöfn. For-
eldrar Jón Erlingur trygg-
ingafræðingur í Rvík, f. 27.
okt. 1926, Þorláksson
bónda á Svalbarði, N-Þing,
Stefánssonar og kona hans
Sigrún, f. 2. júní 1928,
Brynjólfsdóttir bónda á
Ytra-Krossanesi við Eyja-
fjörð Sigtryggssonar.
Stúdent MK 1976, próf í
vélaverkfræði frá HÍ 1981.
Verkfr. hjá Rannsókna-
‘' stofnun Fiskiðnaðarins frá
1981.
Þorlákur er bróðursonur Vilhjálms Þorlákssonar bygg-
ingaverkfræðings.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 15. febr. 1982.
H. G.
66 - TÍMARIT VFÍ 1982