Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1893, Blaðsíða 111
g t. d, Vesturheimsmaðurinn Dononghue) og á hringbraut á 2
ð’/s sek. (eins og Svíinn tírunden hefur gert).
, Enskur maður að nafni Perkins hefur gengið enska mílu á
, ®>n. 23 sek. og annar Englendingur, Collier, svnt sömu vega-
lengd á 28 mín. 19*/s sek.
r, Þýzkt gufuskip »Furst Bismarck« fór næstliðinn vetur frá
y'eenstown á Englandi til New York áðdögum og 18*/2 klukku-
^trtnd. pað er íijótasta ferð, sem enn þá hefur verið farin milli
f"°rðurálfu og Vesturheims. Næst þessu hefur enskt skip »Teu-
tonic« komizt, sem fór sömu leið á 5 dögum og 22 tímum.
1 ofsaveðri fer vindurinn 120 enskar mílur á klukkutíma.
*
, Að ryðja snjó af 6 járnbrautum á Rússlandi, svo að járn-
brautarvagnar gætu komizt leið sína, kostaði veturinn 1889 —90
2,231,186kr.
_ Sama vetur kostaði að ryðja snjó af járnbrautum á Jyýzka-
landi 3,745,722 kr. og í Austurríki og Dngverjalandi 3,516,341 kr.
AA þessu verki hafa unnið bæði mannahendur og snjóplógar, en
nu eru nýlega upp fundnir í Vesturheimi ákaflega sterkir snjó-
plógar, sem ekkert stenzt fyrir. Með gufuvjel, sem hefur 300
desta afl, flýgur þess konar plógur, eins og ekkert sje til fyrir-
stöðu, j gegnum 10 feta þykka snjóskafla, og það þó að 4
Pumlunga þykkur ís liggi ofan á.
Líkan snjóplóg þætti mönnum á íslandi gott að eigaíharð-
indum, og heyleysi ávorin, ef hann væri handhægur ogekki of dýr.
* * *
Skóaraekkja ein i Randarósi á Jótlandi hjelt 3. jan. næst-
liðinn (1892) hundraðasta afmælisdaginn sinn. Hún var svo
bress til sálar og líkama, að hún sást daginn áður standa úti í
gluggakistu á húsinu sínu,tilað hreinsa rúðurnar bæði utan oginnan.
* *
í næstliðnum nóvemb. mán. (1891) hjeldu lijón nokkur á
Pjóni silfurbrúðkaup sitt, eptir 25 ára hjónaband. A sama stað
og degi ljetu þau skíra tuttugasta barnið sitt, og sátu í brúð-
kaupi elztu dóttur sinnar.
*
* ♦
Stór velgjörningur fyrir mannkynið væri það, ef lækn-
inga aðferð sú, sem nýlega er upp fundin gegn ofdrykkju, reynist,
varanleg. Fullkomin reynzla er fengin fyrir því, að þegar spýtt-
er inní blóðið, með þar til gjörðu verkfæri, uppleystu gulli, ásamt
fleiri efnum, sem enn þá eru heimuleg, þá fá verstu drykkju
rútar eptir 9 daga, megnasta viðbjóð á allskonar víni, og selja
því upp strax, ef þeim er þríst til að súpa á því, en ennþá er
ekki reynzla fengin fyrir því, hve varanleg þcssi lækning er.
Líklega er þetta eins og einn læknir sagði, að engin læknir geti
sagt um sjúkdóma, að hann hafl læknað þá svo vel, að þeir gætu
ekki komið aptur. pó ekki læknuðust til fulls af þessum al-
menna og versta sjúkdómi mannkynsins nema */io af öllum
dryklrjurútum, þá væri ákaflega mikið á unnið.
T. (',.