Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2004, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2004, Page 13
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ2004 13 Varist gömlu raftækin Talið er að eldurinn sem kom upp á Sundlaug- arveginum á sunnudags- morgun þar sem kona um nírætt lést hafi kviknað út frá gömlu rafmagnsteppi. „Þegar svona teppi fara að eldast verður maður að passa að notkunin á þeim sé rétt og ef þetta er brotið saman og annað því um líkt er hætt við að þetta geti bilað í framhafdi af því,“ segir Snæbjörn Krist- jánsson hjá rafmagnsbil- unardeild löggildingar- stofu. „Það er bara með þetta eins og öll önnur raf- magnstæki að þegar þau eldast þarf að sýna varúð og láta kíkja á þau. Það er ekki mikill peningur í því að skipta þessu út,“ segir Snæbjörn að lokum. Viktor Guðbergsson 12 ára hjólatöffari úr Grafarvogi er ekki sáttur við nýja Scott-hjólið sitt. „Ég var bara að fara niður kanta og prjóna eins og allir strákarrúr em að gera. Svo bara brotnaði stöngin undir hjólinu í tvennt og ég var heppinn að meiða mig ekki," segir Viktor Guð- bergsson tólf ára hjólatöffari í Grafar- voginum. Hjóbð hans Viktors er af gerðinni Scott og kostaði 18 þúsund krónur í versluninni Markinu: „Mér finnst þeir bara lélegir í Markinu því þeir vilja ekkert gera fyr- ir mann. Strákamir em allir á Trek og kannski að maður fái sér bara svoleið- is. Ég á engan pening núna og fæ því bara lánað hjól hjá vini mínum." Viktor var ásamt vinum sínum í hjólreiðarferð í Elliðaárdalnum þegar óhappið varð: „Vinur minn er með bögglabera og svona teygjur á hjólinu sínu og við skelltum mínu bara þar. Svo fékk ég að hringja hjá konu sem var að skokka og pabbi kom og sótti mig,“ segir Viktor hundfúll en hann fékk hjóbð í fyrra. „Það er nú ekki beint miðað við gangstéttarkant en í ábyrgðarskil- málum sem aUir fá sem kaupa hjól kemur þetta skýrt fram. Þar stendur feitletrað að ekki er ábyrgð á eðli- legu sliti eða skemmdum vegna óhappa, slæmrar meðferðar eða óeðlilegrar notkunar svo sem í vatni, stökkum eða keppni," segir Brynjar hjá Markinu. Brynjar segir reynt að sjá á brot- inu hvort þjösnast hafi verið á hjól- unum. Þau þoli ekki endalaust álag. hjólið hans Viktors úr Grafarvogin- Það gerist þó nánast aldrei að hjól um. brotni - líkt og gerðist með Scott- breki@dv.is Dómur yfir óléttu e-töflukonunni þykir þungur E-töflur eru hættulegri en kókaín segir sýslumaður E-töflukonan frá Sierra Leóne, Fanta Sillah, fékk fimm ára fangels- isdóm fyrir að flytja inn 5000 e-töfl- ur. Kona frá Nígeríu fékk eins og hálfs árs dóm skömmu áður fyrir að flytja inn 500 grömm af kókaíni. Munurinn á dómunum þykir furðumikill miðað við að götuverð á efnunum sé svipað og þær hafi líklega átt að fá sömu upphæð fyrir smyglið. „Ég mundi telja að ástæðurnar fyrir þessum mun séu í fyrsta lagi að kókaínið sem flutt var inn er 500 skammtar en e-töflurnar, aftur á móti, eru 5000 skammtar. Magnið, það er fjöldi skammta sem fluttir eru inn er aðalatriðið þegar dómur í málum sem þessum er felldur. í öðru lagi þykir e-talfan ennþá hættulegra eitur en kókaín. í þriðja lagi eru það svo dómafordæmin," segir Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, í samtali við DV. Á síðustu árum er markhópur- inn fyrir kókaín á íslandi orðinn sá sami og e-taflanna og því þykja þessi fordæmi vera að veikjast: „Þegar fyrstu dómarnir fyrir innflutning á e-töflum féllu var markhópurinn fyrir e-töflur fólk undir tvítugu, byrjendurnir, og dómarnir því hafðir mjög þungir. Þetta kann að hafa breyst í seinni tíð en það tekur dómskerfið tíma að jafna dómana. Dómafordæmi eru svolítið eins og olíuskip - þótt menn séu að breyta um stefnu þá gerist það hægt,“ segir Jóhann Þar sem Fanta Sillah er útíendingur þarf hún aðeins að afplána helm- ing dómsins, eða 2 1/2 ár. Eftir það verður henni vísað úr Jóhann R. Bene- diktsson Fyrstu dómarn- ir fyrir innflutning voru hafðir mjög þungir. Dómafor- dæmieru svolítið eins og olíu- skip - þótt menn séu að breyta um stefnu þá gerist það hægt, segir sýslumaðurinn á Keflavíkur- flugvelli. Fanta Siliah Þarfað afplána tvö og hálft ár affimm landi og þá er hún frjáls ferða sinna. Fanta skildi elsta barn sitt eftir fyrir nokkrum árum í Sierra Leóne og svo skilur hún annað barn, fjögurra ára dreng eft- ir í Hollandi þar sem hann er nú í vörslu barnaverndaryfir- valda. Hennar þriðja barn, sem er væntan- legt í heiminn í byrjun október, fær að öllum líkindum að dvelja hjá móður sinni fyrstu 2 1/2 ár ævi sinnar í kvennafangelsinu í Kópavogi þar sem öll að- staða er fyrir konur með ungabörn. rap@dv.is SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um deiliskipulag og breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að deiliskipulagi og breytingu á deili- skipulagi í Reykjavík. Sogavegur. Sogavegur 106 - 224 (jafnar tölur), lóðirnar Hamarsgerði 2, 4, 6 og 8, Tunguvegur 19 og Réttarholtsvegur 1 og 3. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Sogaveg, reit sem afmarkast af Sogavegi, Réttarholtsvegi, lóðamörkum húsa við Langagerði norðaustanvert, Tunguvegi, stíg milli Soga- vegar og Skógargerðis og göngustíg að Sogavegi. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að hámarksnýtingarhlutfall lóða á svæðinu verði 0,5 og er kjallari, bílgeymsla og sólskálar innifalið í þeirri tölu, á reitum sem eru þannig merktir eru við- byggingar ekki heimilaðar heldur einungis nýbyggingar í stað þeirra húsa sem fyrir eru á lóðum, girðingar má reisa í samræmi við byggingarreglugerðir (samþykki bygginga- nefndar þarf fyrir girðinum yfir 1,80m) og girðingar á lóðar- mörkum eru háðar samþykki beggja lóðarhafa. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Hlemmur og nágrenni. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hlemm og nágrenni sem afmarkast eins og fram kemur á uppdrætti. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að á Hverfisgötu milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs verði öll umferð bönnuð og svæðið skilgreint sem athafnasvæði almenningsvagna, Laugavegur færist frá húsunum Hverfisgötu 117-125 í sína gömlu legu, ekki er reiknað með breytingu á núverandi byggingu á Hlemmi en áformað er að fyrir allt svæðið um- hverfis Hlemm verði unnið deiliskipulag aðlægra reita á næstu mánuðum og verði þá jafnframt settir ítarlegir skil- málar fyrir Hlemm. Deiliskipulag þetta miðast við að unnt verði að taka í notkun nýtt leiðakerfi almenningsvagna á sem stystum tíma og með sem minnstum breytingum. Nánar um tillöguna og skilmála og kvaðir lóða á reitnum vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3,1. hæð, virka daga kl. 08:20 - 16.15, frá 28. júlí til og með 8. september 2004. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 8. september 2004. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 28. júlí 2004 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.